Morgunblaðið - 23.08.2014, Side 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2014
✝ Páll Axel Hall-dórsson fæddist
í Króki í Gaulverja-
bæjarhreppi 24.
október 1928. Hann
lést á hjúkr-
unardeildinni Foss-
heimum á Selfossi
9. ágúst 2014.
Foreldrar hans
voru Halldór
Bjarnason bóndi, f.
1888, d. 1988, og
Lilja Ólafsdóttir húsmóðir, f.
1892, d. 1974.
Systkini Páls Axels eru Stefán
Helgi, f. 1917, d. 1991, Bjarni, f.
1918, d. 2006, Ólafur, f. 1920, d.
2013, Ingibjörg, f. 1922, Guð-
finna, f. 1924, d. 1988, Bjarni, f.
1926, d. 1957, Gísli, f. 1931, d.
2013, Guðmundur, f. 1933, Helga
María, f. 1936.
Páll Axel kvæntist Höllu Magn-
úsdóttur frá Skúfslæk, f. 1934,
þann 15. apríl 1956. Foreldrar
hennar voru Magnús Eiríksson
bóndi, f. 1894, d. 1992, og Guð-
ríður Ingibjörg Gísladóttir hús-
móðir, f. 1899, d. 1973. Þau
bjuggu lengst af sínum búskapar-
árum í Syðri-Gróf í Villingaholts-
hreppi. Börn þeirra eru: 1) Mar-
grét Pálsdóttir, búsett í
Grindavík, f. 1954. Fyrrverandi
eiginmaður, Vilberg Magnús Ár-
1987. Sambýliskona Elísabet
Thorsteinson, f. 1991. Barn: Lilja
María Axelsdóttir, f. 2012. e)
Hjalti Einarsson, f. 1989. Sam-
býliskona Hanna Björk Kristjáns-
dóttir, f. 1991. f) Irena Bylgja Ein-
arsdóttir, f. 1993. Sambýlismaður
Elí Kristberg Hilmarsson, f. 1993.
3) Bjarni Pálsson, búsettur í
Syðri-Gróf, f. 1958. Sambýliskona
Alda Stefánsdóttir, f. 1965. Börn
hennar: Björg Jónsdóttir, f. 1990,
Jóhann Jónsson, f. 1993. Fyrrver-
andi sambýliskona Bjarna, Åsa
Viktoría Dalkarls, f. 1968. Börn:
Ída Bjarnadóttir, f. 1993, Halldór
Bjarnason, f. 1996. 4) Guðríður
Ingibjörg Pálsdóttir, síðast búsett
á Reykjum, f. 1960, d. 1998. Eig-
inmaður Rúnar Þór Bjarnason, f.
1956. Börn: a) Vaka Rúnarsdóttir,
f. 1981. Eiginmaður Magnús
Thorlacius, f. 1979. Börn: Viktor
Thorlacius, f. 2004, Rúnar Örn
Thorlacius, f. 2008. b) Halla Rún-
arsdóttir, f. 1984. Sambýlismaður
Bjarni Gunnar Jóhannsson, f.
1985. Barn: Ingibjörg Bjarna-
dóttir, f. 2014. c) Bjarni Rún-
arsson, f. 1989. 5) Magnús Halldór
Pálsson, búsettur í Kópavogi, f.
1978. Eiginkona Anna Sjöfn
Skagfjörð Rósudóttir, f. 1983.
Barn: Áróra Ingibjörg Magn-
úsdóttir, f. 2009.
Útför Páls fór fram í kyrrþey.
mannsson, f. 1953.
Börn: a) Halla Vil-
bergsdóttir, f. 1976.
Börn: Arna Margrét
Hölludóttir, f. 1995,
Ástþór Andri Höllu-
son, f. 1999, Vilberg
Darri Gunnarsson, f.
2004. b) Páll Axel
Vilbergsson, f. 1978.
Sambýliskona Mar-
grét Birna Valdi-
marsdóttir, f. 1985.
Börn: Gísli Matthías Eyjólfsson,
uppeldissonur, f. 2007, Ásdís Vala
Pálsdóttir, f. 2012. c) Ármann Örn
Vilbergsson, f. 1985. 2) Lilja Páls-
dóttir, búsett í Þorlákshöfn, f.
1955. Eiginmaður Einar Ingi
Reynisson, f. 1952. Börn: a) Þór-
arinn Grettir Einarsson, f. 1975.
