Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 26
K ristján Eggertsson og Kristján Örn Kjartansson hjá íslensk-dönsku arkitektastofunni KRADS, hafa síð- an árið 2010 nýtt sér Lego-kubba við kennslu og þróun verkefna í listaháskól- um víðsvegar um heiminn. Í byrjun ágúst kom á markað vara frá Lego, Lego Archi- tecture Studio, í Evrópu sem byggist á hug- myndafræði vinnustofu KRADS um að vekja áhuga, virkja sköpunargáfuna og dýpka skilning fólks á arkitektúr almennt. Pakkinn inniheldur 1.200 hvíta Lego-kubba og er, ólíkt öðrum vörum frá Lego, án leiðbeininga. KRADS vann með Lego að þróun vörunnar og er teiknistofan hugmyndafræðilegur rit- stjóri veglegrar bókar sem fylgir kubbunum og er hugsuð til þess að veita innblástur og innsýn í hönnunarferli arkitekta. „Það hefur verið ákveðin tilhneiging hjá arkitektanemum síðustu ár að gera minna af „fýsískum“ líkönum og styðjast frekar við tölvugerð þrívíddarmódel í hönnunarferlinu. „Fýsíska“ líkanið er þó afar mikilvægt verk- færi og okkur langaði að setja saman vinnu- stofu fyrir arkitektanema þar sem eingöngu væri unnið með slík líkön. Við ákváðum að nýta okkur Lego-kubbinn í vinnustofunum þar sem hann er mjög demókratískur sem byggingarefni, þ.e.a.s. það geta allir byggt úr Lego, og fókusinn er því frekar á hug- myndirnar að baki líkönunum en hversu vel þau eru sett saman,“ útskýrir Kristján. Hug- myndin að vinnustofunni var að taka burt þessi hefðbundnu verkfæri sem arkitekta- nemendur notast yfirleitt við, tölvuna, penn- ann og svo framvegis, og leyfa þeim ein- göngu að vinna í líkön. „Það sem gerist með því er að það verður meira samtal milli nemendanna og kubbarn- ir ýta sjálfkrafa undir leik í hönnuninni, sem er mjög mikilvægur þáttur í ferlinu sjálfu,“ útskýrir Kristján Örn en þeir Kristján fóru af stað með áhugaverðar vinnustofur fyrir arkitektanema í Listaháskóla Íslands árið 2010. Upphaflega var vinnustofan aðallega hugsuð fyrir fyrsta árs nemendur, til þess að koma þeim fljótt í gang og kynna þeim grunnhugtök í faginu og ýta undir samtal nemenda. „Vinnustofurnar eru oftast með mjög hratt tempó sem er að því leyti gott að sam- tal nemendanna verður að ganga upp, það er varla tími til þess að vera annað en sammála. Að vissu leyti eru vinnustofurnar þjálfun í skipulagðri sam- vinnu og sú æfing er mjög góð fyrir nem- endur,“ segir Kristján Örn. Árið 2012 tók KRADS þátt í Hönn- unarMars og í stað þess að sýna eitthvert af hefðbundnum verkefnum arkitektastofunnar ákváðu nafnarnir að sýna vinnustofuna sem verkefni. „Við vorum með innsetningu í Hafnarhús- inu. Þar komum við fyrir stórum stöpli í miðju rýmisins með fullt af Lego-kubbum og öllum sem sóttu sýninguna gafst kostur á að spreyta sig á byggingu,“ útskýrir Kristján Örn og þá bætir Kristján við að með sýning- unni hafi þeir uppgötvað hversu góður miðill Lego-kubburinn sé til þess að tengja fólk og ræða arkitektúr. „Lego-kubbarnir eru eitt- hvað sem allir skilja og allir geta nýtt sér. Þó svo að fólk sé stundum, eins og á sýning- unni, bara að leika sér þá hefur þetta já- kvæð áhrif á skilning og umræðuna um arki- tektúr almennt,“ segir Kristján. Hollenski arkitektinn Winy Maas, sem hélt fyrirlestur á HönnuarMars sama ár, varð hrifinn af sýningunni og stakk í kjölfar- ið upp á því að KRADS kæmi með vinnu- Kristján Örn Kjartansson og Kristján Eggertsson hjá arkitektastofunni KRADS. Nemendur í George Town í Penang þar sem Kristján og Kristján Örn stýrðu tveggja daga vinnustofu. Umhverfis hnöttinn með Lego NAFNARNIR KRISTJÁN EGGERTSSON OG KRISTJÁN ÖRN KJARTANSSON HJÁ KRADS ARKITEKTUM HAFA UNDANFARIN FJÖGUR ÁR NÝTT SÉR LEGO-KUBBA VIÐ KENNSLU Í ARKITEKTÚR OG ÞRÓUN VERKEFNA Í LISTAHÁSKÓLUM VÍÐSVEGAR UM HEIMINN. Í KJÖLFARIÐ HÓFU ÞEIR SAM- STARF VIÐ LEGO OG ÞRÓUÐU MEÐ ÞEIM VÖRU SEM ER TIL ÞESS GERÐ AÐ AUKA SKILNING OG ÁHUGA FÓLKS Á ARKITEKTÚR ALMENNT. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is NÝTA LEGO-KUBBA VIÐ KENNSLU OG ÞRÓUN VERKEFNA Morgunblaðið/KristinnLjósmynd/Okui Lala Ljósmynd/Okui Lala 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.8. 2014 Heimili og hönnun H Ú S G AG N A H Ö L L I N • B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • O P I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7 AfsláttuR 3.000 kRónuR! SALA Svart ekta leður Burstað stál í fótum. TILBOÐSVERÐ: 29.990 KR. Fullt verð 34.990 ASAMA PU-svart og hvítt. Krómfætur. TILBOÐSVERÐ: 11.990 KR. Fullt verð 15.990 PIANA Svart, brúnt og hvítt PU áklæði. TILBOÐSVERÐ: 9.990 KR. Fullt verð 12.990 ANDREW Svart, hvítt og brúnt leður. TILBOÐSVERÐ: 14.990 KR. Fullt verð 19.990 ATHENA Ljóst og steingrátt áklæði. Viðarfætur. TILBOÐSVERÐ: 24.990 KR. Fullt verð 29.990 ALEXA Brúnt og svart ekta leður. Burstað stál í fótum. TILBOÐSVERÐ: 29.990 KR. Fullt verð 34.990 AfsláttuR 4.000 kRónuR! AfsláttuR 5.000 kRónuR! AfsláttuR 5.000 kRónuR! AfsláttuR 5.000 kRónuR! AfsláttuR 5.000 kRónuR! REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.