Morgunblaðið - 23.08.2014, Side 16

Morgunblaðið - 23.08.2014, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Aldrei hefur verið lokað fyrir bíla- umferð í miðborginni jafn mikið og nú vegna Menningarnætur. „Við ákváðum að fara að ráðleggingum um fjörutíu samtaka, stofnana og sérfræðinga varðandi öryggismál. Við viljum tryggja öryggi fólks,“ sagði Einar Bárðarson, forstöðu- maður Höfuðborgarstofu. Þessar aðgerðir eiga að tryggja öryggi bæði gangandi og akandi vegfarenda og auðvelda aðgengi lögreglu, sjúkra- bíla og slökkviliðs um svæðið. „Við viljum geta rýmt svæðið á innan við hálftíma ef til þess kæmi eins og til dæmis eldsvoði.“ Slæm reynsla frá árinu áður Ástæðan fyrir þessari umfangs- miklu lokunum er meðal annars slæm reynsla frá árinu áður. Þá voru dæmi um að ökumenn virtu ekki lok- anir og stofnuðu öðrum í hætti vegna framgöngu sinnar. „Við hvetj- um fólk til að taka strætó, leggja á bílastæðum og taka strætó nær bænum,“ sagði Einar. Á meðfylgjandi korti er sýnt um- fang svæðisins sem verður lokað fyrir bílaumferð á laugardaginn. Bú- ist er við að um hundrað þúsund manns leggi leið sína í miðbæinn. Gestir eru hvattir til að taka strætó, en frítt verður í strætó í dag. Sæbrautin verður lokuð þar sem hún mætir Snorrabrautinni en þar er leyfð bílaumferð. Gamla Hring- brautin verður lokuð en hægt að keyra Hringbrautina. Tilvalið er því fyrir gesti að leggja á bílastæðinu við Háskóla Íslands og ganga í miðbæinn. Á meðan Reykjavíkurmaraþonið stendur verða nokkrar götur lok- aðar fyrir umferð rétt á meðan hlaupararnir fara sína leið. Hringur- inn nær út á Seltjarnarnes. Klukkan 8.40 verður ræst í mara- þonhlaup, hálfmaraþon og boðhlaup. Tæpum klukkutíma seinna verður 10 km hlaupið ræst. Tímatöku lýkur 14.40. Allir vagnar flytja gesti heim klukkan ellefu Hefðbundið leiðakerfi Strætó verður aftengt klukkan 23 á Menn- ingarnótt og allir vagnar verða settir í það verkefni að flytja gesti heim úr miðbænum. Farið verður frá BSÍ og Hlemmi. Mikilvægt er að gestir kynni sér hvert vagnarnir fara, en þeir verða merktir með bókstöfum. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu strætó. Lokanir vegna Menningarnætur Grunnkort/Loftmyndir ehf. Latabæjarhlaup Útisvið Útisvið Útisvið Útisvið Flugeldasýning Aðsetur lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita og týndra barna viðMenntamálaráðuneytið Harpa BSÍ Höfðatorg Ráðhús HÍ Hlemmur S S S WC WC WC WC WC WC WC WC WC WC WC WC WC WC Upplýsingar Þjónustusími 411 111 er opinn frá kl. 9 til 23 Aðalstræti kl. 13-21 Höfðatorgi kl. 13-17 Bílastæðahús opin kl. 07-01 Bílastæði hreyfihamlaðra Möguleg bílastæði Akstur bannaður á hátíðarsvæði Akstur leyfður út af hátíðarsvæði Strætó ekur að og frá Hlemmi, Kirkjusandi og Gömlu Hringbraut, gegnt BSÍ. Nánari upplýsingar á menningarnott.is og á straeto.is S Laugavegur Sn or ra br au t Ra uð ar ár st íg ur Flókagata Kjarvalsstaðir Eiríksgata Bergþórugata Laugavegur Hverfisgata Sæbraut Be rg st að as træ ti Fr ík irk ju ve gu r Su ðu rg at a Geirsgata Æ gi sg at a Túngata Skúlagata - neyðarbraut Gamla Hringbraut Hringbraut Hringbraut  Nánast allur miðbærinn lokaður fyrir bílaumferð  Öryggi borgarbúa í fyrirrúmi  Frítt í strætó Aldrei fleiri lokanir Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Þetta er örugglega með stærri listgjörningum sem hafa verið framdir,“ sagði Sigríður Soffía Níelsdóttir danshöfundur, sem býr til dansverk fyrir flugelda á Menn- ingarnótt í ár. Hún stýrði einnig síðustu flugeldasýningu. Hún segir vissulega hafa verið nokkra pressu að hanna flugeldasýn- inguna í ár, þar sem sú síðasta hafi heppnast mjög vel. Flug- eldasýningin verður undir samspili tónlistar og munu kirkju- klukkur óma um alla borg og á landsbyggðinni. 