Eiginkona Margrét Rannveig
Halldórsdóttir, f. 1979. Börn:
Halldór Freyr Grettisson, f. 2002,
Elísabet Lilja Grettisdóttir, f.
2006, Þórdís Birna Grettisdóttir,
f. 2009, Einar Ottó Grettisson, f.
2012. b) Óttar Reynir Einarsson,
f. 1978. Sambýliskona Klara
Jenný Sigurðardóttir, f. 1984.
Barn: Benjamín Óliver Óttarsson,
f. 2011. c) Ingunn Brynja Ein-
arsdóttir, f. 1983. Eiginmaður
Fannar Jónsson, f. 1979. Barn:
Snædís Birta Fannarsdóttir, f.
2008. d) Axel Páll Einarsson, f.
Elsku pabbi. Mikið er erfitt að
hafa sig í það að setjast niður og
skrifa þessa kveðju til þín. Síð-
ustu daga hafa minningarnar,
ljúfsárar, streymt fram eirðar-
laust. Mér er sérstaklega minn-
isstætt hvað þú varst alltaf hlýr
og góður. Þó þú værir stundum
strangur, varstu aldrei ósann-
gjarn. Þegar á reyndi varstu
traustur, enda fann ég að ég gat
alltaf leitað til þín þegar ég þurfti
á því að halda. Eftir að ég sjálfur
varð faðir verður mér æ oftar
hugsað til þeirrar góðu æsku sem
þið mamma bjugguð mér og það
hefur veitt mér ómetanlegan
styrk í foreldrahlutverkinu.
Þegar ég var barn varst þú
nánast óþreytandi að lesa fyrir
mig á kvöldin. Þetta varð fastur
liður í svefnrútínunni minni og
enn þann dag í dag kann ég illa
við að sofna án þess að rýna í
nokkur orð af prenti. Ég man þó
eftir samningaviðræðum þegar
þú varst orðinn leiður á að lesa
sömu bækurnar aftur og aftur og
vildir breyta aðeins til. Rasmus
Klumpur var til dæmis svo ger-
samlega gegnumlesinn að ég
kunni textann orðið utan að, án
þess að geta lesið stakt orð sjálf-
ur. Ef þú mismæltir þig var ég
fljótur að leiðrétta.
Þú hafðir gaman af öllu ung-
viði, hvort sem það voru dýra-
eða mannanna börn. Þú eyddir
oft tímunum saman í að æsa upp
kettlinga niðri í kjallara, eða
klóra litlum lambhrútum á horn-
unum og kenna þeim að stanga.
En skemmtilegast af öllu fannst
þér að æsa upp börn. Svefntím-
anum mínum fylgdu oft mikil
ærsl og eltingaleikur sem við
kölluðum bangsaleik. Svefngals-
inn keyrði úr öllu fram og það var
mikið hlegið. Mikið var líka gam-
an að fylgjast með samskiptum
þínum við hana Áróru Ingibjörgu
mína. Hún er bara rétt tæplega
fimm ára, en ég veit að hún mun
muna þig alla sína tíð.
Áður en ég fór að geta hjálpað
til við mjaltirnar fylgdi ég þér oft
út í fjós og þú hafðir lag á að hafa
ofan af fyrir mér. Þá skiptumst
við gjarnan á að spinna upp lang-
ar bullsögur og kölluðum það „að
segja lygasögur“. Hver saga
þurfti að toppa þá næstu á undan
og stundum þurfti maður góðan
umhugsunarfrest fyrir næsta
innlegg. Eitt sinn sagðirðu mér
frá því að það væri dvergahöll í
fjósinu eða í hlöðunni, en það
væri ekki auðvelt að finna hana
því þeir beittu hulinsgaldri til að
fela hana. Ég er ekki viss hversu
löngum tíma ég eyddi í að leita að
dvergaríkinu og ég var orðinn
vandræðalega gamall þegar ég
gerði mér grein fyrir að hún væri
(líklega) ekki til. Ég sé samt ekki
eftir einni mínútu sem fór í leitina
og ég sé höllina ennþá fyrir mér
ljóslifandi þegar mér verður
hugsað heim í Syðri -Gróf.
