Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014
*Honum Jesúsi Jósefssyni var úthýst úr Rás 1.Og nú hefur Kristni R. Ólafssyni verið úthýstaf Rás2. Hvar endar það sem hefur svona byrjun …?
Sigurður Sigurðarson ferðagarpur á bloggi sínu.
Landið og miðin
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
sbs@mbl.is
UM ALLT LAND
SELFOSS
Á Selfossi eru ýmsir á förum. Séra
Óskar Hafsteinn Óskarsson hefur
verið valinn prestur í Hruna, Ólafur
Helgi Kjartansson sýslumaðu
verður lögreglustjóri á Su
og Óskar Reykdalsson
mkvæmdastjóri
ÓLAFSVÍK
Í sumar var landað
325 tonnum í
Ólafsvík af fiski úr
strandveiðibátum.
Í öðru sæti varð
Arnarstapi með 804 Grindavík
með 732 tonn og Rif 695 tonn Þá
hafa karlar á smábátum gert það gott í
makrílnum að undanförnu
KÓPAVOGUR
4.500 börn setjast
á skólabekk í
grunnskólum
Kópavogs sem settir
voru í sl. viku. Þar af
eru um 490 í fyrsta bekk.
fleiri grunnskólabörn en í
munar að nemendum í Hö
Kórahverfi fjölgar um tæp
Húnavallahrepp
að mega setja
upp gáma og
fjarskiptamastur á Hveravöllum. Mastrið
á að setja upp norðan við staðinn í
samvinnu viðVodafone og Neyðarlínuna
til að þétta öryggisnetið á svæðinu.
HÉRAÐ
Óánægja er
meðal íbúa
upplýs
Íbúasamtök almennt þurfa að efl-ast. Þá væri æskilegt að vægiþeirra myndi aukast, sér-
staklega þegar ákvarðanir um nær-
umhverfi þeirra eru teknar,“ segir
Þórir Jóhannsson formaður Íbúa-
samtaka Grafarholts í Reykjavík,
sem eru sjálfstæð samtök sem
starfa þar í hverf-
inu.
Á dögunum
stóðu íbúa-
samtökin að hátíð-
inni Í holtinu
heima, þar sem
fólk í hverfinu
kom saman til
fjölskylduskemmt-
unar í svonefndum Leirdal, útivist-
arsvæði innst í Grafarholtinu. Dag-
skráin var fjölbreytt og stóð frá
morgni til kvölds. „Við erum mjög
ánægð með mætinguna. Hátíð-
argestir skiptu sjálfsagt þúsundum
þegar allt er talið. Svona sam-
komur eru tilvalinn vettvangur fyr-
ir hverfi eins og Grafarholt að búa
til hverfisbrag þar sem nágrannar
koma saman, kynnast og skemmta
sér á heimavelli.“
Í dag búa um 5.400 manns í
Grafarholti, en uppbygging þar
hófst í kringum árið 2000. Graf-
arholtið er nú fullbyggt að telja.
Úlfarsárdalur, þar sem um 600
manns búa og telst vera hluti af
Grafarholti, er hálfbyggður miðað
við áætlanir. Húsum og íbúðum fer
þar hratt fjölgandi, en uppruna-
legar áætlanir um Úlfarsárdal
gerðu ráð fyrir mun stærra hverfi.
Frá því var horfið eftir hrun.
Betri samgöngur
í hverfinu
Gert er ráð fyrir því að í Úlfars-
árdalnum sjálfum, sem er á milli
Grafarholts- og Úlfarsárdals-
hverfis, verði byggð upp þjónustu-
miðstöð fyrir allt hverfið með
íþróttaaðstöðu fyrir Fram ásamt
sundlaug, bókasafni, tómstundaað-
stöðu og fleiru. Grunnur að þessari
aðstöðu er til staðar og hefur
Fram nýtt sér hana til æfinga.
„Bæta þarf samgöngur, sér-
staklega á milli hverfanna, til að
þessi aðstaða nýtist sem best. Eins
og staðan er núna er töluvert mál
fyrir þá sem búa Grafarholtsmegin
að komast til æfinga á svæðinu.“
Þórir gagnrýnir seinagang við
framkvæmdir í hverfinu og flutning
Fram í Grafarholt. Sem faðir
tveggja drengja sem æfa með
Fram þekki hann óhagræðið í því
fyrirkomulagi sem nú er fylgi, það
er bæði fyrir foreldra og Fram.
„Það er dýrt að reka íþróttafélag.
Aðstaðan er auk þess býsna frum-
stæð. Ég gagnrýni ekki endilega
flutning Fram úr Safamýrinni í
Grafarholt. Ákvarðanir landnám
Fram hér í efri byggðum voru
teknar við allt aðrar aðstæður en
nú eru. Það er því ekki sanngjarnt
að vera með sleggjudóma, en við
verðum að takast á við veruleikann
eins og hann blasir við okkur. Hér
þarf virkilega að spýta í lófana og
koma upp þeim þjónustueiningum
sem hverfinu ber að fá.“
Stöðuna má styrkja
Sem formaður íbúasamtakanna
hyggst Þórir beita sér í ýmsum
málum, svo sem að hverfin tvö
verði heildstæð og að vel verði búið
að íþróttafélaginu. Hann segist þó
enn vera að koma sér inn í mál og
móta sér sér skoðanir á þeim verk-
efnum sem fyrir liggja. Starfsemi
íbúasamtakana segir hann þokka-
lega virka og á þeirra vettvangi
megi þoka góðum málum áleiðis.
Samtökin eigi fulltrúa í hverfisráði
borgarinnar, en hlutverk þess sé
að gæta hagsmuna þegar borgar-
yfirvöld taka ákvarðanir er varða
svæðið.
„Stöðu íbúanna og hverfisráð-
anna þarf að styrkja. Þau mega
sömuleiðis hafa meira um mál að
segja og hugsanlega eitthvert
ákvörðunarvald, svo sem í skóla-
og skipulagsmálum og einnig hvað
varðar umhirðu opinna svæða til að
nefna nokkur atriði,“ segir Þórir.
GRAFARHOLT
Íbúar ráði
í hverfinu
VIRK ÍBÚASAMTÖK ERU Í ÚTHVERFINU Í GRAFARHOLTI.
UPPBYGGING Á MÖRGU ÞOKAST HÆGT EN ÍBÚARNIR
KUNNA ÞÓ SANNARLEGA AÐ GERA SÉR GLAÐAN DAG.
Horft yfir austurhluta byggðarinnar í Grafarholti. Reynisvatn er lengst til vinstri og fjær sjást Vífilsfell og Bláfjallaklasinn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kátur hópur á hátíðinni Í holtinu heima sem haldin var fyrir skemmstu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þórir Jóhannsson