23 kirkjur á lands- byggðinni munu hringja klukkum sínum, jafnt í þéttbýlli bæjum sem og á strjálbýlli stöðum. „Vodafone bað mig um að koma með nýja hugmynd fyrir sýninguna í ár. Mig langaði að tengja lands- byggðina meira við Menningarnótt og því fannst mér kjörið að kirkju- klukkum á landsbyggðinni yrði hringt um leið og flugeldasýningin yrði. Ég vil að fólk geti upplifað þetta með eigin eyrum hvar sem er á landinu.“ Sækja þurfti um formlegt leyfi frá biskupi og prestum allra þeirra kirkna sem taka þátt og fá hringj- ara landsins til liðs við sig. „Þetta er rosalega stórt verkefni og lykill- inn er samhæfing. Allt þarf að smella á hárréttum tímapunkti.“ Eins og síðustu ár sýnir Ríkis- útvarpið beint frá tónleikunum sem hefjast rétt fyrir átta og eftir það tekur flugeldasýningin við. RÚV sýndi í fyrsta sinn alla flugeldasýn- inguna í fyrra, þar sem hún var með óvenjulegu sniði, og því var vilji fyrir nánara samstafi. RÚV mun því fylgja sýningunni alveg nú í ár og reyna að skila henni inn í stofur landsmanna. Hún vann sýninguna út frá þjóð- sagnaminni; tölunum þremur og sjö og tengingu þjóðsagna við kirkju- klukkur. „Þessar tölur eru oft tengdar ævintýrum og einnig gegna kirkjur vegamiklu hlutverki í ævintýrum.“ Hún benti á að í þjóð- sögum hefði kirkjuklukkum oft ver- ið hringt af miklum ákafa þegar óvænt ógn steðjaði að, tröll, galdrar eða eldgos, þær hefðu verið eins konar gamaldags almanna- varnir. „Flugeldar eru töfrar út af fyrir sig og allar kirkjur munu vara við þessu sjónarspili sem er í vænd- um.“ Hún segir skemmtilegt að Voda- fone og Reykjavíkurborg vilji halda áfram að styðja við metnaðarfulla flugeldasýningu á Menningarnótt. „Fólk skildi fyrst ekki hvað dans- höfundur gæti gert öðruvísi við flugelda en það hefur vonandi breyst.“ Hægt er að kynna sér frekar verk hennar á vefsíðunni: www.siggasoffia.4ormat.com Kirkjuklukkurnar óma um allt land  Landsbyggðin tengd Menningarnótt Töfrar Tónlist, kirkjuklukkur og flugeldar á Menningarnótt. Sigríður Soffía Níelsdóttir Svava Oddný segir það koma sér á óvart hversu margar nýskrán- ingar hafi verið síðasta daginn. „Það er alltaf einhver hópur sem tekur ákvörðun um að skella sér í styttri vegalengdirnar á lokametr- unum, eftir að hafa skoðað veð- urspána,“ segir Svava Oddný Ás- geirsdóttir, hlaupstjóri Reykjavíkurmaraþonsins. Þegar skráningu lauk í gærkvöldi höfðu alls 15.286 manns skráð sig til þátttöku, þar af 1.055 í maraþon- hlaup, 2.491 í hálfmaraþon og 7.035 í 10 kíló- metra hlaup. Aðspurð segir Svava Oddný fleiri vel geta skráð sig í þriggja kíló- metra hlaupið og Lata- bæjarhlaupið á morgun. Það er því ljóst að þátttakendum Reykja- víkurmaraþonsins geti enn fjölgað þetta árið. Yfir 15.000 manns skráðir MJÖG MIKIL ÞÁTTTAKA Í REYKJAVÍKURMARAÞONINU Svava Oddný Ásgeirsdóttir Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.