Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014
Áhugaverðir áfangastaðir
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Látrabjarg er fuglabjarg á sunnan-
verðum Vestfjörðum og er stærsta
sjávarbjarg Íslands og Evrópu. Því
er í daglegu tali skipt í fjóra hluta
eða Látrabjarg, Bæjarbjarg,
Breiðavíkurbjarg og Keflavíkur-
bjarg.
Látrabjarg er 14 kílómetra langt
og þverhnípt bjarg frá austri til
vesturs við norðanverðan Breiða-
fjörð. Þar er vestasti tangi landsins,
Bjargtangar, og eitt þéttsettnasta
fuglabjarg heims.
Í Látrabjargi verpa margar
fuglategundir en talið er að millj-
ónir sjófugla séu hverju sinni í
bjarginu. Þar má nefna álku, lunda,
langvíu, stuttnefju, rytu og fýl. Á
sumrin má sjá fugla í hverri einustu
syllu í bjarginu og því er það algjör
draumur fyrir fuglaunnendur að
upplifa þá ótrúlegu náttúrúperlu
sem bjargið býr svo sannarlega yfir.
Náttúruöflin eiga stóran þátt í því
að stórfenglegt fuglalíf hefur skap-
ast á Látrabjargi, en sjórinn og
sterkur vindur hafa í langan tíma
mótað þær fjölmörgu klettasyllur
sem fuglarnir hafa gert að griðar-
stað sínum. Í syllunum er að finna
fjölmörg egg og öldum saman var
sigið í bjargið eftir eggjum, ásamt
því að fuglar voru veiddir á svæð-
inu. Sigi var hætt eftir árið 1925
þegar 40.000 eggjum var safnað.
Þægileg gönguleið
Ef menn vilja upplifa svæðið af
alvöru þá er nauðsynlegt að skella
sér í hressilega göngu um svæðið. Á
göngunni er margt fallegt að sjá, en
selir eru algengir á skerjunum í
grennd við vitann og stundum
bregður fyrir hvölum skammt frá
landi.
Gönguleiðin liggur meðfram
Látrabjargi og er um sex kílómetra
löng. Gengið er sömu leið til baka,
en tekið skal fram að leiðin er ekki
merkt né stikuð. Gönguleiðin er þó
þægileg til göngu og auðvelt er að
rata um svæðið.
Leiðin liggur þannig að berginu
er fylgt þar til komið er á hæsta
punktinn, en það mun vera
Hvanngjáarfjall. Varast skal að fara
of nærri brúnum þar sem undirlag
getur verið laust og jafnvel holt eft-
ir varp lunda. Öruggast er því að
halda sig í ákveðinni fjarlægð frá
bjarginu.
Stærsta sjávarbjarg
Íslands og Evrópu
Stórfenglegt fuglalíf er að finna á Látrabjargi
www.mats.is
Náttúra Látrabjarg er eitt fallegasta svæði landsins en talið er að milljónir
fugla séu í bjarginu hverju sinni. Á ljósmyndinni er horft til austurs.
Margt áhugavert er að sjá á Heim-
ilisiðnaðarsafninu á Blönduósi en
það var upphaflega opnað árið 1976 í
tilefni af 100 ára afmælis Blönduós-
bæjar sem verslunarstaðar.
Nokkrar fastar sýningar eru á
svæðinu en áhersla er lögð á að sýn-
ingarnar kalli fram tíðaranda, hug-
hrif og stemningu í stað þess að sýna
marga líka muni í senn. Sýningarnar
eru alls fimm talsins en þær felast í
sýningu á útsaumi, sýningu á þjóð-
búningum, ullarsýningu, Halldóru-
stofu og gömlum áhöldum.
Á sýningunni á útsaumi er nær-
klæðnaður kvenna til sýnis frá fyrri
tíð ásamt listilegum útsaumi, hekli
og orkeringu. Ekki eru þó ekki alltaf
sömu hlutir til sýnis á hverjum tíma
þar sem ýmsum munum er skipt út á
milli ára.
Á safninu má sjá úrval íslenskra
þjóðbúninga, en þar má nefna skaut-
búninga, upphluti og peysuföt.
Nokkrir búninganna eru orðnir tölu-
vert gamlir og sumir frá seinnihluta
19. aldar og upphafi 20. aldar.
Á ullarsýningunni geta gestir
fengið að þreifa á íslensku ullinni og
fundið mismuninn á togi og þeli. Á
sýningunni eru handgerð sjöl, prjón-
uð og hekluð úr þeim efnum, en einn-
ig eru margar gerðir af útprjónuðum
vettlingum, sokkum og mörgu fleiru.
Halldórustofa er staðsett í efri
hluta gamla safnhússins. Hún er
kennd við Halldóru Bjarnadóttur
(1873-1981), en hún var heimilisráðu-
nautur Búnaðarfélags Íslands, gaf út
ársritið „Hlín“ í 44 ár og stofnaði og
rak Tónvinnuskólann á Svalbarða í
Suður- Þingeyjarsýslu.
Á sýningunni um gömul áhöld má
svo sjá spunavél, vefstól, rokka,
prjónavélar og ýmiss konar önnur
áhöld.
Úrval íslenskra
þjóðbúninga
Áhersla lögð á
tíðaranda, hughrif
og stemningu
Ljósmynd/Heimilisiðnaðarsafnið
Safn Skautbúningur úr sýningu.
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum.
Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og
örugg gæði frá fagmönnum.
Verktakar – húsbyggjendur
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA