Morgunblaðið - 23.08.2014, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014
Jón Rafn Valdimarsson
Lögg. fasteignasali
S. 695 5520
Borgartún 30a
Opið hús sunnudaginn 24. ágúst frá kl. 13-14
Stórglæsileg 163 fm lúxusíbúð á 5. hæð í lyftuhúsi
byggt af ÍAV og hönnuð með þægindi íbúa í huga.
Íbúðinni fylgir sérstæði í bílgeymslu. Lyfta opnast
beint inn í íbúðina. Stór stofa er skiptist í sjónvarps-
hol, setstofu og sólskála. Eldhús m. vönduðum
Brúnas innréttingum. Tvö svefnherbergi, annað
þeirra með sér bað- og fataherbergi. V. 59,9 millj.
Uppl. Jón Rafn, s. 695 5520.
Opið hús
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
Góð verslunarhæð, 260 fm brúttó.
Stórir verslunargluggar. Húsnæðið
er í góðu ástandi. Góð bílastæði
eru fyrir framan húsið. Húsnæðið
er til afhendingar strax. Hagstætt
leiguverð.
Nýtt 90 fm skrifstofuhúsnæði á 4.
hæð (efstu) í lyftuhúsi við
Cuxhavengötu. Húsnæðið er vel
innréttað, tvö lokuð vinnurými,
kaffistofa/fundarherbergi og opið
vinnurými. Útsýni. Merkt stæði
við húsið. Hagstætt leiguverð.
Upplýsingar um eignirnar
veitir Dan Wiium í síma 896 4013
ÁRMÚLI 17 - REYKJAVÍK
SUÐURHÖFNIN - HAFNARFIRÐI
Fasteignamiðstöðinn er með til sölu glæsilegt 37 herbergja hótel að Hofi í Öræfum rétt austan við Skaftafell.
Glæsilegur matsalur og setustofa þar sem gestir geta haft aðgang að þráðlausu netsambandi. Öll aðstaða mjög góð.
Miklir stækkunarmöguleikar. Hér er um að ræða hótel í mjög góðum rekstri. Náttúrufegurð öræfanna er engu lík og
því margt að sjá. Frábærir möguleikar fyrir allskonar útivist. Fasteignir og rekstur sem vert er að skoða. Nánari
upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar. Sjá einnig fasteignamidstodin.is
HÓTEL HOF I ÖRÆFUM
Það er ekki ofsagt að Polgar-systur, Susza, Sofia og þáeinkum sú yngsta, Judit,hafi breytt skákheiminum
er þær komu fram fyrir meira en
aldarfjórðungi. Judit Polgar, sem
hefur lýst því yfir að hún sé hætt að
tefla, sló eldri systrunum rækilega
við og náði hæst 8. sæti á heimslist-
anum sem var að öðru leyti skipaður
körlum. Að nokkrum ólympíumótum
undanskildum sniðgekk hún mót
kynsystra sinna. Samt var það sigur
í kvennaflokki Ólympíumótsins í Sa-
loniki haustið 1988 sem ruddi braut-
ina. Ungverska kvennasveitin vann
gullverðlaun og hin 12 ára gamla Ju-
dit Polgar dró í land 12 vinninga úr
13 skákum. Ný stjarna var komin
fram. Hún lét ekki staðar numið eft-
ir það og framganga hennar og af-
staða til kynskiptra móta gerbreytti
landslagi skákarinnar. Styrk-
leikamunur kvenna og karla er ekki
mikill í dag og þegar hefur komið
fram verðugur arftaki, kínverska
stúlkan Hou Yifan.
Frammistaða hennar kallaði ann-
að veifið fram umræðu um muninn á
kynjunum. Á þann vettvang hætti
sér nýlega heimsmeistarinn Magnús
Carlsen sem sagði einfaldlega að
karlmenn væru herskárri en konur.
