Morgunblaðið - 23.08.2014, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014
✝ Regína Guð-rún Arngríms-
dóttir fæddist í
Reykjavík 11. apríl
1955. Hún lést á
Sjúkrahúsi Kefla-
víkur 1. ágúst
2014.
Foreldrar Reg-
ínu voru hjónin
Unnur Þórð-
ardóttir, f. 4.2.
1929, d. 19.1. 2012
og Arngrímur Guðjónsson, f.
14.5. 1927, d. 24.9. 1990. Systk-
ini Regínu eru Unnur Ragna,
d. 10.2. 2010, eftirlifandi maki
Franz Baar, búsettur í Kanada,
Ragnheiður Kristín, gift Magn-
úsi Óskarssyni, búsett í Noregi,
Arngrímur, kvæntur Sigrúnu
Sigríði Svavarsdóttur, Kol-
beinn, d. 15.3. 2011, eftirlifandi
maki Svanhvít Óladóttir. Upp-
eldissystir Regínu er Unnur
synina Leonharð Þorgeir Harð-
arson og Natan Elí Valtýsson.
2) Ólafur Jakob, f. 12.5. 1983, í
sambúð með Söndru Ellerts-
dóttur. Fyrir átti Regína dótt-
urina 3) Guðmundu Guðjóns-
dóttur, f. 19.7. 1972 og gekk
Þorgeir henni í föðurstað frá
eins árs aldri. Maki hennar er
Kristinn Brynjólfsson. Börn
þeirra eru Kristófer Andri, í
sambúð með Hólmfríði Mar-
gréti Benediktsdóttur, og Sara.
Fyrir á Kristinn dótturina Rak-
el. Regína og Þorgeir misstu
óskírða dóttur 2. júní 1974.
Regína stundaði margvísleg
störf um ævina. Hún vann við
afgreiðslu- og framreiðslustörf,
m.a. í Brauðbæ og Þjóðleik-
húskjallaranum, starfaði um
skeið sem dagmóðir en síðari
hluta ævinnar vann hún sem
verslunarstjóri vínbúða hjá
ÁTVR, í Holtagörðum, Graf-
arvogi, Skeifunni og Skútu-
vogi. Þegar hún lét af þessum
störfum, stofnaði hún eigið
ræstingafyrirtæki, sem hún
rak í nokkur ár.
Útför Regínu fór fram í
kyrrþey að hennar eigin ósk.
Arna Sigurð-
ardóttir, gift Karli
Víkingi Stef-
ánssyni. Systir
Regínu sammæðra
var Guðríður Ása
Matthíasdóttir, d.
6.11. 2003, eftirlif-
andi maki Sigurvin
Kristjónsson. Bróð-
ir Regínu sam-
feðra er Guðjón
Emil.
Regína giftist 8. nóvember
1973 eftirlifandi maka sínum,
Þorgeiri Baldurssyni, f. 17.7.
1952. Foreldrar Þorgeirs voru
Margrét Stefánsdóttir, f. 18.8.
1917, d. 9.3. 2014 og Baldur
Stefánsson, f. 22.8. 1920, d.
26.7. 2006. Börn Regínu og
Þorgeirs eru 1) Margrét, f. 9.8.
1975, í sambúð með Gísla Dan
Gíslasyni, sonur þeirra er Rík-
harður Dan. Fyrir á Margrét
Við förum ekki í þeirri röð sem
að við komum, eru orð að sönnu.
Hún mamma mín lést eftir
tveggja ára baráttu við krabba-
mein aðeins 59 ára gömul.
Mamma reyndist börnunum
mínum einstaklega vel, sýndi
þeim áhuga og stuðning. Krist-
ófer var ekki orðinn 2ja ára þegar
hann fór í hálfsmánaðar pössun til
ömmu sinnar og afa meðan við
Kristinn fórum í brúðkaupsferð.
Hún hjálpaði mér líka mikið þeg-
ar ég var í fósturskólanum, Krist-
ófer var alltaf velkominn. Sara
naut líka ástar ömmu sinnar sem
tók hana gjarnan með í bæjar-
ferðir og kom Sara þá ekki tóm-
hent heim. Þegar Rakel fór í As-
íuferðina sína í byrjun nóvember
á síðasta ári þá sendi mamma
hana með innpakkaða jólagjöf.
