Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 19
Morgunblaðið/Heiddi 31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Í Singapúr er tíðni ungbarnadauða afar lág á sama tíma og íbúar borgríkisins búa við mikið langlífi eða 84,38 ár að meðaltali sam- kvæmt upplýsingum sem er að finna í staðreyndasafni bandarísku leyniþjónustunnar (e. CIA World Factbook). Aðeins íbúar Mónakó, Macau og Japans geta búist við að lifa lengur en íbúar Singapúr. Heil- brigðiskerfið þar þykir meðal þeirra skilvirkustu og bestu í heimi. Um 80% íbúanna nota op- inbera heilbrigðisþjónustu þar sem nokkrir verðflokkar eru í gildi. Þá er Singapúr meðal hrein- ustu borga heims enda er þar í gildi ströng löggjöf sem leggur bann við því að hrækja á götum úti og dreifa rusli. Hinu opinbera þar hefur jafnframt tekist að tak- marka bílaumferð töluvert frá há- punkti hennar á áttunda áratugn- um með ýmsum gjöldum og vegaþrengingum og öðrum úr- ræðum. Almenningssamgöngu- kerfið flytur rúmlega tvær millj- ónir farþega milli staða á degi hverjum. Þá er Singapúr stundum kölluð „borg garðanna“ í ljósi þess að þar er fjöldi almennings- garða og gönguleiða í kringum eyjuna. Hjólreiðamenn og hlaup- arar geta stuðst við sérstakt leiðakerfi til að ferðast á milli garða og annarra grænna svæða. Bannað að hrækja Losun gróðurhúsalofttegunda í Tókýó er með því minnsta sem tíðkast í Asíu enda er þar að finna eitt skilvirkasta almenn- ingssamgöngukerfi í heimi. Borgaryfirvöld hafa jafnframt haldið því fram að kjarn- orkuslysið í Fukushima og flóðbylgjan ár- ið 2011 hafi ekki haft áhrif á mengunar- stig borgarinnar. Dagblaðið The Guard- ian í Bretlandi valdi Tókýó í annað sæti yfir heilnæmustu borgir heims árið 2012 enda er langlífi íbúa borgarinnar vel þekkt og er í dag rétt tæplega 85 ár að með- altali. Japanir verja miklum opinberum fjármunum í heilbrigðiskerfi almennings, leggja ríka áherslu á hreinlæti og að rækta sterk fjölskyldutengsl. Þá samanstendur mataræði Japana að stórum hluta af hrís- grjónum, grænmeti og ferskum fiski. Hús- næðisverð í Tókýó tók að hækka talsvert árið 2013 í kjölfar breyttra áherslna nýs forsætisráðherra, Sinzo Abe, í efnahags- málum. Þá hafði jafnframt áhrif að Tókýó var valin til að hýsa sumarólympíuleikana árið 2020. Japanskur agi í samgöngumálum Á vesturströnd Ástralíu er að finna borg sem iðulega kemst á lista yfir þær borgir heims sem best er að búa í. Perth er jafnframt ein af bestu borgum heims fyrir konur. Fylgirit tímaritsins the Economist, Intelli- gent Life, valdi Perth sem eina af 10 lífvænlegustu borgum heims árið 2013. Intelligent Life mældi fimm þætti í mati sínu; stöðugleika, heilbrigðiskerfi, mennt- un, borgarskipulag, menningu og umhverfi. Á tíma- bilinu milli 1998 og 2009 jókst fjöldi hjólreiðamanna í Perth um 450% og reiðhjólagrindum hefur verið komið upp víða um borgina svo mögulegt sé að læsa hjólum kirfilega. Hlýtt loftslagið við Indlandshaf gerir jafnframt að verkum að íbúar Perth geta skellt sér á ströndina og stundað útivist og íþróttir af marg- víslegu tagi allan ársins hring. Tæplega tvær milljónir manna búa þar og Perth er því fjórða stærsta borg Ástralíu hvað mannfjölda varðar. Húsnæðismark- aður þar hefur verið að nálgast stöðugleika á ný eftir mikinn uppgang á undanförnum árum í námuiðnaði. Reiðhjólum fjölgaði um 450% SPUNI Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Veldu þinn lit úr rúmlega 50 litum sem í boði eru og við bólstrum stólinn eftir þínum óskum. STOFNAÐ 1956 Íslensk hönnun & handverk Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.