Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Kistuberar láta líkkistu flugliðans Nur Shazana sem fórst með farþegaþotu malasíska flugfélagsins Mal- aysian Airlines síga niður í gröf við útför hennar nærri Kúala Lúmpúr í gær. Líkamsleifar þeirra 43 Malasíu- búa sem létust þegar flugvélin var skotin niður yfir Úkraínu byrjuðu að koma til landsins í gær. Lands- menn minntust fórnarlambanna með mínútu þögn um allt land. AFP Fyrstu líkin komin heim til Malasíu Stjórnvöld í Senegal hafa lokað landamærum sínum að Gíneu af ótta við ebólufaraldurinn sem geisar í Vestur-Afríku, þrátt fyrir að Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hafi varað við því að slíkar ráðstafanir hafi þveröfug áhrif. Þau hafa einnig lokað á flug- og skipa- samgöngur frá Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne, þau þrjú lönd sem hafa orðið verst úti í faraldrinum. Að minnsta kosti 1.350 manns hafa þegar látist af völdum ebólu frá því að faraldurinn blossaði upp. WHO hefur áður sagt að ferðabönn virki ekki, sérstaklega ef þau koma í veg fyrir að læknar komist til þess að hjálpa. Heilbrigðisyfirvöld í Nígeríu til- kynntu í gær að ebóla hefði greinst í tveimur manneskjum til viðbótar. Báðar eru þær makar fólks sem hafði sýkst af veikinni. Þar með hafa því fjórtán tilfelli greinst í landinu og hefur sjúkdómurinn þegar dregið fimm þeirra til dauða. AFP Sóttkví Auð gata í fátækrahverfi í Líberíu þar sem sóttkví var sett á. Setja á ferðabann af ótta við ebólufaraldur  WHO segir bönn hafa þveröfug áhrif Á sjöunda tug manna eru taldir hafa fallið í árás vopnaðra sveita sjíamús- líma á mosku súnníta í bænum Imam Wais í Diyala-héraði í Írak sem enn er á valdi íraskra stjórnvalda. Einn árásarmannanna réðst inn í mosk- una og sprengdi sjálfan sig í loft upp. Í kjölfarið fylgdu vopnaðir menn sem skutu á tilbeiðendur. Komust þeir undan þrátt fyrir tilraunir vopn- aðra sveita á staðnum til að hafa hendur í hári þeirra. Nærliggjandi bæir eru á valdi samtakanna Ríkis íslams (ISIS) og segja embættismenn að vígamenn þeirra hafi undanfarið reynt að fá meðlimi tveggja samfélaga súnníta á svæðinu til að ganga til liðs við sig, án árangurs. Bandarísk hermálayfirvöld telja ISIS vera alvarlegustu ógn sem steðjar að hagsmunum Bandaríkj- anna um þessar mundir, jafnvel meiri en þá sem stafar af hryðju- verkasamtökunum al-Qaeda. Þrátt fyrir vaxandi áhyggjur vestrænna leiðtoga af uppgangi ISIS, hafnar Philip Hammond, utanríkisráðherra Bretlands, því algerlega að Bretar reyni að fá Bashar al-Assad, forseta Sýrlands til liðs við sig í baráttunni gegn íslamistunum. „Það má vel vera að á stundum séum við að berjast við sömu aðila og Assad en það gerir okkur ekki að bandamönnum hans. Það væri ekki gagnlegt, skynsamlegt eða hjálplegt að einu sinni hugsa út í þann mögu- leika að fara þá leið,“ sagði Ham- mond í viðtali við breska ríkisútvarp- ið BBC. Lýsti hann jafnframt stjórn Assad sem „hræðilegri“. Fjöldamorð á súnn- ítum í mosku í Írak AFP Átök Vopnaðar sveitir berjast gegn liðsmönnum Ríkis íslams (ISIS).  Bandalag gegn ISIS við Sýrlands- forseta útilokað Handunnir íslenskir skartgripir úr silfri LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Verð 25.500,- Verð 25.600,-Verð 14.800,- Verð 34.900,- Verð 29.900,- Verð 25.700,- Verð 25.700,- Verð 17.900,- Verð 17.900,- Verð 18.900,- Verð 17.900,- Verð 25.700,- Verð 19.900,- Verð 14.800,- STOFNAÐ1987 einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s M ál ve rk : Á sg ei r Sm ar i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.