Áreiðanlega margt til í því en hvað
Judit Polgar áhrærir virðast slík
ummæli næsta þversagnakennd.
Bobby karlinn Fischer hafði orð á
því við undirritaðan að Judit Polgar
væri mun herskárri en flestir koll-
egar hennar karlkyns. Hún þurfti
snemma að brynja sig gagnvart alls-
kyns belgingi karlanna og komst í
fréttirnar þegar Kasparov lét háðs-
leg ummæli falla um skák sem hún
tefldi við Karpov í Linares 1994. Síð-
ar í sama móti varð Garrí uppvís að
því að hafa tekið upp leik gegn Judit.
Það fór fram hjá skákdómurunum
en atvikið náðist á filmu.
Í Tromsö hlaut Judit 4 ½ vinning
af 6 mögulegum. Hún vann fjórar
fyrstu skákirnar en tapaði óvænt
fyrir Bandaríkjamanninum Shank-
land og tefldi ekki meira eftir það. Í
viðureign Ungverja við Venesúla
stóð hún afar tæpt og um tíma var
hún með tapað tafl; engu að síður er
skákin dæmigerð. Hún lét allt vaða í
byrjun tafls en andstæðingur henn-
ar varðist af stillingu. Þegar Judit
Polgar henti svo síðustu sprekunum
á eldinn sló skyndilega út í fyrir and-
stæðingi hennar og skemmtileg leik-
flétta réð úrslitum:
André Vargas – Judit Polgar
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. f4 Rge7
Einkennisleikur Taimanov-
afbrigðisins.
7. Rf3 b5 8. a3 Bb7 9. Bd3 Rg6 10.
O-O Dc7 11. Rg5 f6 12. Rh3 Bc5 13.
Kh1
O-O-O
Ekki beint verið að tefla uppá ör-
yggið. Eftir stutta hrókun á svartur
gott tafl.
14. Dh5 Rce7 15. De2 e5?!
Misráðinn leikur. Betra er 15. …
Hhf8 sem undirbýr framrás f-
peðsins.
16. fxe5 Rxe5 17. Rf4 h5 18. a4 g5
19. axb5!?
Lætur lítt að stjórn en mann-
fórnin gefur ýmis færi.
19. … gxf4 20. bxa6 Bc6 21. Bxf4
Hdg8 22. Bc4 Hg4 23. Rd5?!
Betra var 23. Bd5.
23. … Bxd5 24. Bxd5 Rxd5 25.
exd5 Kb8 26. Hf3 Ka8 27. h3 Hhg8?
28. d6!
Sennilega hefur Judit vanmetið
þennan öfluga leik.
28. … Dc6 29. hxg4! hxg4 30. Hc3
Hh8+ 31. Bh2 Dxd6 32. De4 Rc6
Nú þurfti hvítur aðeins að finna
einfaldan leik, 33. Hh3! Eftir 33. …
Hxh3 34. gxh3 g3 35. Bg1 er hvíta
staðan auðunnin.
33. g3?? Hxh2+! 34. Kxh2 Dd2+
– og hvítur gafst upp. Eftir
35.Kh1 kemur 35. … Dh6+! 36. Kg2
Dh3 mát!
Judit Polgar hættir
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Við félagarnir vorum
að hugsa um að fara
heilt maraþon. Skipta
því bróðurlega á milli
okkar og hlaupa í boð-
hlaupi. Spretthlaup-
arinn ég ákvað því að
taka æfingu fyrir átök-
in, enda lengri vega-
lengdir ekki mínir
hlaupaskór. Æfingin lá
niður að sjó meðfram
Sæbrautinni þar sem fleiri voru
greinilega að æfa sig. Allir hlaup-
arar sem ég mætti á leið minni með-
fram sjónum heilsuðu hressilega
„Góðan daginn“, „koma svo“, bros
og veif. Þetta hlýja viðmót bætti
mjög daginn minn og gerði hlaupið
auðveldara. Það var greinilegt að
hlaupurum á Sæbrautinni þennan
dag leið vel í eigin líkama.
