Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 32
reyndar, því aðeins þarf að halda hnappi á því
inni í smá tíma og þá birtist Seagate-netið í
WiFi-stilingum símans. Til þess að tengjast því úr
síma eða spjaldtölvu þarf reyndar sérstakt forrit, Sea-
gate Media app, sem er ókeypis og fáanlegt fyrir Android,
Windows 8 og iOS (iPad og iPhone). Þegar tenging er komin
á er svo hægt að fletta upp því efni sem er á disknum, hvort
sem það er lesefni, tónlist eða kvikmyndir. Fleiri en einn geta
verið að horfa í einu og þurfa ekki að vera að horfa á sama
efnið og þannig streymdi ég þremur mismunandi bíómyndum
í þrjú tæki án vandkvæða og það myndum í miklum gæðum.
Það má líka nota diskinn til að streyma efni beint í sjónvarps-
tæki, þ.e. ef viðkomandi tæki styður Samsung Smart TV,
DNLA eða AirPlay.
Einsog getið er þá er diskurinn með hleðslurafhlöðu og
framleiðandi heldur því fram að hún endist í allt að tíu tíma,
þó að það fari væntanlega eftir því hve mikið hann er notaður,
til að mynda hve mörgum myndum hann streymir samtímis.
Hann var skotfljótur að ná fullri hleðslu, en hann er ýmist
hlaðinn með því að tengja hann beint við tölvu með USB-
snúru (USB 3.0), sem fylgir, eða með meðfylgjandi straum-
breyti. Þrælsniðugt apparat til að hafa á ferðalagi, hvort sem
það er í bíl, í flugvél á hótelherbergi eða í sumarbústaðarferð.
Hægt er að fá diskinn ýmist 500 GB, 1 TB eða 2 TB. 1 TB
Seagate Wireless plus diskur kostar 32.990 kr. í Tölvulist-
anum.
Zepp Golf
Til að forðast allan misskilning þá spila ég ekki og hefaldrei spilað golf. Að því sögðu þá féll ég fyrir agnar-litlu mælitæki, Zepp, sem ætlað er golfgeggjurum og þá
í því skyni að gera þá betri golfara, að bæta sveifluna. Tækið
er ekki nema 28 x 28 mm að stærð og 11 mm að þykkt og fis-
létt, ekki nema 6 g. Því er smellt á vinstri golfhanskann og
mælir síðan allt það sem yfirleitt er hægt að mæla í einni
golfsveiflu.
Tækið talar við síma notandans, hvort sem hann er með
Android-síma eða iPhone, en til þess að nota það þarf að
sækja forrit í viðkomandi síma. Símann má reyndar líka nota
til að mæla sitthvað í högginu, því ef maður er með hann í
vasanum gefur hann upplýsingar um líkamsstöðu og hreyf-
ingu á meðan Zepp-sveiflugreinirinn einbeitir sér að högginu.
Það er einfalt að setja tækið upp, en maður þarf að skrá sig
með netfangi og tilheyrandi og einnig að skrá hvernig gripið
er, þ.e. hve ofarlega á kylfunni, hvort viðkomandi er rétt-
hentur eða örvhentur, aldur, þyngd, forgjöf og tilheyrandi og
svo einnig hvernig kylfu slegið er með.
Það er náttúrlega spurning hversu gagnlegar upplýsing-
arnar eru og líklega er tækið helst fyrir lengra komna, þ.e. þá
sem þekkja veikleika sína og vinna að því að losna við þá, og
svo er það líklega þarfaþing fyrir þá sem eru með
kennara sem getur þá rýnt í tölurnar og gefið góð
ráð í framhaldinu. Zepp er líka til fyrir horna-
bolta (baseball) og tennis. Þess má geta að
tækið er svo létt að maður gleymir því
eiginlega um leið og það er komið á
hanskann. Tækið geymir allt að 2.000
sveiflur í minni og rafhlaðan dugir í ríf-
lega fimm tíma af samfelldum sveifl-
um.
Zepp Golf kostar 20.792 kr. í
iStore.is.
LG G 3
Flestir ef ekki þekkja Android-stýrikerfið á símum ogspjaldtölvum, en það er líka á fleiri tækjum, nú síðastsmátækjum eins og úrum eða tölvur í úralíki, sem verða
sífellt algengari. Samsung var með þeim fyrstu sem kynntu
slíkt apparat, Samsung Galaxy Gear, sem var með Android-
afbrigði til að byrja með en keyrir nú Tizen, sem er Linux-
kyns. Sú útgáfa af Android sem notuð var í fyrstu gerðir
slíkra smátækja, sem kalla má snjallúr, var frumstæð um
margt, en fyrsta útgáfa af Android Wear var kynnt í vor og
fyrstu tækin komu á markað í
sumar, Samsung Gear Live og LG
G Watch.
LG G Watch snjallúrið er nokk-
uð þykkt, ferkantað með rúnnuð
horn. Skjárinn á því er fínn, 1,65"
og upplausnin 280x280 dílar. Sára-
einfalt er að tengja úrið við hvaða
Android-síma sem er, svo fram-
arlega sem hann sé að keyra ný-
lega útgáfu af Android. Það er lít-
ið um hnappa á því, enginn hnappur reyndar, nema ef telja
má örlítinn hnapp sem er nánast falinn á bakinu sem hægt er
að nota til að kveikja á úrinu eða slökkva, en þá þarf legg á
bréfaklemmu eða eitthvað álíka nett. Alla jafna er alltaf kveikt
á úrinu og því stýrt með því að með því að smella á skjáinn
eða nota raddstýringu Google Now, sem virkar bara býsna
vel.
Úrið er vatns- og rykvarið. Ólin á því er ekkert ósvipuð ól á
venjulegu úri og því einfalt að skipta um hana ef vill. Á úrinu
birtast boð úr símanum, til að mynda ef það er nýr tölvu-
póstur eða álíka, dagbókaráminningar og viðlíka. Það getur
líka ræst forrit á símanum ef við á, en alla jafna má líka á það
sem (litinn) aukaskjá fyrir símann. Google Now-væðingin gef-
ur því þó verulega aukið notagildi, en einhver bið á íslenskust-
uðningi.
Örgjörvinn í úrinu er 1,2 GHz Qualcomm Snapdragon 400
sem er með einum kjarna. Vinnsluminni er 512 MB og gagna-
minni 4 GB. rafhlaðan dugir daginn, þ.e. hlaða þarf úrið á
hverju kvöldi líkt og símann.
LG G Watch kostar 39.900 kr.
Segate Wireless plus
Sú var tíðin að maður brenndi allt á geisladiska, en svokom tími utanáliggjandi diska – ekki hef ég tölu á hvemargir diskar eru í neðstu skúffunni og sumir svo gamlir
að þeir eru með IDE-tengi (Parallel ATA). Með tímanum hef-
ur skýið tekið við, þ.e. gögnin eru komin til himna, í vistum
hjá Microsoft (OneDrive), Dropbox, Box og Mega. Það er hag-
ræði af því, en getur líka verið óhagræði til að mynda ef mað-
ur þarf aðgang að miklu gagnamagni, til að mynda kvikmynd,
og er ekki með annað netsamband en 3G eða 4G þjónustu
símafyrirtækja, sem er alla jafna seld okurverði. Þá er vissu-
lega hægt að hafa harðan disk í vasanum, en þá þarf rafmagn
og svo leið til að koma gögnunum í síma eða spjaldtölvu.
Góð leið til að leysa slík vandamál er að hafa harðan disk
með sér í ferðalagið eða bíltúrinn, en hængurinn sá að lófa- og
vasatæki eru ala jafna ekki fær um að tengjast hörðum disk-
um með USB-snúru. Segate Wireless plus leysir þann vanda a
snyrtilegan hátt, því hann er með innbyggt eigið WiFi-net og
síðan með innbyggðri hleðslurafhlöðu.
Það er einfalt að koma tækinu í samband, ótrúlega einfalt
NÝ TÆKNI: SNJALLÚR,
ÞRÁÐLAUS DISKUR OG
GOLFSVEIFLUGREINIR
* Með snjallúrieins og LG G
Watch er hægt að
tengjast snjallsíma
og fylgjast með
tölvupósti, lesa dag-
bókaráminningar, telja
skref dagsins og fylgj-
ast með líkamsrækt-
inni, fá tilkynningar frá
ýmsum þjónustum og
svo er hægt að raddstýra
símanum.
* Segate Wireless plus leysir margt það leiðinlegasta viðað vera með utanáliggjandi diska – hann keyrir eigin þráðlaust
net og því hægt að streyma efni frá honum í farsíma eða
spjaldtölvur (eða aðrar tölvur sem eru með aðgang að þráð-
lausu neti). Innbyggð rafhlaða eykur notatgildið svo til muna.
* Sveiflan er þráhyggja hjá golfiðk-endum og Zepp Golf-apparat til að
vinna í henni; mælirinn, sem er örlítill
og fisléttur, er festur á hanskann og
mælir síðan hraða, stefnu, stöðu,
sláttuhorn og fleira. Upplýsingar um
höggin er svo hægt að skoða mynd-
rænt í símaforriti eða á vefsíðu.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
ÞAÐ AÐ HAFA FARSÍMA Í VASANUM ER AÐ VERA MEÐ TÖLVU OG ÞAÐ BÝSNA
FULLKOMNA OG ÖFLUGA TÖLVU. ÞAÐ TÖLVUAFL MÁ NOTA Í ANNAÐ EN FACEBOOK-
STATUSA OG ISTAGRAM-MYNDIR, TIL AÐ MYNDA MÁ TENGJA ALLS KYNS MÆLA OG
TÆKI VIÐ SÍMANN OG SVO MÁ KOMAST HJÁ EILÍFU PLÁSSLEYFI MEÐ ÞVÍ AÐ FÁ SÉR
ALMENNILEGAN UTANÁLIGGJANDI – ÞRÁÐLAUSAN – HARÐAN DISK.
Græjur
og tækni
Ástin vinsælust á Instagram
AFP
*Instagram-smáforritið er feikivinsælt en forritiðgerir notendum kleift að deila ljósmyndum ogmyndböndum með vinum sínum auk þess aðskoða myndir hjá öðrum. Nýlegar tölur gefa tilkynna að um 200 milljón einstaklingar noti for-ritið mánaðarlega. Notendur Instagram kann-ast þá eflaust flestir við kassamerkið (hashtag)
sem gerir myndina þína sýnilegri. Allra vinsæl-
asta kassamerkið er að sjálfsögðu love eða ást.