Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 38
Fjármál heimilanna * Ef buddan er næstum orðin galtóm er óvitlaust að skoða hvernig má fá sem flestar hitaeiningar fyrir peninginn. Ein- mitt þetta gerði notandi umræðuvefs- ins Reddit í Bandaríkjunum og voru niðurstöðurnar áhugaverðar. Flestar kalóríur á krónu gefa hrísgrjón, þá ca- pellini pasta, svo brauðmylsna, pinto- baunir og beyglur. Flestar hitaeiningar fyrir fæstar krónur Tómas Oddur Eiríksson er 25 ára jógakennari og stofnandi Yoga Moves. Næstkomandi miðvikudag, 3. sept- ember, leiða þau saman hesta sína hann og Aarona Pichinson, framleið- andi Yoga Soundscape. Standa þau fyr- ir jóga, dansi og gleði við lifandi tónlist í Hörpu. Hvað eruð þið mörg í heimili? Ég bý með systkinum mínum tveimur, Arngrími og Völu, en við leigjum sam- an íbúð í miðbænum. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Smjör og sulta er algjört grundvall- aratriði á þessu heimili en einnig er yfirleitt nóg til af grænmeti og ávöxt- um. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Ég held að við sleppum með 15-20 þúsund krónur á viku. Hvar kaupirðu helst inn? Við gerum heimilisinnkaupin að mestu í Bónus en skreppum gjarnan eftir stökum vörum í Pétursbúð, kaupmanninn okkar á horninu. Hvað freistar mest í mat- vörubúðinni? Lífrænar vörur, hnetur, fræ, ostar og pestó. Hvernig sparar þú í heimilishaldinu? Við deilum heimiliskostnaðinum á milli okkar þriggja og hjálpumst að eftir bestu getu. Reynum að sneiða hjá munaðarvörum, þótt það sé erfitt. Við notum reiðhjól og borðum stundum hjá mömmu og pabba. Hvað vantar helst á heimilið? Útvarp í eldhúsið og viftu á ganginn. Eyðir þú í sparnað? Ég legg fyrir 10.000 kr. í hverjum mánuði inn á lokaða bók. Skothelt sparnaðarráð? Mæli með að iðka jóga og hugleiðslu. Það dregur úr neysluþörfinni og gerir mann nægjusamari. Þá er það að eiga ekki bíl sennilega besta sparnaðar- ráðið. NEYTANDI VIKUNNAR TÓMAS ODDUR EIRÍKSSON Jóga dregur úr neysluþörfinni Tómas sparar stundum með því að borða heima hjá mömmu og pabba. Morgunblaðið/Styrmir Kári Það eru engar ýkjur að segja að Aurapúkinn sé ódýr í rekstri. Veit púkinn stundum ekki alveg hvað hann á að halda þegar hann ber sig saman við fólk sem virðist ekki geta notið lífsins án þess að eyða peningum. Aurapúkinn prísar sig sælan að finnast ekkert vanta í líf sitt þó að hann fari ekki í bíó eða út að borða í mánuði hverjum. Aurapúkinn get- ur notið þess að labba um versl- unarmiðstöðvar án þess að finnast hann þurfa að eyða krónu. Kannski er lykillinn að stóískri sparsemi Púkans að hann hefur lært að nóg er til af ágætis afþrey- ingu sem er ýmist ódýr eða ókeyp- is. Aurapúkinn horfir þannig á af- bragðsfína þætti og hlustar á uppáhalds tónlistina í gegnum You- Tube. Þess á milli hlustar hann á ókeypis hljóðbækur frá Librivox í snjallsímanum eða spilar fría net- leiki í vafranum á fartölvunni. Sælir eru nægjusamir, því þeir geta saxað á yfirdráttinn. púkinn Aura- Nóg af ókeypis afþreyingu Á síðustu árum hefur orðið mikil vitund- arvakning meðal almennings um gildi þess að draga úr plastpokanotkun. Æ oftar má sjá fólk við afgreiðslukass- ana raða matvörunum sínum ofan í endingargóða og litríka poka úr tau- og plastefnum. Á sumum stöðum úti í heimi, t.d. í Los Angeles, hefur ver- ið gengið svo langt að