Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014
Tíska
S
íðastliðið haust fékk ég til liðs við mig mjög öflugan sam-
starfsmann, Steinunni Jónsdóttur, og við settumst niður
og ákváðum að fara alla leið með litla en kröftuga mokka-
skinnsfatalínu og hafa óhefðbundinn og nýstárlegan vinkil
á henni,“ segir Sigríður Sunneva, eða Sunneva eins og hún er köll-
uð, sem hannar fallegar mok-
kaskinnskápur úr alíslensku
hráefni. Sunneva hefur und-
anfarin ár lagt áherslu á að
sérhanna mokkafatnað fyrir
viðskiptavini sína en hún
lærði fatahönnun við Poli-
moda-tískuháskólann á Ítalíu
og sérhæfði sig þar í hönnun
úr skinni og prjónaefni.
Nýja línan ber yfirheitið
Veðrabrigði og segir Sunneva
flíkur línunnar endurspegla ís-
lenskt veðurfar.
„Í upphafi hönnunarferl-
isins veltum við fyrir okkur
hvað væri sameiginlegt
áhugamál Íslendinga og
þeirra hjartans mál og djúpt í
þjóðarvitundinni. Við komumst fljótt að þeirri niðurstöðu að það
væri íslenska veðurfarið,“ segir Sunneva og bætir við að Íslend-
ingar eigi ógrynni af fallegm orðum yfir veðrið.
„Það má því segja að þessi lína sé óður til íslenskra veðra-
brigða.“
Línan skiptist í Muggu, Golu og Dembu sem eru undirflokkar
og gefa til kynna í hvaða veðri flíkin nýtist best.
„Mugga er að stærstum hluta úr mokkaskinni, Gola
er léttari flík úr mokka og prjónaefni frá Volka og Demba er úr
mokka og vaxefni og þar af leiðandi vatnsheld,“ útskýrir Sunneva.
„Grunnhráefnið í línunni er sem sagt mokkaskinnið en nýjungin
felst í því að tvinna saman við það þessi ólíku hráefni í þeim til-
gangi að létta fíkina og gera hana að meiri heilsársflík.“
Jakki úr línunni Muggu sem byggist aðallega á mokkaskinni. Mokkajakkarnir úr undirlínunni Golu eru sérlega léttir og litríkir.
FATAHÖNNUÐURINN SIGRÍÐUR SUNNEVA
R. VIGFÚSDÓTTIR SENDI NÝLEGA FRÁ SÉR
EINSTAKA FATALÍNU ÚR MOKKASKINNI OG ULL
SEM ER INNBLÁSIN AF ÍSLENSKU VEÐURFARI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Einstakur jakki úr undirlínunni Golu.
Sigríður Sunneva hefur lengi unnið
með íslenskt mokkaskinn.
Morgunblaðið/Ómar
Jakki úr línunni Dembu; vatnshelt vaxborið mokkaskinn.
Fatalínan Veðrabrigði skiptist í þrjár undirlínur; Muggu, Golu og Dembu, sem allar hafa sína sérstöðu.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Demba hentar einnig á sumrin. Hlý, vatnsheld og falleg lína.
Á vefsíðu sunnevadesign.is er hægt að sjá fleiri ljósmyndir af
Veðrabrigðum.
NÝJAR OG SPENNANDI ÚTFÆRSLUR
Á MOKKASKINNI
Óður til
íslenskra
veðrabrigða