Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 2
Kristín Larsdóttir Dahl nemi er orðin sérfræð- ingur í flóamörk- uðum Kaupmanna- hafnar. Þar kaupir hún vandaða fylgihluti og flest sín uppáhaldsföt. Tíska 34 Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 „Mér finnst ólíklegt að stórt gos sé í vænd- um. Ég reyni að fylgjast ekki of mikið með fréttum af gosi en það er erfitt að komast hjá því á Facebook.“ Eiður Ben Eiríksson „Ég svara eins og fræðingarnir og segi bara: Ég hreinlega veit það ekki. En, jú, það gæti al- veg eins verið. Manni finnst eins og hreinlega allt geti gerst hérna.“ Gylfi Guðmundsson „Maður á erfitt með að átta sig á hvort það var gos eða ekki. Það er dálítið víð spurning hvort það sé stórt gos í vændum en ég held nú ekki í nánustu framtíð.“ Anna Daníelsdóttir Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. „Nei, ég held nú ekki. Maður fylgist alltaf með fréttum af þessu annað slagið en ef eitt- hvað gerist vonar maður bara að það muni ekki trufla flugumferð.“ Þóra Ólafsdóttir Morgunblaðið/Styrmir Kári SPURNING DAGSINS ER STÓRT ELDGOS FRAMUNDAN Á ÍSLANDI? Matreiðslumeistarinn Úlf- ur Uggason segir algengt að fólk ofmeti tímann sem þarf til að elda fisk. Þegar við höldum að nokkrar mínútur vanti upp á eldun er fiskurinn yfirleitt tilbú- inn nú þegar. Matarboð 30 Í BLAÐINU Hve margir heita algengustu nöfnunum? Heimild: Hagstofan JÓNUM OG GUNNUM FÆKKAR Jón Guðrún 2005 2005 2013 2013 5.538 5.324 5.191 4.920 Áttu minningar um Latabæ sem barn? „Já, og þær eru mjög margar. Ég hlustaði mikið á Latabæjarútvarpið og lagið Megabæt sem Goggi Mega syngur var í miklu uppáhaldi. Ég sá þó aldrei leikritið á sviði en horfði oftsinnis á það á spólu og auðvitað þættina líka.“ Hver er mesta áskorunin við það að leika Sollu stirðu? „Mann langar að standa undir væntingum allra þeirra sem eru aðdáendur Sollu stirðu og til að gera það þarf maður að vera mjög vel upplagður fyrir hverja sýn- ingu, halda uppi rétta andanum og þessari gleði sem er í sýningunni. Svo er líka mjög erfitt að syngja og dansa í einu og það þol þarf að æfa vel upp svo maður sé ekki móður og másandi. Ætli ég fari ekki út að hlaupa eftir æfingar og reyni þá að syngja í leiðinni!“ Hefurðu áhuga á að leggja leiklistina fyrir þig eða áttu mörg hugðarefni? „Leikhúsið er ótrúlega spennandi og alltaf þegar ég er búin að upplifa þessa ótrúlega góðu tilfinningu af því að standa á sviðinu hugsa ég strax að mig langi að gera þetta aftur. Sú tilfinning togar í mig en það kemur einnig margt annað til greina. Mér finnst gaman að skrifa, dansa, hef áhuga á hönnun og ýmsu listatengdu svo að kannski enda ég í einhverju allt öðru. Svo elska ég að vera á hest- baki og ætla kannski að kaupa mér hest fyrir leikhúslaunin.“ Hvaða íslensku leikarar veita þér innblástur? „Ég gæti nefnt ótalmarga en þeir fyrstu fjórir sem koma upp í hugann eru Hilmir Snær Guðnason, Saga Garð- arsdóttir, Selma Björnsdóttir og Kristbjörg Kjeld.“ Hver er galdurinn á bak við það að fara í gegnum leiksýningu og gera það með glans? „Galdurinn er að fara inn á sviðið, hafa gaman og meina það frá hjartanu. Slíkt skilar sér til áhorfenda. Ef maður nýtur þess sjálfur og er með hjartað í sýningunni er það ekkert mál.“ Ertu sælgætisgrís eða gulrótaræta? „Innst inni er ég algjör sælgætisgrís en dagsdaglega fær skynsemin að ráða enda skynsamlegra vilji maður lifa lengur og njóta góðrar heilsu. Þetta liggur hins vegar í genunum og ég veit ekkert betra en súkkulaði.“ Áttu lífsmottó? „Að fara varlega en djarflega í lífinu og lifa lífinu til hins ýtrasta. Og ég vil lifa eftir því sem langamma mín, Ester Benediktsdóttir, segir gjarnan: Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári MELKORKA DAVÍÐSDÓTTIR PITT SITUR FYRIR SVÖRUM Langar í hest fyrir leikhúslaunin Nýir púðar, fallegt teppi eða öðruvísi ljós geta gert mikið til að lífga upp á svefn- herbergið. Mjúkir litir og hlýleg efni skapa réttu stemn- inguna fyrir þetta aðalherbergi heim- ilisins. Hönnun 24 Melkorka Davíðsdóttir Pitt leikur Sollu stirðu í uppfærslu Þjóðleikhússins á Ævintýrum í Latabæ. Melkorka fæddist árið 1997 og er á öðru ári á málabraut við Menntaskólann í Reykjavík. Mel- korka lék tíu ára gömul í sinni fyrstu stóru leiksýningu, Kardimommubænum, og af öðrum stórum leiksýningum sem hún hefur leikið í má nefna Ólíver, Galdrakarlinn í Oz og Fyrirheitna landið. Tónlistarkennarinn Björgvin Þ. Valdimarsson safnaði sér sjálfur og náði að kaupa sitt fyrsta píanó fimm- tán ára gamall. Kennslubækur hans í píanóleik hafa verið notaðar af ung- um tónlistarnemendum hér á landi í rúman aldarfjórðung. Bækur 50

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.