Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 13
hvað okkur langar virkilega til að
gera, finnst gaman að gera og
elska það, njóta þess og rækta það.
Sama hvað það er þá finnur maður
stað í lífinu,“ segir Ágústa Eva
sem sá sjálfa sig aldrei fyrir sér
sem leikkonu eða söngkonu. „Mér
finnst í rauninni mjög skrítið að
hafa dottið í leiklistarheiminn. En
ég elska starfið mitt og elska að
gera það sem ég geri. Elska ekki
allir að leika sér?“
Dásamlegur þriggja
ára drengur
Ágústa Eva tókst á við nýtt
hlutverk fyrir um þremur árum,
móðurhlutverkið, þegar hún eign-
aðist son sinn, Þorleif Óðin sem
alltaf er kallaður Bombi, með
kærastanum sínum Jóni Viðari
Arnþórssyni. Hún segir móð-
er hann líka feiminn, hugrakkur,
þrjóskur, sterkur og ljúfur. Mjög
góð blanda.“
Mjölnir góður staður
Ágústa Eva og Jón Viðar höfðu
verið vinir í tvö ár áður en þau
tóku saman en hann er formaður
bardagaklúbbsins Mjölnis og fyrr-
verandi lögreglumaður. Ágústa
Eva er dugleg að mæta í Mjölni
þegar tími gefst og segir gott að fá
útrás þar. „Þetta er skemmtilegt
áhugamál og maður fær mikla
orku. En ég var algjör aumingi áð-
ur en ég byrjaði í Mjölni. Þegar ég
var yngri var ég látin fara í lík-
amsrækt og var þar bara eins og
hor. Fólk hélt ég væri að grínast!
Ég gat ekki verið lengur en tvær
mínútur á hlaupabretti án þess að
verða lafmóð og ég gat varla gert
eina armbeygju. En það er ekki
þannig í dag,“ segir Ágústa skæl-
brosandi. „Það er svo góður andi
þarna og þetta er engin kvöð, því
þetta er svo skemmtilegt. Þarna
eru allir vingjarnlegir og enginn er
fúll ef hann tapar í bardögum.
Maður kemst ekkert áfram ef egó-
ið tekur völdin. Það þýðir heldur
ekkert að miða sig við aðra. Ef
maður fer að keppa við annan en
sjálfan sig þá er maður kominn í
ógöngur. Ég verð sjaldan jafn glöð
og þegar ég næ að toppa sjálfa
mig.“
Mikilvægt að bulla
Ágústu Evu þykir langskemmti-
legast að prakkarast í lífinu og
segir mikilvægt að taka það ekki
of alvarlega. Það sé mikilvægt að
bulla af og til. „Það má ekki
gleyma því að bulla þótt aldurinn
færist yfir. Það verða allir að
muna að gera prakkarastik og
stríða til að halda sér ungum,“
segir hún og setur upp prakk-
aralegt glott. „Það kom breskur
grínisti hingað til lands um daginn
og ræddi við okkur leikarana.
Hann sagði að lykillinn að góðum
leikara væri að halda alltaf í leik-
inn sjálfan og vera alltaf að leika
sér. Hann sagði að hann væri
sjálfur alltaf að grínast eitthvað
með konunni sinni hvar svo sem
þau væru stödd. Þannig heldur
fólk í gleðina og heldur lífinu
óvæntu og skemmtilegu. Á meðal
leikara sem eru að vinna saman í
sýningu skapast góð stemning ef
allir eru að stríða hver öðrum.
Það verður allt annað andrúms-
loft. En það má einnig grínast
bara og stríða hvar sem er, í mat-
arboðum jafnt sem á sviðinu.“
Ágústa Eva Erlendsdóttir
segir það mikilvægt að allir
fái að vera eins og þeir vilja
vera en þannig er einmitt
Lína langsokkur.
Morgunblaðið/Eggert
urhlutverkið vera alls konar og
allt þar á milli. „Að vera móðir er
bæði léttara en ég hélt að það
yrði en líka erfiðara en ég hélt,
bara eins og lífið er. Gleði og
sorg. En þetta er mjög skemmti-
legt. Líf mitt hefur breyst mikið
undanfarið en ég er mjög sátt við
það eins og það er. Ég er samt
ekki í neinum öðruvísi stellingum
en ég hef verið, ég hef bara gam-
an af þessu.“
Heldurðu að sonur þinn fái jafn-
frjálslegt uppeldi og þú segist hafa
fengið?
„Já, ég vona það, að hættumörk-
um,“ segir Ágústa Eva og hlær.
„Bombi er líka bara svo skemmti-
legur, alveg eins og pabbi hans. Og
ærslabelgur eins og mamma hans.
Hann er hugulsamur og alltaf að
passa upp á foreldra sína, en svo
* Amma fórþangað á nótt-unni, sótti unglinga
sem lágu eins og
hráviði um göturnar
og tók með sér heim.
Hún leyfði þeim að
sofa úr sér og gaf
þeim súpu. Hún var
kölluð amman í
Grjótaþorpinu.
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Söngskólinn íReykjavík
Fyrsta 7 vikna námskeið vetrarins hefst 8. september
SÖNGNÁMSKEIÐ
Allar nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu skólans að Snorrabraut 54,
sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga
•www.songskolinn.is
Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi!
Hvert námskeið stendur í 7 vikur / 14 vikum lýkur með prófumsögn og tónleikum.
• Fyrir fólk á öllum aldri:
Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám
eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk
• Kennslutímar:Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar
• Söngtækni:Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur
• Tónmennt:Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur