Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Side 35
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
H
rós vikunnar fá Angelina Jolie og Brad Pitt fyrir að gifta sig
nánast í leyni, bjóða bara 22 gestum og sjá til þess að fréttin
um brúðkaupið kvisaðist ekki út fyrr en fimm dögum eftir
það. Fjölmiðlar standa á gati og vita ekkert nema að brúð-
kaupið fór fram í lítilli kapellu í Château Mira-val í Frakklandi og að börn
hjónanna tóku virkan þátt í athöfninni.
Vitað er að Angelina Jolie klæddist hvítum kjól en ekki er á hreinu frá
hvaða hönnuði hann var. Líklegt þykir að hann hafi verið frá Valentino,
Atelier Versace eða Elie Saab. Auk þess hefur tískuhúsið Saint-Laurent
verið nefnt í þessu samhengi.
Síðan parið hnaut hvort um annað árið 2005 hafa fjölmiðlarnir ekki
þreyst á að skrifa fréttir um brúðkaupið, hvar það yrði haldið, í hverju
hún myndi vera og ekki síst hverjum ætti að bjóða í þessa tímamóta-
veislu. Þetta var stundum sett þannig fram að hugsanlega væri sam-
bandið ekki nægilega sterkt fyrst þau væru ekki búin að innsigla það með
risabrúðkaupi.
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig stemningin er í Hollywood núna.
Vinir Jolie og Pitt eru pottþétt að drepast úr skúffelsi yfir því að hafa
ekki getað klætt sig upp í sitt fínasta, farið í hár og förðun og In-
stagrammað svo allt í drasl meðan á veislunni stæði með #Brangelina
#wedding #geðveiktstud.
Ég hef ekki tölu á því hvað ég er búin að lesa margar fréttir um þetta
brúðkaupsmál og fyrstu árin eftir að Pitt og Jolie byrjuðu saman var
hans fyrrverandi, Jennifer Aniston, reglulega blandað inn í þennan
fréttaflutning. Að þau Pitt væru mögulega að fara að byrja aftur saman
og hvað það væri mikil kergja á milli Aniston og Jolie.
Þeir sem hafa átt í ástarsamböndum vita að það er yfirleitt einhver
ástæða fyrir því hvers vegna ástarsambönd komast á endastöð. Auðvitað
hefði Pitt bara verið áfram með Aniston ef það hefði verið nægilegt kem-
istrí. Það er ágætt að hafa það bak við eyrað að þetta virkar ekkert öðru-
vísi í Hollywood en í Kópavogi eða Breiðholti.
Eins dásamlegt og mér finnst að fara í brúðkaup, upplifa alsæluna sem
fylgir því þegar tveir einstaklingar játast og fagna ástinni ærlega með
veglegri brúðkaupsveislu, þá er þetta nokkuð sem mig myndi aldrei
langa til að gera sjálf. Ég hef til dæmis aldrei svo mikið sem mátað brúð-
arkjól og aldrei séð mig fyrir mér í hlutverki „brúðarinnar“. Þrátt fyrir
að eiga eitt hjónaband að baki hef ég ennþá tröllatrú á hjónabandi og tel
að allir sem ætla að deila lífinu eigi að gera með sér slíkan samning.
Það er bara eitt sem vonbiðill þarf að vita og það er að hringurinn
skiptir tæknilega séð öllu máli og hann þarf að vera með stórum demanti.
Ekki er nauðsynlegt að hann kosti jafnmikið og
hringur Jolie en kvenpeningurinn myndi þó ekki
fúlsa við slíkum grip …
martamaria@mbl.is
Það þykir dálítið fínt að eiga
giftingarhring frá Tiffany’s.
Leynibrúðkaup
ársins
Þessi hringur
er frá Tiffany’s.
Brad Pitt og
Angelina Jolie
gengu
í hjónaband
í Frakklandi.
UPI
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
www.spennandi.com
opið: mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
3322
MC PLANET
ER KOMIÐ AFTUR!
Mikið úrval af ítölskum og frönskum tískufatnaði
Eftirminnileg upplifun
– steik eins og steik á að bragðast
Barónsstíg 11
101 Reykjavík
argentina.is
Borðapantanir
551 9555