Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 11
Fjölmenni Akureyrarvaka er iðulega vel sótt en hátíðin sjálf er verkefni Akureyringa sem fagna afmæli bæjarins. leikann og fá íbúa til að hugleiða hverjir þeir sjálfir eru, hverfið þeirra og hverjir nágrannar þeirra eru. Horfðu til himins Dagskráin er æði fjölbreytt og þétt. Ógerningur væri að telja upp allt sem á dagskrá Akureyrarvöku er en hana má í heild skoða á vefsíðu Akureyrarstofu, www.visitak- ureyri.is. Þó verður að nefna nokkra dagskrárliði, eins og listgjörninga sem verða úti um allan bæ, vís- indasmiðju fyrir unga fólkið í stað uppblásinna hoppkastala, tónleika, draugavöku, tískuvöku og dans. Að þessu sinni verða engin svið reist fyrir þá tónleika sem haldnir verða yfir daginn en í staðinn verða nýjar leiðir farnar sem kosta minna og krefjast ekki sama umstangs og uppsetning sviðs. „Svið eru mjög kostnaðarsöm og pallbílarnir með pallsögunum eru frekar ljótir og eitthvað sjoppulegt við það að halda svona hátíð og vera endalaust að opna einhverja pallbíla. Í staðinn ætlum við að nýta öll þessi fallegu hús og húsþökin geta nýst sem svið. Það verða því rokktónleikar á hús- þökum og á svölum húsa í göngugöt- unni,“ segir Jón Gunnar. Það er því vel við hæfi að dagskrárliðurinn nefnist „Horfðu til himins“ því tón- listin kemur að ofan. Peningar ekki brenndir í ár Tíu vegglistaverk verða máluð um helgina og verða minnisvarði um hátíðina um óákveðinn tíma. Eitt verkanna mun listamaðurinn Guido Van Helten mála á 200 fermetra veggflöt, annað verður á stórum vegg í Listagilinu af skáldinu og ljósmóðurinni Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum en ýmsir koma að lista- verkunum með einum eða öðrum hætti. Til að mynda gefur Slipp- félagið málninguna og Íslenskir mál- arar sjá um að grunna vegginn svo allt sé klárt fyrir listamennina. Það má því sjá að með aðstoð og þátttöku margra er hægt að halda kostnaði niðri. „Það er ekki verið að spandera peningum á þessari hátíð og litlir fjármunir settir í þetta því hátíðin er sameiginlegt átak bæj- arbúa. Starf okkar Sóleyjar snýst í raun mest um að taka á móti hug- myndum bæjarbúa og finna þeim farveg,“ segir Jón Gunnar. Alla jafna lýkur Akureyrarvöku með veglegri flugeldasýningu en þannig verður það ekki í ár. „Það er stór spurning hvernig eigi að klára svona stóra og mikla dagskrá. Það væri eitthvað skrýtið við það að sprengja og fagna, bæði við það að brenna peninga og svo hugsunin um að gleðjast yfir sprengingum á þess- um tímum. Á meðan fréttatíminn er fullur af skelfilegum fréttum af stríði. Núna þurfum við að vera dá- lítið alheimsmiðuð. Við erum Ak- ureyringar, Íslendingar og jarð- arbúar,“ segir Jón Gunnar. Í stað flugeldasýningarinnar verður mark- miðið að kveikja á eitt þúsund kert- um sem raðað er upp kirkjutröppur Akureyrarkirkju og er næsta víst að það verður ekki síður mikilfengleg sjón en flugeldasýning. Björg- unarsveitin Súlur verður fólki innan handar við að raða kertunum og mun hvert kerti kosta 500 krónur. „Allur ágóði mun renna til stríðs- fórnarlamba á Gaza-svæðinu. Það er ekki verið að taka afstöðu með hin- um eða þessum en með þessu er í það minnsta verið að taka afstöðu með friði og það er mjög mikilvægt,“ segir Jón Gunnar og bætir við að oft og tíðum sé samheldni og samkennd vanmetin á sama tíma og fólk er upptekið af því að skemmta sér. „Auðvitað ætlum við að skemmta okkur alla helgina en augnablikin eru svo dýrmæt ef við náum sam- heldni og samkennd í tíu mínútur þar sem við stöldrum aðeins við og hugleiðum hvort við kunnum að meta að við búum í frábærum og friðsælum bæ og hvort við getum gert betur á einhvern hátt. Það merkilega við þetta er að jafnvel bæjarhátíð á norðurhveli jarðar get- ur gert heiminn örlítið betri en hann er í dag,“ segir Jón Gunnar Þórð- arson, annar skipuleggjenda Ak- ureyrarvöku sem fram fer um næstu helgi. Morgunblaðið/Ómar Vegglist Guido Van Helten er vel þekktur fyrir einstök vegglistaverk. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga PLÍ-SÓL GARDÍNUR Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Meira úrval • Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Í dag, laugardaginn 23. ágúst, á milli klukkan 14 og 18 verður áhugaverð vinnustofa opin fyrir áhugasama í Herberginu í Kirsuberjatrénu, Vest- urgötu 4 í Reykjavík. Þar mun textíl- og fatahönnuðurinn Brynja Emils- dóttir kenna gestum og gangandi að búa til margnota innkaupatöskur úr gömlum efnum og fötum. Kennsla í silkiþrykksprentun fer þar einnig fram en að baki töskunum er hug- myndin um að endurnýta efnivið í stað þess að henda honum. „Ég hef verið að nota gömul efni, afganga og gamla lagera til að búa til barnaföt en í náminu mínu hefur flest snúist um sjálfbærni bæði í gegnum text- ílinn og fatahönnunina,“ segir Brynja sem ákvað að gera eitthvað í þessum dúr á menningarnótt. „Við í Kirsu- berjatrénu höfum oft talað um þessa plastpokanotkun og langaði að vera með taupoka sem fólk gæti notað meira sem tösku seinna í stað þess að fleygja plastpoka eftir notkun og hugsa þess í stað um umhverfið,“ ssegir textíl- og fatahönnuðurinn Brynja sem í dag mun leiðbeina fólki og verður með töskusnið á staðnum. Það er ljóst að engin hætta er á að tvær töskur verði eins. Umhverfisvæn textílvinnustofa í Kirsuberjatrénu í dag Nýjar og ein- stakar töskur gerðar úr göml- um efnisbútum Skapti Hallgrímsson Efnisbútar Í töskurnar er nýtt efni sem annars yrði fleygt. Hönnuðurinn Brynja Emilsdóttir leggur áherslu á endurnýtingu í hönnun sinni, eins og sjá má í Kirsuberjatrénu í dag þar sem gestir geta búið til sína eigin tösku. Endurnýting Brynja með eina af þeim svuntum sem hún hannar sjálf. Ljósmynd/Jenný Guðmundsdóttir Frisbígolf er íþrótt sem nýtur ört vax- andi vinsælda hér á landi sem erlend- is. Í vikunni var nýr völlur vígður í Reykjavík og er öllum heimilt að nýta þá til iðkunar íþróttarinnar, sem er blanda af golfi og listinni að kasta frisbídisk sem koma á í sérstaka körfu í sem fæstum höggum. Vellirnir eru í Laugardal, Fossvogsdal og Breiðholti, auk Klambratúns og Gufu- ness. Nánar um það á vefnum www.folf.is. Frisbígolfvellir borgarinnar Malín Brand Sniðugt Íþróttin hentar öllum aldurs- hópum og ekkert kostar inn á vellina. Vellir komnir í fimm hverfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.