Ég sakna þess tíma þegar við
fórum í veiðitúra eða á hestbak, í
stuttan bíltúr eða í ferðalag. Þeg-
ar við settumst niður og ræddum
saman um allskonar, eða fórum
að Króki og þið Gísli ferðuðust
aftur í tímann með fortíðarþrána
blikandi í augunum. Þegar þú
kíktir stundum óvænt í kaffi til
mín á Selfossi. Þegar þú kenndir
mér að spila spil með miklum til-
þrifum. Hvernig þú fræddir mig
um umhverfið í kringum okkur,
nöfn fuglana, sögu landsins,
hvernig heimurinn snýst og virk-
ar. Ég mun sakna þín alltaf og
ávallt.
Magnús Halldór Pálsson.
Elsku afi, maður fæðist, maður
lifir, maður deyr, þetta er hin
sorglega hringrás lífsins.
Elsku afi, ég hef aldrei verið
mikið fyrir kveðjustundir, en nú
er því miður komið að því. Ég hef
alla tíð aðeins átt einn afa í hinu
lifandi lífi og mér finnst ótrúlega
erfitt að ég þurfi að kveðja og
eiga núna engan. En ég trúi því
svo heitt að þú sért kominn á góð-
an og betri stað sem einkennist af
nægu píputóbaki, kaffi, veiði,
góðum mat og fínpússuðu
hvannarótarbrennivíni sem þú
verður ekki veikur af. Nóg af
prakkarastrikum, kettlingum og
hlátri. Ég á eftir að sakna þín
endalaust, elsku afi minn, ég á
eftir að sakna húmorsins og
þeirra sagna sem þú sagðir mér.
Ég er með hnút í maganum yfir
að hafa ekki getað tekið þig í veiði
eins og ég ætlaði mér áður en þú
varðst svona veikur, en ég held
fast í þær minningar sem við átt-
um þrátt fyrir eftirsjá. Ég vona
að þú verðir alltaf stoltur af mér,
afi, og getir glott við tönn þegar
ég skelli mér í beislituðu buxurn-
ar mínar sem þér fannst svo aga-
lega ljótar. Ég elska þig að eilífu.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þitt barnabarn,
Hjalti Einarsson.
Elsku afi minn. Þegar kemur
að kveðjustund rifjast upp marg-
ar góðar minningar og þær eru
ófáar þegar hugurinn reikar til
baka og ég var í sveitinni hjá þér
og ömmu í Syðri-Gróf. Alltaf
hlakkaði ég til að komast í sveit-
ina að vori og vonaði að ég missti
nú ekki alveg af sauðburðinum
það árið. Ég man hvað mér
fannst spennandi að komast í
fjósið, læra að mjólka, gefa kálf-
unum og skera stabbann. Þessar
stundir eru ljóslifandi í huga mér
og það liggur við að ég finni pípu-
ilminn þegar ég rifja upp stund-
irnar sem við áttum saman.
Ég man líka hvað þú gast
hlaupið hratt. Rúmlega sextugur
varstu enn að stinga mig af í
spretthlaupi. Ég var þá ungling-
ur og þú meira að segja á inni-
skónum. Ég held að þú hafir ver-
ið sprettharðasti afi á gervallri
jörðinni. Allavega leið mér þann-
ig þá. Og sá stríðnasti. Hláturinn
þinn þegar þú varst að stríða
okkur, plata okkur til að pota í
rafmagnsgirðingar eða segja
gamansögur var alveg einstakur.
Þú kenndir mér ýmislegt í
gegnum tíðina, eitt af því var að
keyra traktor. Og Lödu Sport;
sem er líka hálfgerður traktor.
Og þú passaðir alltaf upp á að
fara yfir öll öryggisatriðin áður
en þú hleyptir mér af stað og
fylgdist með mér úr fjarska. Einu
sinni þurftirðu að sækja mig út í
kartöflugarð þar sem ég var bú-
inn að kolfesta gamla Zetorinn
þinn í einhverjum drullupolli með
skítadreifarann. „Er þetta svona
anskoti blautt?“ sagðirðu þegar
þú komst og bjargaðir mér úr
vandræðunum.
Nú eru elstu börnin mín aðeins
búin að kynnast sveitinni og
finnst hún ákaflega spennandi.
En hún verður ekki eins án þín,
en þá geymir maður minningarn-
ar um góðan mann sem kenndi
manni að vera blíður og þolin-
móður við skepnurnar, samvisku-
samur við störfin sín og góður við
þá sem standa manni næst.
Bestu kveðjur af malbikinu
Grettir Einarsson, Margrét
Halldórsdóttir, Halldór
Freyr, Elísabet Lilja, Þórdís
Birna og Einar Ottó.
Elskulegi afi minn. Axel afi var
eini afi minn sem ég náði að
kynnast en hann stóð sig svo
sannarlega eins og hetja í hlut-
verkinu. Það var svo margt við
hann afa minn sem ég elskaði.
Hann var alltaf svo skemmti-
legur, fyndinn og var hann alveg
einstaklega stríðinn. Alveg frá
því að ég var pínulítil sagði hann
mér brandara og stríddi mér ör-
lítið með, ég kom brosandi til
hans og fór brosandi frá honum.
En svona man ég best eftir hon-
um afa mínum, honum tókst allt-
af að láta mér líða vel og hlæja.
Öll augnablikin sem við áttum
saman eru mér endalaust kær.
Hann var alltaf svo hlýr og
góður við alla í kringum sig. Mér
fannst ég ekki geta beðið um
betri afa og alveg fram að síðustu
stundunum okkur saman vissi ég
að það var þannig, hann gat ekki
verið betri.
Hann var alltaf svo fróður en
ég gat setið hjá honum tímunum
saman og hlustað á hann segja
mér gamlar sögur og allskonar
fróðleik. Hann afi minn vissi svo
ótrúlega margt og var mikil viska
sem hann gaf af sér. Ég verð hon-
um ævinlega þakklát fyrir það.
Elsku afi minn, hann var ynd-
islegur maður með fallegt hjarta.
Ég dýrkaði hann og dáði og ég
mun elska hann og muna allt það
góða sem hann færði mér alla
mína ævi.
Takk fyrir allt, elsku afi minn.
Minning þín er ljós í hjarta mínu.
Þín afastelpa,
Írena Bylgja Einarsdóttir.
Páll Axel Halldórsson
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
önnumst við alla þætti
þjónustunnar
Þegar
andlát ber
að höndum
Með virðingu og umhyggju að leiðarljósi
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
✝
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU HEIÐRÚNAR EYJÓLFSDÓTTUR
frá Seyðisfirði,
áður til heimilis á Framnesvegi 62,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar V-3 á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund fyrir einstaka alúð og umhyggju.
Valgerður Halldórsdóttir, Helgi H. Steingrímsson,
Sigríður Halldórsdóttir, Gylfi Þorkelsson,
Óli Friðgeir Halldórsson, María Björk Daðadóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, fósturföður, afa, langafa og
langalangafa,
ÁRNA THEODÓRSSONAR,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund.
Þórður Grétar Árnason, Vigdís Hjartardóttir,
Hinrik Ingi Árnason, Oddný Steingrímsdóttir,
Sigurður Þórarinn Árnason, Hafdís Jónsdóttir,
Emanúel Júlíus Ragnarsson,
Jófríður Ragnarsdóttir,
Guðlaugur Björn Ragnarsson, Rósmarý Bermann
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar og tengdamóður,
LÁRU KRISTÍNAR SAMÚELSDÓTTUR,
Vatnsstíg 14,
Reykjavík.
Stefán G. Þórarinsson,
Þórarinn Stefánsson, Jórunn Pálsdóttir,
Ragnhildur Stefánsdóttir, Friðrik Örn Weisshappel,
Margrét Stefánsdóttir,
Lára Stefánsdóttir, Guðni Franzson
og fjölskyldur.
✝
Þökkum af einlægni fyrir hlýhug og fallegar
kveðjur vegna andláts og útfarar ástkærs
föður okkar og tengdaföður,
BALDURS HALLDÓRSSONAR
skipasmiðs,
öldrunarheimilinu Hlíð,
áður Hlíðarenda.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Asparhlíðar
fyrir ljúfa og góða umönnun.
Ingvar Baldursson, Jónína Valdimarsdóttir,
Ólafur Lárus Baldursson, Jóhanna L. Árnadóttir,
Baldur Örn Baldursson, María Arnfinnsdóttir,
Halldór Guðmundur Baldursson, Anna Katrín Þórsdóttir,
Sigurður Hólmgeir Baldursson, Hildur Magnúsdóttir,
Ingunn Kristín Baldursdóttir, Helgi Pálsson.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson