Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 43
Keflavík. „Síðan dett ég í tölvubrans- ann 1996 þegar ég byrja að vinna í versluninni Tölvuvæðingu í Keflavík. Ég er að mestu sjálflærður í tölv- unum en haft mikinn áhuga á þeim frá því að ég var krakki. Var að leika mér í tölvum eins og Sinclair Spectr- um sem ég eignaðist 10 ára, Amstrad og Archimedes frá Acorn. Frá Tölvu- væðingu fer ég yfir til Internetþjón- ustunnar OK samskipta, þar sem ég var markaðsstjóri, fór svo að vinna hjá EJS, var viðskiptastjóri þar. Síð- an var ég hjá Skýrr sem sölustjóri fyrir gagnaflutninga og síðar í ráð- gjöf í viðskiptatengslum (CRM). Við fjölskyldan bjuggum síðan í London, þar sem ég starfaði í upplýsinga- tæknifyrirtæki í fjármálahverfinu. Þegar heim var komið var ég mark- aðsstjóri hjá Orkuveitunni, þar sem ég sá um markaðsmál í tengslum við ljósleiðaravæðingu hennar. Síðast var ég verkefnastjóri hjá Lands- bankanum í innleiðingu á viðskipta- tengslum (CRM). Frá 2009 hef ég að mestu starfað sjálfstætt í gegnum mitt eigið fyrir- tæki sem ég stofnaði í London við innleiðingu á Microsoft CRM- kerfum, en ég byrjaði að vinna með þær lausnir hjá Skýrr þar sem ég fékk meðal annars vottun. Mest hef ég unnið fyrir erlenda aðila en ég hef fengið tækifæri til að kynnast vel við- skiptaumhverfinu í Bretlandi frá því að ég starfaði þar. Ég hef komið að innleiðingum hjá nokkrum íslenskum fyrirtækjum og stofnunum eins og Actavis, 365 Miðlum, Landsbank- anum og síðast Reykjavíkurborg. Í dag starfa ég sem framkvæmda- stjóri hjá eigin fyrirtæki sem heitir Discover Iceland. Stofnaði það í októ- ber 2010 með einn jeppa en núna rek ég fimm breytta jeppa sem fara með liðlega 3.000 farþega á ári upp á há- lendið. Það er nóg að gera allt árið um kring og jafn mikið á veturna og á sumrin. Starfsemin skiptist í dags- ferðir og margra daga ferðir þar sem við sníðum ferðirnar út frá áhuga- málum fólksins, sem við skipuleggj- um með því, t.d. hvort fólk vill fara í snjósleðaferðir, hestaferðir, köfun eða annað. Það hafa því mikil sam- skipti átt sér stað milli okkar og við- skiptavinanna, jafnvel í heilt ár, áður en þeir koma til landsins. Ég fer ekki lengur mikið sjálfur í ferðirnar. Ég sé um sölu- og markaðsmálin og þarf að reka fyrir- tækið en samt tekst mér öðru hverju að fara út að leika og hitta skemmti- lega viðskiptavini okkar sem koma alls staðar að úr heiminum. Áhugamál Discover Iceland er gott dæmi þar sem maður breytir áhugamáli í vinnu, en ég hef haft áhuga á ferða- lögum og jeppum frá því að ég fékk bílprófið. Ég er á fullu í alls konar mótorsporti, torfæruhjólum, götu- hjólum, vélsleðum, jet-ski og hef bara áhuga á öllu sem er með mótor. Ég geng einnig mikið, hef t.d. tvisvar farið á Hvannadalshnúk. Svo finnst okkur hjónunum gaman að ferðast. Við eigum 11 ára brúðkaupsafmæli í dag og héldum upp á það með því að vera eina nótt í þessari viku á hóteli í Hvalfirði. Við vorum í Sankti Péturs- borg í júní og í New York síðasta vet- ur og stefnum aftur þangað í haust.“ Fjölskylda Eiginkona Georgs er Karen Bjarnadóttir, f. 5.11. 1974, aðalbókari hjá Hagkaup. Foreldrar hennar: Bjarni Valtýsson, f. 25.6. 1943, sem átti og rak dekkjaverkstæði Aðal- stöðvarinnar í Keflavík, og Ester Ólafsdóttir, f. 10.5. 1945, d. 23.9. 1994, deildarstjóri hjá Samkaupum í Njarðvík. Börn Georgs og Karenar eru Esther Aspelund Georgsdóttir, f. 18.10. 1996, og Elín Aspelund Georgsdóttir, f. 12.12. 2001. Bróðir Georgs er Baldvin Orri Þorkelsson, f. 7.4. 