Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Ætlar þú að um lífsstíl? Heilsulausnir Hentar einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki. Kynningarfundur Fimmtud. 21. ágúst kl. 17:00. Fyrir þá sem hafa hug á að byrja á námskeiðinu í byrjun september eða vilja frekari upplýsingar um Heilsulausnir. Allir velkomnir Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is Tapashúsið | Ægisgarði 2, 101 Reykjavík | info@tapashusið.is TAPASHÚSID BORDPANTANIR Í SÍMA 512-8181 Menningarnætursedill 2014 TAPAS-MENNING Leturhumar & tígrisrækja... hvítlaukur, sítróna, eldpipar Tapasplatti... Laxa-sashimi, serranó skinka, chorizo pylsa Grilladar lambalundir... sojasveppir, BBQ & trufflupólenta Gulrótarkaka... sýrdur rjómi, appelsína & hvítt súkkuladi 6.400 kr. Talsverð starfsmannavelta hefur verið hjá WOW air á undanförnum árum en frá því að flugfélagið hóf áætlunarflug sumarið 2012 hafa sjö framkvæmdastjórar látið af störfum. WOW air var stofnað í nóvember ár- ið 2011. Í fyrradag var greint frá því að þeim Tómasi Ingasyni og Arnari Má Arnþórssyni hefði verið sagt upp störfum. Tómas var forstöðumaður viðskiptaþróunarsviðs WOW og hóf störf í byrjun árs en Arnar Már tók við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs í maí síðastliðnum. Í febrúar greindi Morgunblaðið jafnframt frá því að WOW air væri að skipta um auglýsingastofu. Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi flugfélagsins, sagði þá að starfsemi WOW air hefði farið ört vaxandi frá stofnun þess og að slíkum vexti fylgdu áherslu- og skipulagsbreyt- ingar. Hefur velta félagsins aukist úr 2,5 milljörðum árið 2012 í tíu millj- arða 2013. Ljósmynd/Herman Wouters Ör vöxtur Samtímis miklum vexti flugfélagsins WOW air hefur starfs- mannavelta verið mjög mikil hjá helstu stjórnendum félagsins. Sjö stjórnendur WOW hætt störfum  Mikil starfsmannavelta hjá WOW air Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Primera Air, sem er leiguflugfélag á vegum Andra Más Ingólfssonar, hef- ur stofnað nýtt flugfélag í Lettlandi sem ber nafnið Primera Air Nordic. Á sama tíma stígur Jón Karl Ólafsson, forstjóri félagsins til hliðar, og Hrafn Þorgeirsson tekur við starfinu. Hann var áður framkvæmdastjóri Primera Air Scandinavia í Danmörku. Andri Már segir í samtali við Morg- unblaðið að með stofnun félagsins þar í landi fáist aukinn sveigjanleiki. Hægt sé að þenja út starfsemina og draga hana saman með skemmri fyr- irvara en á Norðurlöndunum, því þar þurfi að ráða áhafnir að lágmarki til sex mánaða, sem geti verið erfitt við- fangs ef aðstæður breytist hratt og nefnir sem dæmi að byltingin í Egyptalandi hafi haft mikil áhrif á ferðaþjónustu. „Við erum í alþjóðasamkeppni og þurfum sveigjanleika. Sérstaklega vegna viðbótarverkefna sem við erum að sækja. En við greiðum okkar fólki góð laun og það hefur vinnu allt árið um kring,“ segir hann. Andri Már segir um brotthvarf Jóns Karls að starfsemi fyrirtækisins verði nú að mestu erlendis og honum hafi ekki hugnast að vera meira í út- löndum. Hluti starfseminnar fer frá Íslandi til Lettlands Í haust munu nýjar skrifstofur fé- lagsins í Riga verða teknar í gagnið og er ráðgert að hluti starfseminnar sem hingað til hefur verið á Íslandi og tengist beint framleiðslu verði stað- settur í Lettlandi til að geta samþætt starfsemi Primera Air Scandinavia og Primera Air Nordic. Reiknað er með að skrifstofur félagsins í Riga geti sinnt þörfum beggja félaga flug- félagsins. Búist er við að öll nauðsynleg leyfi liggi fyrir í byrjun október og hefst flugrekstur í nóv- ember undir merkjum nýja fé- lagsins. Primera Air veltir um 30 millj- örðum króna og er reiknað með því að vöxturinn í ár og á næsta ári verði um 30% vegna aukinna verk- efna, að sögn Andra Más. Primera Travel Group, sem á m.a. Primera air og Heimsferðir, er eitt stærsta fyrirtæki landsins og velti um 92 milljörðum í fyrra, en umsvifin eru nær öll erlendis. Meginrekstur fyrir- tækisins er fólginn í rekstri ferða- þjónustufyrirtækja, ferðaskrifstofa og ferðaheildsala, í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og á Íslandi auk leiguflugfélagsins Primera Air sem rekur átta flugvélar. Til saman- burðar má geta þess að velta Marel á árinu 2012, sem þá var veltumesta fé- lag landsins, var 115 milljarðar króna og Icelandair Group, sem skipaði ann- að sætið, velti 112 milljörðum króna, samkvæmt bókinni 300 stærstu. Primera stofnar flugfélag í Lettlandi  Jón Karl Ólafsson hætti sem forstjóri leiguflugfélagsins Umsvif Samstæðan Primera Travel Group veltir um 92 milljörðum og um 30 milljarðar koma frá Primera Air. Jón Karl Ólafsson Andri Már Ingólfsson Hrafn Þorgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.