banna einnota plastpoka með öllu og jafnvel dreifa ókeypis fjölnota pok- um til almennings. Verslanir eins og Sainsbury’s í Bretlandi gefa viðskiptavinum auka „punkta“ á tryggðarkortin sín ef þeir nota fjölnota poka eða endurnýta gamla plastpoka í innkaupaferðinni. Á Íslandi sjá margir margnota poka líka sem leið til að spara þær krónur sem annars þarf að greiða fyrir nýjan plastpoka í hverri inn- kaupaferð, að ekki sé tala um að tæma eldhús- skápa og skúffur sem í dag eru fullar af gömlum plastpokum. En ekki er allt sem sýnist. Hugsunin að baki fjölnotapokunum er falleg, en reikna verður dæmið til enda til að ganga úr skugga um að pokinn hjálpi til við að vernda bæði umhverfið og pyngjuna. Þvottavél og þurrkari Einn stærsti áhrifaþátturinn er að þvo þarf pok- ann reglulega. Rannsóknir á fjölnota pokum hafa sýnt að þeir geta orðið gróðrarstía fyrir skaðleg- ar örverur og samkvæmt umfjöllun USA Today virðast auknar vinsældir fölnota poka haldast í hendur við fjölgun tilvika matarsýkinga. Sumar heimildir mæla með því að þvo pokana eftir hverja notkun, aðrar að pokinn sé þveginn viku- lega. Þarf að þvo pokann á hæsta hita sem fram- leiðandinn leyfir og þurrka vel. Það getur verið dýrt að henda einum stökum poka í vélina og þess vegna ætti að reyna að þvo marga poka saman, eða með öðrum skítugum þvotti. Hér er rétt að muna að gott getur verið að sneiða hjá pokum í sterkum litum, ef liturinn skyldi smitast yfir í nærbuxurnar og sokkana við þvottinn. Einnig að taka vatns- og orkunotkunina með í reikninginn ef markmiðið er að vernda umhverf- ið, og líka að þvottarnir hafa áhrif á endingu pokans. Fjölnota pokar úr plastefnum fara t.d. að láta á sjá eftir fimm eða sex þvotta. Vegna örverugróðurs er líka óráðlegt að geyma pokana í bílskottinu, því skottið er oft óhreint og aðstæður þar góðar fyrir örverurnar að fjölga sér. 11 eða 173 innkaupaferðir Hvaða áhrif þvotturinn hefur á endingu pokanna verður að skoða með hliðsjón af rannsóknum sem sýna að nota þarf fjölnota poka úr plast- efnum í fjögur til ellefu skipti til að umhverfis- áhrifin séu minni en af að nota hefðbundna plastpoka. MarketWatch vitnar í mjög ítarlega rannsókn breska umhverfisráðuneytisins frá árinu 2006 sem leiddi í ljós að taupokar fara ekki að borga sig fyrir umhverfið fyrr en eftir 131 verslunarferð, en í 173 skipti ef fólk er vant að nota plastpokana úr búðinni einnig undir heim- ilisruslið. Virðist rannsóknin þó ekki hafa tekið með í reikninginn umhverfisáhrif reglulegra þvotta. Að endingu verður að muna að flest heimili hafa einhver not fyrir plastpoka. Í stað inn- kaupapokans þarf þá að kaupa plastpoka í rúll- um undir nesti, matarafganga, ruslið og labbit- úrana með heimilishundinum. Allt þetta þarf að vega vandlega og meta í samræmi við aðstæðurnar á hverju heimili svo öruggt sé að fjölnota innkaupapokinn hjálpi örugglega umhverfinu, og pyngjunni. GETUR VERIÐ FLÓKIÐ DÆMI AÐ REIKNA Borgar sig að kaupa margnota poka? REIKNA ÞARF DÆMIÐ TIL ENDA OG TAKA MEÐAL ANNARS TILLIT TIL ÞESS HVAÐ KOSTAR AÐ ÞVO MARGNOTA INNKAUPAPOKA OG HVERSU LENGI HANN ENDIST. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Maður á gangi í miðborginni með vel með farna plastpoka. Fara þarf varlega þegar reynt er að draga ur plastpokanotkun. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.