Þetta var lýsandi fyrir mömmu,
hún hugsaði fyrir öllu og enginn
skyldi verða útundan. Það var líka
alltaf gaman að hringja í mömmu
og segja frá góðum einkunnum
eða góðu gengi á íþróttavellinum,
því alltaf höfðu amma og afi mik-
inn áhuga og urðu svo stolt.
Mamma var sérstaklega vinnu-
söm og ósérhlífin kona. Í gamla
daga sat hún við saumavélina og
saumaði kjóla á okkur systur fyrir
flesta tyllidaga. Það voru fínar
systur sem mættu vel greiddar og
í eins kjólum í jólaboðin. Á
menntaskólaárum mínum var set-
ið fram á nótt við að sníða og
sauma árshátíðakjólana.
Mamma lagði alla tíð mikinn
metnað í að bjóða fólkinu sínu upp
á allt það besta í mat og drykk.
Þau voru ófá matarboðin sem við
fórum í til þeirra mömmu og
pabba. Það voru samstiga hjón
sem tóku á móti barnahópnum
sínum á jólunum á heimili sem
ávallt var skreytt af mikilli natni
og smekkvísi. Það var lýsandi fyr-
ir dugnaðinn í mömmu að þrátt
fyrir miklar annir í kringum jól í
áfengisversluninni var alltaf
margréttuð jólamáltíð á boðstól-
um með heimagerðu laufabrauði,
ís og smákökum. Það virtust
stundum vera fleiri klukkustund-
ir í hennar sólarhring en mínum.
Í fermingarundirbúningi Söru
veigraði mamma sér ekki við að
koma eftir vinnu, marga daga í
röð, til að aðstoða við þrif. Öll her-
bergi voru þrifin í hólf og gólf og
ekkert gefið eftir. Minningarnar í
kringum undirbúninginn eru mér
dýrmætar. Við bökuðum og
skreyttum saman marsípantertu í
Sóleyjarrimanum. Ég var ægi-
lega pirruð og fannst allt ómögu-
legt. Mamma hélt rónni og stapp-
aði í mig stálinu. Rétt áður en
veislan sjálf átti að hefjast kom í
ljós að rækjurnar á brauðtertun-
um voru skemmdar. Úrráðagóð
var mamma búin að skipa öllum í
hlutverk og nýjar brauðtertur
voru komnar á borðið rúmlega
klukkustund seinna. Þetta var
mamma, ekkert að tvístíga við
hlutina, algjört hörkutól.
Mamma og pabbi ferðuðust
víða. Það var ein af betri vikum
lífs míns þegar við Kristinn ásamt
Söru dvöldum með mömmu og
pabba á Tenerife. Þau hjónin voru
að byrja sína þriðju og síðustu
viku í vetrarfríi þegar að við birt-
umst óvænt. Eftirvæntingin eftir
að birtast þeim að óvörum var
gríðarleg. Þau hjón sátu úti á
svölum þegar við komum. Gleðin
varð mikil. Þessi vika er ógleym-
anleg. Fyrir þennan tíma er ég
óendilega þakklát.
Elsku mamma, fallegar minn-
ingar lifa.
Þín
Guðmunda.
Elskuleg stórasystir og mág-
kona hefur kvatt okkur allt of
snemma, eftir liðlega tveggja ára
baráttu við illkynjað mein. Hún
tókst á við veikindin eins og allt
annað í lífinu, með fádæma dugn-
aði og hörku. Slík viðbrögð ein-
kenndu hana alla tíð, hún var
forkur í öllu því sem hún þurfti að
fást við, og ætlaðist til hins sama
af samferðarfólki sínu.
Gína þurfti snemma að axla
mikla ábyrgð í lífinu og reyndist
yngri systkinum sínum sannköll-
uð stoð og stytta í uppvextinum.
Einkum voru náin bönd milli
hennar og yngri bræðranna, og
þau bönd áttu enn eftir að styrkj-
ast þegar fullorðinsárin tóku við,
og börn og barnabörn bættust í
hópinn. Gína leit ævinlega á það
sem sitt hlutverk að halda systk-
inahópnum saman og var iðin við
að hóa fólki saman. Hún var sér-
lega flink í eldhúsinu og við minn-
umst ótal sælustunda yfir kræs-
ingum sem hún galdraði fram.
Gína og Goggi reyndust okkur
einstaklega vel þann tíma sem við
bjuggum samtímis í Eyjum, und-
irbjuggu jarðveginn og auðveld-
uðu okkur að aðlagast nýju og
spennandi samfélagi. Eftir að
Gína og Goggi fluttu upp á land,
fórum við oft og iðulega í tjaldútil-
egur með þeim og Kolla heitnum
og Svanhvíti og sístækkandi
barnahópi. Í slíkum ferðum naut
Gína sín vel, hrókur alls fagnaðar
að venju, uppátektarsöm og hug-
myndarík.
Við leiðarlok erum við þakklát
fyrir samfylgdina við Gínu og allt
sem hún gerði fyrir okkur og dæt-
ur okkar. Samband Gínu og
Gogga var sérlega náið og fallegt,
þau tókust ávallt á við hlutina
sameinuð. Þess vegna hlýtur
missirinn að vera mikill og sár.
Við biðjum allar góðar vættir að
vaka yfir Gogga og börnunum
þeirra Gínu – stórum og smáum.
Vertu nú kært kvödd, elskuleg
– og hafðu þökk fyrir allt og allt.
Arngrímur og Sigrún
(Addi og Didda).
Við hjónin bjuggum í Vonar-
stræti, þegar ég kom heim frá
námi og nokkrum metrum frá
okkur var sjoppa í Tjarnargöt-
unni, sem við skutumst stundum
í. Þar afgreiddi einstaklega falleg
og sjarmerandi stúlka, sem eftir
var tekið. Einn góðan veðurdag
kynnti svo Þorgeir bróðir minn
þessa stúlku, Regínu, fyrir okkur
sem unnustu sína. Síðan hefur
hún Gína verið í fjölskyldunni þar
til hún varð að lúta í lægra haldi
fyrir vágestinum mikla nú á miðju
sumri.
Það var gaman að kynnast
kraftinum og ákveðninni í henni
Gínu, hún hafði skoðanir á öllum
hlutum og lá ekkert á þeim.
Stundum fannst manni hún full-
dómhörð á menn og málefni og
þegar hún hafði bitið eitthvað í sig
varð henni ekki auðveldlega þok-
að. Hún var glaðlynd, hress og
mikil fjölskyldukona. Þau Þorgeir
eignuðust þrjú börn, það fyrsta
lést innan sólarhrings frá fæðingu
en seinna komu Margrét og Ólaf-
ur Jakob í heiminn, löngu orðin
fullorðin og fær í flestan sjó. Gínu
fylgdi svo lítil eins árs hnáta, þeg-
ar þau Þorgeir hófu sambúð, Guð-
munda hét hún, og gekk Þorgeir
henni í föðurstað frá fyrsta degi.
Við hjónin og fjölskyldan nut-
um góðs af myndarskap Gínu,
hún var röggsöm húsmóðir í alla
staði og lagði mikið upp úr því.
Engu að síður komst hún yfir að
vinna ýmis störf utan heimilisins.
Hún réð sig um tíma til starfa hjá
okkur hjónum meðan börnin okk-
ar voru lítil og mikil vinna hvíldi á
okkur. Þá kynntumst við öllum
kostum hennar enn betur. Þau
Þorgeir hófu búskap í kjallaran-
um hjá foreldrum okkar bræðra í
Hófgerðinu og voru einstaklega
samrýmd hjón,sem fylgdust að í
lífi og starfi. Já, líka í starfi, því
þau störfuðu lengst af bæði hjá
sama fyrirtækinu, Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins. Þorgeir
varð verslunarstjóri vínbúðarinn-
ar í Vestmannaeyjum og Gína
starfaði þar líka. Þau bjuggu í
Eyjum í sex ár og minntust þeirra
ára oft með eftirsjá og ánægju.
Eftir að þau komu aftur til
Reykjavíkur var vart til sú vín-
búð, sem ekki naut krafta þeirra
því bæði urðu verslunarstjórar,
hún amk.í fjórum vínbúðum. Hún
valdist til ýmissa trúnaðarstarfa
og forystu í félagsmálum innan
fyrirtækisins. Þau Þorgeir ferð-
uðust mikið saman, bæði innan-
lands- og utan og voru þá utan-
ferðirnar oftar en ekki starfs-
tengdar, þar sem þau heimsóttu
vínframleiðendur og fyrirtæki í
mörgum helstu vínyrkjulöndum
Evrópu.
Eftir að Gína lét af störfum hjá
ÁTVR, stofnaði hún eigið ræst-
ingafyrirtæki, sem þau hjón starf-
ræktu ásamt syni sínum í nokkur
ár. Þá festu þau kaup á húsi suður
með sjó, nánar tiltekið í Garðin-
um. Kom þetta okkur flestum á
óvart en þau sögðust vera að láta
gamlan draum rætast með því að
búa úti á landi. Þar ræktuðu þau
garðinn sinn með glæsilegum ár-
angri, máluðu málverk, stundum
unnu þau bæði að sama málverk-
inu, fengu sér hund og undu glöð
við sitt. Draumurinn hafði ræst.
Við minnumst Gínu með sökn-
uði, minnumst sjálfstæðis hennar,
atorku og umhyggju. Við Tóta og
fjölskyldan sendum Þorgeiri,
börnum og tengdabörnum inni-
legar samúðarkveðjur vegna
ótímabærs fráfalls Regínu. Bless-
uð sé minning hennar.
Stefán Baldursson.
Regína Guðrún
Arngrímsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Ástkær móðir mín, amma og tengdamóðir,
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR BUCH,
Einarsstöðum, Reykjahreppi,
lést miðvikudaginn 20. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Jón Þór Ólason, Elín Björg Harðardóttir,
Tryggvi Garðar Jónsson,
Arna Sif Jónsdóttir.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
REYNIR KRISTINN GUÐMUNDSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
mánudaginn 18. ágúst.
Útför hans fer fram frá Landakotskirkju
mánudaginn 25. ágúst kl. 15.00.
Björg Hauksdóttir,
Ásta Björg Reynisdóttir, Magnús Már Nilsson,
Friðrik Þór Reynisson, Hrönn Haraldsdóttir,
Katrín, Þórey Sesselja, Emil, Máni og Freyja,
Ástráður Guðmundsson, Erlín Óskarsdóttir,
Gunnar F. Guðmundsson.
✝
Móðir okkar, systir, amma og langamma,
SÓLEY NJARÐVÍK INGÓLFSDÓTTIR,
lést mánudaginn 18. ágúst.
Jarðarförin fer fram í Grafarvogskirkju
þriðjudaginn 26. ágúst kl. 13.00.
Erla Hafdís Steingrímsdóttir,Eiríkur Jón Ingólfsson,
Bergþór Heimir Þórðarson, Ingólfur Njarðvík Ingólfsson,
börn og barnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HRAFNHILDUR GUÐBRANDSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Ísafold,
áður Engimýri 7,
Garðabæ,
lést sunnudaginn 17. ágúst.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
miðvikudaginn 27. ágúst kl. 15.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á minningarsjóð hjúkrunarheimilisins Ísafoldar.
Reikningsnúmer: 318-13-405034. Kt. 580699-2519.
Sigríður Dísa Gunnarsdóttir, Gunnar Einarsson,
Gunnar Hrafn R. Gunnarsson, Rósa Þóra Magnúsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON,
Vallarbraut 6,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 18. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
þriðjudaginn 26. ágúst kl. 14.00.
Elísabet Vigfúsdóttir,
Vignir Guðmundsson, Jadvyga Usvaltiene,
Ásthildur Guðmundsdóttir, Hafsteinn Benediktsson,
Ingvar Guðmundsson, Sólveig Þorsteinsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elsku eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
LÚÐVÍG BJÖRN ALBERTSSON
viðskiptafræðingur,
Geitlandi 2,
Reykjavík,
sem andaðist á hjartadeild Landspítalans
föstudaginn 8. ágúst verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju miðvikudaginn 27. ágúst
kl. 13.00.
Kristjana Halldórsdóttir,
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, Anna Dóra Sæþórsdóttir,
Albert Björn Lúðvígsson, Sigrún Sandra Ólafsdóttir,
Grímur Ingi Lúðvígsson,
Sunna, Ýmir og Lovísa Halldórsbörn og
Iðunn Júlía og Arndís Stella Albertsdætur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÚDITH JÓNSSON,
Vorsabæ, Hveragerði,
síðast Frumskógum 2 í Hveragerði,
lést á Borgarspítalanum sunnudaginn
10. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hjördís Júdithardóttir,
Sólveig D. Ögmundsdóttir, Bjarni Frímann Karlsson,
Anna María Ögmundsdóttir, Guðm. Gylfi Guðmundsson,
Jón Ögmundsson, Elín Harpa Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.