Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Síða 22
V ið erum með þrjá, sjö og tíu kíló- metra þannig að við teljum að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta er auðvitað svo stuttu eftir Reykjavíkurmaraþonið að þeir sem vilja hlaupa lengri vegalengdir eru örugglega búnir að fá útrás. Þessar vegalengdir ættu að henta þessari týpísku fjölskyldu,“ segir Vikar Sig- urjónsson sem hefur haft umsjón með Reykjanesmaraþoninu síðastliðin tíu ár. „Það er töluverður fjöldi barna sem tekur þátt í hlaupinu, sérstaklega í þremur kílómetrum, og sjö kílómetrar henta unglingum vel,“ úr- skýrir Vikar sem telur Reykjanesmaraþonið sannkallaða fjölskylduskemmtun. Í ár verður Reykjanesmaraþonið á miðviku- degi líkt og í fyrra en ekki á Ljósanótt sjálfri. „Við vorum alltaf með Reykjanesmaraþonið á laugardeginum í tengslum við Ljósanótt en nú er Ljósanótt orðin svo stór viðburður að á seinasta ári ákváðum við að færa hlaupið yfir á miðvikudaginn, við töldum það skynsamleg- ast, og það kom svakalega vel út. Þess vegna verður hlaupið einnig á miðvikudegi í ár,“ seg- ir Vikar og bendir á að 500 krónur af hverju þátttökugjaldi renni til Barnaspítala Hrings- ins. „500 krónur af hverri skráningu renna til Barnaspítala Hringsins til minnigar um lítinn dreng sem lést fyrir ári, hann Björgvin Arnar Atlason. Við viljum láta gott af okkur leiða,“ segir Vikar. Vikar mun ekki hlaupa í sjálfu Reykjanes- maraþoninu en hann situr ekki auðum höndum meðan á hlaupinu stendur. „Ég hleyp örugg- lega sjö eða tíu kílómetra á miðvikudaginn, bæði í undirbúningnum og meðan á hlaupinu stendur,“ segir Vikar sem mun sjá til þess að allt gangi vel fyrir sig á hlaupadeginum ásamt fleira góðu fólki. Mesti sigurinn að mæta og vera með Í lok dags verða svo veitt vegleg verðlaun fyr- ir meðal annars besta árangurinn. „Svo erum við einnig með slatta af útdráttarverðlaunum, bæði peningaverðlaun og annað. Mesti sig- urinn er bara að mæta og hlaupa, maður þarf ekki endilega að vera bestur til að fá verð- laun,“ segir Vikar sem lumar á nokkrum góð- um ráðum fyrir þá sem hyggjast hlaupa á mið- vikudaginn. „Mitt helsta ráð til hlaupara er auðvitað að borða næringarríka fæðu áður en haldið er af stað. Svo langar mig að benda fólki á að taka það bara rólega og fara ekki að stressa sig á einhverjum óþarfa rétt fyrir hlaup. Þá er auðvitað mikilvægt að vera vel skóaður og vel klæddur.“ Áhugasamir geta skráð sig til leiks til klukk- an 22:00 á þriðjudaginn á www.hlaup.is eða í líkamsræktarstöðinni Lífsstíl en þátttakendur eru hvattir til að kynna sér hlaupaleiðirnar áð- ur en haldið er af stað. Rásmark og endamark verður við líkamsræktarstöðina Lífsstíl/Hótel Keflavík og ræst verður í allar vegalengdir klukkan 18:00. HLAUPIÐ UM GÖTUR REYKJANESBÆJAR Reykjanesmaraþonið er sann- kölluð fjölskylduskemmtun Vikar Sigurjónsson er hérna við rásmark Reykjanesmaraþons ásamt dóttur sinni, Snædísi Glóð sem mun hlaupa á miðvikudaginn. MIÐVIKUDAGINN NÆSTKOMANDI, HINN ÞRIÐJA SEPTEMBER, FER REYKJA- NESMARAÞONIÐ FRAM. REYKJANESMARAÞONIÐ ER ÁRLEGUR VIÐBURÐUR SEM FER FRAM Í TENGSLUM VIÐ LJÓSANÓTT Í REYKJANESBÆ OG ER BOÐ- IÐ UPP Á AÐ HLAUPA ÞRJÁR MISMUNANDI VEGALENGDIR. Í ÁR RENNA 500 KRÓNUR AF HVERJU ÞÁTTTÖKUGJALDI TIL BARNASPÍTALA HRINGSINS. Guðný Hrönn gudnyhronn@mbl.is Í fyrra hlupu þátttakendur Reykjanesmaraþonsins í blíðskaparveðri. * 500 krónur af hverriskráningu renna tilBarnaspítala Hringsins til minningar um lítinn dreng sem lést fyrir ári. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 Heilsa og hreyfing Paraben er rotvarnarefni sem gjarnan er notað í snyrtivörur. Á seinni árum hefur umræðan um skað- semi parabens verið mikil en það er talið geta valdið brjóstakrabbameini. Þeir sem vilja forðast paraben ættu þá að lesa vandlega utan á umbúðir á snyrti- og hreinlætisvörum. Innihaldslýsingarnar geta stundum verið villandi og ætti fólk að vera vakandi fyrir orðum sem innihalda orðið paraben, t.d. methylparaben. Skaðsamt rotvarnarefni AFP 1. Næringin er mikilvæg. Borðaðu hollan og orkuríkan mat fyrir hlaupið sem fer vel í magann. Til dæmis er til- valið að fá sér gríska jógúrt með múslí og ávöxtum fyrir átökin. 2. Skórnir skipta máli. Mikilvægt er að skóbúnaðurinn sé þægilegur og góð- ur. Fáðu hjálp í íþróttavöruverslun við að velja skó sem henta fótunum á þér. Þá er sniðugt að vera með plástur í vas- anum í hlaupinu ef ske kynni að hælsæri gerði vart við sig. 3. Slökun gerir gæfumun. Ekki eyða orkunni í að kreppa hnefa og spenna axlir á meðan þú hleypur, slakaðu á öxl- unum og hristu handleggina reglulega til að halda slökun. 4. Ekki gleyma upphituninni. Próf- aðu að skokka á staðnum og teygja vel á líkamanum til að koma í veg fyrir meiðsl. 5. Hafðu vatn við höndina. Í flestum hlaupum eru svo þar til gerðar vatns- stöðvar þar sem hlauparar geta slegið á þorstann, nýttu þér þær. 6. Skemmtu þér fyrst og fremst. Hlaupið verður auðveldara þegar þú skemmtir þér vel. Búðu til hressandi lagalista fyrir hlaupið og komdu þér í gír- inn. 7. Teygjur eru ómissandi. Teygðu vel í lok hlaups og komdu þannig í veg fyrir harðsperrur og eymsl. SJÖ GÓÐ RÁÐ FYRIR HLAUPIÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.