Hreyfing er mikilvæg
Heilsan er það mikilvægasta sem
við eigum. Hvert og eitt okkar verð-
ur að hugsa um sína heilsu og þar er
lykilatriði að stunda einhverja hreyf-
ingu, hvort sem við erum í keppnis-
galla í Reykjavíkurmaraþoni, að
hlaupa fyrir gott málefni, ganga í
búðina eða eitthvað annað sem hent-
ar hverjum og einum. Það er annað
sem skiptir jafnvel meira máli en
hreyfing til að halda heilsunni; hollt
mataræði. Það minnkar líkur á lífs-
stílstengdum sjúkdómum sem hrjá
margan Íslendinginn, til dæmis
hjarta- og æðasjúkdómum. Einnig
er stress, kvíði og athyglisbrestur
dæmi um álagseinkenni sem geta
aukist með lélegu mataræði. Unnar
matvörur eru til dæmis lakari matur
og inniheldur gjarnan sykur, hveiti
og rotvarnarefni, en þessar vörur
eru að jafnaði ódýrari en þær sem
hollari eru.
Sykur, skattar og lýðheilsa
Með þetta í huga velti ég vöngum
yfir mögulegum afleiðingum þess að
afnema sykurskatt. Á sama tíma og
ljóst er að markvissari verð-
lagningaraðgerðir þyrfti til að draga
úr sykurneyslu í miklum mæli er
hugsunin á bak við
sykurskattinn í rétta
átt. Markmiðið er gott
en spyrja má hvort
skatturinn hefur náð
tilsettum árangri?
Hærra verð á sælgæti
og gosi heldur mér
a.m.k. svolítið fjær því
að velja þær vörur en
annars væri.
Það er ekki einungis
jákvætt heldur nauð-
synlegt að stefna að
betri árangri í lýð-
heilsumálum og í stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar er bætt lýðheilsa
og forvarnarstarf sett meðal for-
gangsverkefna. Með markvissum
aðgerðum á því sviði má draga úr
kostnaði fyrir samfélagið til fram-
tíðar og í raun ættu lýðheilsumark-
mið að vera þáttur í öllum stefnum
stjórnvalda. Aðgerðir til að draga úr
sykurneyslu eru þar mikilvægar og
sterkasta forvarnaraðgerðin á færi
stjórnvalda í því samhengi er mark-
viss lagasetning.
Umræða um hækkun virðisauka-
skatts á matvæli tengist einnig inn í
lýðheilsuumræðuna, þar sem varast
verður að matarkarfan hækki al-
mennt í verði á meðan sykur og
sykurvörur lækka hlutfallslega á
móti. Hættan á því að sykraðar mat-
vörur verði algengari í matarkörf-
unni vegna verðlags er raunveruleg
og með henni eykst hætta á lífs-
stílstengdum sjúkdómum sem getur
leitt til aukins kostnaðar fyrir sam-
félagið til lengri tíma litið.
Reykjavíkurmaraþonið er orðið
fastur þáttur í lífi margra og hefur,
með áherslu á að sem flestir geti
tekið þátt, lagt mikið til vakningar
um mikilvægi hreyfingar á undan-
förnum árum. Stjórnvöld þurfa að
vinna í sömu átt til þess að sem flest-
ir geti átt jafnan aðgang að hollu
mataræði og liðið vel í eigin líkama.
Til þess þarf að huga að lýð-
heilsumarkmiðum þegar stefnan er
mörkuð. Ég mun beita mér fyrir því.
Fíkniefnið sykur
Eftir Harald
Einarsson »Með markvissum að-
gerðum í þágu lýð-
heilsu má draga úr
kostnaði samfélagsins
til framtíðar.
Haraldur Einarsson
Höfundur er þingmaður Fram-
sóknarflokksins.
- með morgunkaffinu