1977, maki hans er Anna Lára Guðnadóttir. Hálfbróðir samfeðra er Sigurþór Brynjar Sveinsson, f. 30.11. 1972. Maki hans er Hólmfríður Helga Björnsdóttir. Foreldrar Georgs eru Þorkell Guðmundsson, f . 28.9. 1951, slökkvi- liðsmaður, bifvélavirki og bílamálari, og Elín Aspelund, f. 12.1. 1955, deildarstjóri í Landsbankanum. Þau búa í Reykjavík. Úr frændgarði Georgs Aspelund Þorkelssonar Georg Aspelund Þorkelsson Nikólína Henrietta Katrín Þorláksdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Guðmundsson bakari á Ísafirði og í Reykjavík Júlíana Þorlaug Guðmundsd. Aspelund húsfreyja og matráðskona í Reykjavík Georg Aspelund járnsmíðameistari í Reykjavík Elín G. Aspelund deildarstjóri hjá Landsbankanum Sigrún Aspelund Edward húsfreyja á Ísafirði Einar Hjaltested söngvari og bóndi á Öxnalæk í Ölfusi Kristín Þórðardóttir húsfreyja á Syðstu-Görðum Guðmundur Jóhannesson bóndi á Syðstu-Görðum í Hnappadalssýslu Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja, síðast í Hveragerði Guðmundur Sigurbjörn Sigurgeirsson járniðnaðarmaður í Keflavík, Reykjavík og Hveragerði Þorkell Guðmundsson bifvélavirki og bílamálari í Reykjavík Jófríður Margrét Jónsdóttir húsfreyja, frá Snorrastöðum Sigurgeir Þórarinsson bóndi í Hömluholti í Hnappadalssýslu ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014 Einar Ásmundsson, forstjóri Sindra, fæddist á Fróðá í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi 23. ágúst 1901. For- eldrar hans voru Ásmundur Sig- urðsson, bóndi á Grund og Bár í Grundarfirði, frá Vallá á Kjalarnesi, og Katrín Arndís Einarsdóttir, hús- freyja frá Kaldaðarnesi. Eignuðust þau sjö börn, en fjögur komust til fullorðinsára, þrír synir og ein dótt- ir. Einar var þeirra elstur. Ásmund- ur fórst í róðri á Breiðafirði 31.1. 1919 og með honum fjórir menn. Einar komst af ásamt öðrum manni. Átján ára að aldri hélt hann til Reykjavíkur og hóf nám í járnsmíði. Að því loknu sótti hann átta mánaða námskeið við járnsmíða- og landbún- aðarvéladeild Landbúnaðarháskól- ans í Kaupmannahöfn. Við heim- komuna 1924 tók hann við smiðju Þorsteins Tómassonar í Lækjargöt- unni. Nokkru fyrir stríð keypti Ein- ar Hverfisgötu 42, en þar stóðu tvö timburhús. Í stríðsbyrjun hóf hann byggingu stórhýsis á þess tíma mælikvarða. Þar var starfsemin í mörg ár. Þegar hér var komið sögu hafði Sindrasmiðjunni vaxið fiskur um hrygg og var orðið stórfyr- irtækið Sindrastál. Einar færði stöð- ugt út kvíarnar og hóf söfnun og út- flutning brotajárns og innflutning á stáli ásamt byggingarfram- kvæmdum við Borgartún. Einar var áhugasamur um félags- mál og var einn stofnenda Heimdall- ar. Hann starfaði einnig mikið í sam- tökum iðnaðarmanna og var í stjórn Meistarafélags járnsmiða. Eiginkona Einars var Jakobína Þórðardóttir, f. 7.3. 1904, d. 16.12. 1988. Foreldrar hennar voru Þórður Stefánsson, beykir í Reykjavík, og k.h. Sigríður Jónsdóttir. Einar og Jakobína eignuðust átta börn: Ás- geir framkvæmdastjóri, f. 1927, d. 2001, Ásmundur framkvæmdastjóri, f. 1929, en hann lést af slysförum ár- ið 1965, Þórður framkvæmdastjóri, f. 1930, Sigríður húsmóðir, f. 1933, Óskar Helgi vélstjóri, f. 1936, Magn- ús búfræðingur, f. 1938, en hann fórst í bílslysi 1963, Ragnar við- skiptafræðingur, f. 1943, d. 2001, og Björn innanhúsarkitekt, f. 1946. Einar lést 28.11. 