Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 V erðtrygging er hvorki vond eða góð. Hún hefur eiginleika sem þarf að þekkja ætli menn að styðjast við hana í fjárhagslegri tilveru. Áhrif hennar á það, hvað það kostar að fá fjármuni að láni, þurfa ekki endi- lega að vera mikil. Verðtrygging í dularklæðum Lánveitendur hafa öldum saman stuðst við þá óskráðu reglu, að þeir fái fé sitt til baka frá þeim sem lánið tók og að auki nokkurt álag, vexti, fyrir snúð sinn. Lántakendur hafa vitað og sætt sig við þetta. Ella byðust fá lán. Verðbólga og verðhjöðnun hafa verið til staðar svo lengi sem menn hafa átt viðskipti, þótt ekki sé víst að fyrirbærin hafi verið mæld eða þekkt sem slík. Marg- víslegar aðstæður hafa leitt til verðbreytinga í sam- félagi þótt engin væri hagstofan til að skrá þær. Vaxtabreytingarnar hafa verið sýnilegri og valdið óeirðum eins og dæmi frá Róm sýnir en þar féllu 800 í átökum um vexti. Tvöþúsund árum síðar eru vextir og verðbólga enn undiralda ólgu og óánægju. Birtingarmátinn hefur breyst. Og baráttuaðferðir stjórnvalda einnig. Í Sovétríkjunum voru tiltekin brauð ein inni í verðbólgumælingum. Þau ein hækk- uðu ekki í verði og þess vegna var opinber verðbólga ekki til. Opinbert gengi rúblu og dollars var hið sama þótt 25 rúblur fengjust fyrir dollarann eftir myrkur. Idi Amin í Úganda lækkaði verðbólguna með því að senda herinn í verslanir og láta kaupmenn lækka vörur um 30 prósent. Kaupmenn hlýddu auðvitað og fóru svo lóðbeint á hausinn. Lánveitandinn forðum sá engar verðbólgumælingar. En hann skynjaði að skildingurinn sem hann lánaði fyrir 5 árum dugði ekki fyrir jafnmörgum brauðum og hann gerði þegar hann skilaði sér til baka. Hann er því verr staddur þegar lánið er endurgreitt en hann var þegar hann veitti það. Skuldarinn hefur þó staðið við allt sitt. En lánveitandinn mun hækka sína vexti næst þegar ein- hver leitar eftir láni. Hann reynir að „verðtryggja“ lánið sitt, þótt hann þekki ekki það hugtak. Oftast ræður lánveitandinn meiru um skilmála láns enda lántakandinn oftar í veikari stöðu, nema að óvenju- legt framboð lánsfjár sé fyrir hendi og samkeppni virk. Kynningarsíður íslenskra fjármálastofnana hafa sýnt um hríð að þær bjóða óverðtryggð lán þar sem einvörðungu verðtryggð lán fengust áður. Miðað við tiltekin veðhlutföll geta menn gengið að fast- eignaláni til 3-5 ára með t.d. 7,5 prósenta ársvöxtum. Samþykki lántakandinn óverðtryggt lán með breyti- legum vöxtum lækka þeir í 6,5 prósent frá þeim degi sem lánið er veitt. Bankinn er sem sagt að spá fyrir um verðbólguna fram í tímann með föstu vöxtunum, en ætlar sér að verðtryggja óverðtryggða lánið að mestu með breytilegu vöxtunum. Lántakandinn greiðir þess vegna 1% hærri fasta vexti fyrir óverð- tryggða lánið en tilefni er til á upphafspunkti þess. Sá munur mætir áhættu lánveitandans af því að verðbólga verði hærri á næstu árum en nú er. Verðtryggingarskrefið Bein verðtrygging varð lögleg og almenn fyrir 35 ár- um. Þrátt fyrir að verðbólga væri þá mikil hlupu menn til og fengu lánum sínum frá lífeyrissjóðunum breytt úr óverðtryggðum lánum í verðtryggð áður en „heimild“ til breytingarinnar rann út. Hvers vegna í ósköpunum? Jú, vegna þess að árleg greiðslubyrði lánanna minnkaði töluvert næstu 2-3 árin á eftir. Þeir sem ekki „nýttu tækifærið sem gafst“ sáu hins vegar lánin sín „hverfa“ á aðeins örfáum árum. Verð- bólgan gleypti þau. Lántakendur plötuðu sjálfa sig með því að kjósa fremur lækkanir á greiðslubyrði í allra næstu framtíð en að sjá lánin verða að engu í þeirri ógurlegu verðbólgu sem þá var. En síst verður sagt að verðtrygging hafi verið kynnt til íslenskrar sögu þegar áhætta vegna hennar hafi verið lítil. En lántakendur sem hópur sáu að líf- eyrissjóðir þeirra urðu smám saman einhvers virði vegna verðtryggingarinnar. Þar til það varð höfðu sjóðsfélagar haft mest gagn af því að þeir lánuðu fé- lagsmönnum fé sem brann upp í verðbólgu. Því þar áttu allir jafnan aðgang að svikamyllu verðbólgunnar og óverðtryggðra lána. Fyrir daga verðtryggingar- innar gátu þeir efnast betur og fyrr en aðrir sem áttu greiðastan aðgang að ríkisbönkunum. Sparifjáreig- endur, fólk sem veitti sér lítið, en lagði fyrir af litlum tekjum beið svo fyrir utan bankann sinn í kuldanum eftir hver áramót til að sjá vextina sína færða inn í bókina sína. Það sagði þeim enginn að hækkandi inn- stæðan var blekkingin ein. Þetta var á tímum þjóð- arþjófnaðar bankakerfisins. Flestir Íslendingar horfðu upp á hann án þess að skilja hvað var að ger- ast. Þeir sem betur vissu og þeir sem græddu á þessu óréttlæti sögðu fátt. Fyrstu árin eftir að verðtrygging kom til var reynt að ýta á undan sér afleiðingum þess að búa við verð- tryggingu og verðbólgu. Ákveðið var að verðtryggja launin líka með verðbólgustrikum. Og þá fyrst var vitleysan fullkomnuð. Eftir aðeins þrjú ár var þriggja mánaða verðbólga komin upp í 120%, reiknuð til árs. Samt var furðu lengi ró í þjóðfélaginu. Mót- mælin byrjuðu ekki fyrr en stigið var á bremsuna af Hitt er huggunar- ríkt að vísu að þeir verðtryggja ekki eftir á * Sparifjáreigendur, fólk semveitti sér lítið, en lagði fyrir aflitlum tekjum beið svo fyrir utan bankann sinn í kuldanum eftir hver áramót til að sjá vextina sína færða inn í bókina sína. Það sagði þeim enginn að hækkandi innstæðan var blekkingin ein. Þetta var á tímum þjóðarþjófnaðar bankakerfisins. Reykjavíkurbréf 29.08.14

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.