Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 30
Ú lfur Uggason bauð nánustu fjölskyldu, foreldrum, systkinum og mökum, í dýrindis þriggja rétta kvöldverð þar sem ís- lenskt hráefni var í hávegum haft. Boðið var haldið á heim- ili foreldra Úlfs, þeirra Ugga Þórðs Agnarssonar læknis og Margrétar Guðnadóttur listakonu, enda er heimili þeirra hjarta fjöl- skyldunnar. Sjálfur á Úlfur langan feril að baki sem matreiðslumaður en hann hefur starfað sem kokkur í Frakklandi, Noregi og hér heima, verið yfirkokkur í nokkur ár á Písa meðal annars en í dag er hann yf- irkokkur á Center Hotes. „Ég sá alfarið um eldamennskuna þetta kvöld nema að móðir mín sem er svo mikil listakona sá um heildarútlitið, áhöldin og slíkt og lét mér eftir gullfallega steina sem hún tíndi sjálf í fjöru rétt hjá Stykkishólmi í sumar,“ segir Úlfur en steinana notaði hann undir forréttinn. „Þegar ég skipulagði matseðil kvöldsins hafði ég í huga að nota íslenskt hráefni og það sem nátt- úran hefur upp á að bjóða og maður gæti gert hlutina sjálfur eins og að reykja kjötið.“ Maturinn heppnaðist afar vel og kvöldið var nota- legt en Úlfur var sérstaklega ánægður með eftirréttinn. Sjálfur segist hann ekki vera hrifinn af því að fylgja uppskriftum og vilji frekar leika af fingrum fram og því hafi hann ekki verið alveg viss um að eftirrétturinn myndi heppnast fullkomlega. Getur hann gefið lesendum sem halda gott matarboð með fiskmeti í aðalrétt góð ráð? „Mér finnst að fólk ætti að hafa í huga að maður ofmetur oft eld- unartíma fiskmetis. Þegar maður heldur að það vanti nokkrar mínútur upp á að fiskurinn sé tilbúinn, er hann yfirleitt nú þegar tilbúinn. Það þarf líka að hafa í huga að þegar maður tekur fisk til dæmis út úr ofni heldur hann áfram að eldast í fatinu í nokkrar mínútur,“ seg- ir Úlfur og bætir við að fiskur kvöldsins hafi runnið einkar ljúflega niður. ÚLFUR UGGASON MEÐ MATARBOÐ Náttúruboð fjölskyldunnar * Mér finnst aðfólk ætti aðhafa í huga að mað- ur ofmetur oft eld- unartíma fiskmetis. ÚLFUR UGGASON OG BAUÐ FORELDRUM, SYSTKINUM, MÖKUM ÞEIRRA OG ÖMMU UPP Á LJÚFFENGT FISKMETI, HEIMAREYKT KJÖT OG GIRNILEGAN EFTIRRÉTT. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Úlfur á langan feril að baki sem matreiðslumeistari. 300 g bankabygg 150 g gulrætur, skornar í teninga 50 g skalottlaukur, fínsaxaður 20 g engifer, marinn og saxaður 4 hvítlauksgeirar, marðir og saxaðir 1 búnt graslaukur, saxaður 1 l gulrótarsafi 4 dl rjómi Sjóðið byggið í gulrótarsafanum og vatni, ásamt engifer, hvítlauki og skalottlauki. Þegar byggið er orðið vel mjúkt og mestur vökvi guf- aður upp má rjóminn fara út í. Látið krauma í fáeinar mínútur en passið vel að blandan brenni ekki við. Saltið og piprið eftir smekk. Bankabygg 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 Matur og drykkir 300 g íslenskt spínat 3 stk. plómutómatar 10 stk. kirsuberja- tómatar börkur af 1 sítrónu börkur af 1 appelsínu 1 dl ólífuolía maldonsalt og svart- ur pipar eftir smekk Fjarlægið stóru stilk- ana af spínatinu, kjarn- hreinsið plómutóm- atana og skerið í litlar og krúttlegar sneiðar. Blandið fínrifnum berki af sítrónunni og appels- ínunni saman við ólífu- olíu, salt og pipar og hellið yfir salatið. Spínatsalat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.