1981. Merkir Íslendingar Einar Ás- mundsson Laugardagur 95 ára Haukur B. Guðmundsson 85 ára Kristfríður Kristmarsdóttir 80 ára Aðalsteinn Jóhannsson Bjarni Björgvinsson Helgi Björgvinsson Klara J. Óskarsdóttir Sigurður Leósson Svava Hermannsdóttir Þóra Þórðardóttir 75 ára Ásmundur Daníelsson Drífa Björg Marinósdóttir Örn Sævar Eyjólfsson 70 ára Ásta Dúna Jakobsdóttir Guðbjörg Guðmundsdóttir Ísleifur Jónsson Margrét Sigurgeirsdóttir Sigríður Friðjónsdóttir Þorvaldur Sigtryggsson 60 ára Felix Felixson Finnbogi Ottó Guðmundsson Guðmundur Hólm Indriðason Helga Pálsdóttir Jónatan Karlsson Jón Sigurður Ólafsson Kristjana Rósmundsdóttir Linda Laufey Bragadóttir Páll Marteinsson Sigríður Hvanndal Hannesdóttir 50 ára Agla Björk Einarsdóttir Bergljót Ólafsdóttir Dina Zanovska Heiðrún Heiðarsdóttir Heimir Hallsson Helga Líndal Hallbjörnsdóttir Ingibergur Árnason Ingimar Ingason Jón Halldór Eiríksson Jón Tryggvi Jóhannsson Sigríður Helgadóttir Stefán Jónsson Suzana Pavlova Valur Karl Pétursson Vilfríður Þorsteinsdóttir 40 ára Anna Birna Björnsdóttir Bryndís Olsen Dejan Kocic Gerða Björg Hafsteinsdóttir Guðrún Anna Jónsdóttir Harpa Halldórsdóttir Helga Lind Geirdal Magnúsdóttir Iðunn Pétursdóttir Jón Jónsson Mulugeta Sebhatleab Tesfay Sonja Berglind Hauksdóttir Titiana Doina Ioneti 30 ára Aldo Dagbjartur Lozano Andri Vigfússon Fouad Farouk Fouad Rezk Alla Guðrún Ásta Bjarnadóttir Hjördís Ýr Hjartardóttir Ingibjörg Sigr Hjartardóttir Ingvi Rúnar Júlíusson Jón Þór Guðbjörnsson Magnús Þór Jónsson Rakel Dröfn Sigurðardóttir Rannveig Jónína Guðmundsdóttir Serm Tangrodjanakajorn Þórey Gísladóttir Sunnudagur 95 ára Kristín Þorvaldsdóttir Sigrún Eyþórsdóttir 90 ára Pálína Magnúsdóttir Valgerður Hjörleifsdóttir 85 ára Alma L. Ágústsdóttir Erla Kristín Vilhelmsdóttir Helgi K Hjálmsson Hrólfur Pétursson Jósef Ólafsson Lára Bjarnadóttir Sigurður Gunnlaugsson 80 ára Haukur Eggertsson Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir Louise Kristín Theodórsdóttir Óskar Eggertsson Sigurbjörg Guðmundsdóttir Örn Svavar Garðarsson 75 ára Bryndís Bjelf Hörður Gunnarsson Jónas Jökull Hallgrímsson Kolbrún Svavarsdóttir Oddur Magnússon Sonja M. Granz 70 ára Guðbrandur Gíslason Guðmundur Konráðsson Jón G. Friðjónsson Jón Guðnason Margrét Jónsdóttir Marita Hansen Sveinbjörn Ragnarsson 60 ára Jenný Lára Jónasdóttir 50 ára Anna María Valdimarsdóttir Astrid Margrét Magnúsdóttir Atli Rúnar Arngrímsson Brynhildur Óladóttir Edda Björk Sigurðardóttir Eiríkur Indriði Bjarnason Elva Ósk Ólafsdóttir Guðrún Svava Hlöðversdóttir Halldór Jóhannsson Helga Guðrún Helgadóttir Helgi Ásmundsson Kristín Nielsen Ragnheiður I. Björnsdóttir Sigrún Árnadóttir Svandís Svavarsdóttir Þórunn Guðmundsdóttir 40 ára Arnbjörg Edda Stefánsdóttir Eva Ósk Eiríksdóttir Guðjón Þorsteinn Pálmarsson Kristinn Valgeirsson Kristín Einarsdóttir María Ingvarsdóttir Sigurgeir Runólfsson Þröstur Geir Árnason 30 ára Bjarni Axelsson Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir Daníel Ásgeir Ólafsson Elvar Már Guðbjartsson Guðrún Jóna Kristjánsdóttir Hlynur Friðfinnsson Iwona Hara Jón Hrafn Baldvinsson Jón Valur Einarsson Rosa Estrella Jaen Símon Örn Birgisson Svanlaug Ósk Ágústsdóttir Til hamingju með daginn Allt til listmálunar Strigar, penslar, olíulitir, acryllitir, trönur, pallettur, spaðar, svampar, lím, íblöndunarefni, varnish, þekjulitir, teikniblokkir, pappír og arkir Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Strigar, ótal stærðir frá kr.295 „SARA & ALMA“ Listmálunarstrigar, 58 stærðir frá 10x10cm til 150 x 195cm Acryllitir 75ml 555 Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 frá kr. Mikið úrval af listavörum Trönur á gólf frá kr. 7.995 Ný sending Þekjulitir/ Föndurlitir frá kr.845 Skissubækur frá kr.790

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.