Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 35
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 H rós vikunnar fá Angelina Jolie og Brad Pitt fyrir að gifta sig nánast í leyni, bjóða bara 22 gestum og sjá til þess að fréttin um brúðkaupið kvisaðist ekki út fyrr en fimm dögum eftir það. Fjölmiðlar standa á gati og vita ekkert nema að brúð- kaupið fór fram í lítilli kapellu í Château Mira-val í Frakklandi og að börn hjónanna tóku virkan þátt í athöfninni. Vitað er að Angelina Jolie klæddist hvítum kjól en ekki er á hreinu frá hvaða hönnuði hann var. Líklegt þykir að hann hafi verið frá Valentino, Atelier Versace eða Elie Saab. Auk þess hefur tískuhúsið Saint-Laurent verið nefnt í þessu samhengi. Síðan parið hnaut hvort um annað árið 2005 hafa fjölmiðlarnir ekki þreyst á að skrifa fréttir um brúðkaupið, hvar það yrði haldið, í hverju hún myndi vera og ekki síst hverjum ætti að bjóða í þessa tímamóta- veislu. Þetta var stundum sett þannig fram að hugsanlega væri sam- bandið ekki nægilega sterkt fyrst þau væru ekki búin að innsigla það með risabrúðkaupi. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig stemningin er í Hollywood núna. Vinir Jolie og Pitt eru pottþétt að drepast úr skúffelsi yfir því að hafa ekki getað klætt sig upp í sitt fínasta, farið í hár og förðun og In- stagrammað svo allt í drasl meðan á veislunni stæði með #Brangelina #wedding #geðveiktstud. Ég hef ekki tölu á því hvað ég er búin að lesa margar fréttir um þetta brúðkaupsmál og fyrstu árin eftir að Pitt og Jolie byrjuðu saman var hans fyrrverandi, Jennifer Aniston, reglulega blandað inn í þennan fréttaflutning. Að þau Pitt væru mögulega að fara að byrja aftur saman og hvað það væri mikil kergja á milli Aniston og Jolie. Þeir sem hafa átt í ástarsamböndum vita að það er yfirleitt einhver ástæða fyrir því hvers vegna ástarsambönd komast á endastöð. Auðvitað hefði Pitt bara verið áfram með Aniston ef það hefði verið nægilegt kem- istrí. Það er ágætt að hafa það bak við eyrað að þetta virkar ekkert öðru- vísi í Hollywood en í Kópavogi eða Breiðholti. Eins dásamlegt og mér finnst að fara í brúðkaup, upplifa alsæluna sem fylgir því þegar tveir einstaklingar játast og fagna ástinni ærlega með veglegri brúðkaupsveislu, þá er þetta nokkuð sem mig myndi aldrei langa til að gera sjálf. Ég hef til dæmis aldrei svo mikið sem mátað brúð- arkjól og aldrei séð mig fyrir mér í hlutverki „brúðarinnar“. Þrátt fyrir að eiga eitt hjónaband að baki hef ég ennþá tröllatrú á hjónabandi og tel að allir sem ætla að deila lífinu eigi að gera með sér slíkan samning. Það er bara eitt sem vonbiðill þarf að vita og það er að hringurinn skiptir tæknilega séð öllu máli og hann þarf að vera með stórum demanti. Ekki er nauðsynlegt að hann kosti jafnmikið og hringur Jolie en kvenpeningurinn myndi þó ekki fúlsa við slíkum grip … martamaria@mbl.is Það þykir dálítið fínt að eiga giftingarhring frá Tiffany’s. Leynibrúðkaup ársins Þessi hringur er frá Tiffany’s. Brad Pitt og Angelina Jolie gengu í hjónaband í Frakklandi. UPI Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi www.spennandi.com opið: mán-fim: 12-18 - fös: 12-16 3322 MC PLANET ER KOMIÐ AFTUR! Mikið úrval af ítölskum og frönskum tískufatnaði Eftirminnileg upplifun – steik eins og steik á að bragðast Barónsstíg 11 101 Reykjavík argentina.is Borðapantanir 551 9555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.