Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Page 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Page 33
Philips-heyrnartól SHP1900 Þægileg heyrnartól frá Philips með tveggja metra langri snúru og mjúkum eyrnapúðum. 2.995 kr. Beats Solo HD-heyrnartól Beats Solo HD eru flott og vönduð heyrnartól og aðeins 160 g á þyngd. Hljóðgæðin eru mikil og útlitið svalt. Í snúrunni er innbyggður hljóðnemi fyrir símtöl. 39.995 kr. ÓDÝRT MIÐLUNGS DÝRT Fyrir tónlistarunnendur Goji Tinchy Stryder- heyrnartól Töff heyrnartól frá Goji sem hægt er að leggja saman. Heyrnartólin eru 230 g að þyngd og hafa 1,2 metra langa snúru. 12.995 kr. 31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 * Vertu minna forvitinn umfólk og meira forvit- inn um hugmyndir. Marie Curie Flestir ferðalangar kannast við það að vera vinsamleg- ast beðnir að slökkva á farsímum við flugtak þar sem þeir gætu haft truflandi áhrif á næm stýri- og sam- skiptatæki flugvéla. Það eru eflaust margir sem freistast til að hunsa þessa beiðni þar sem það fylgja því ákveðin óþægindi að vera síma- og tölvulaus í margar klukkustundir. Nýleg könnun á vegum Airline Passenger Experi- ence Association leiddi í ljós að fjórir af hverjum tíu Bandaríkjamönnum sem ferðast með flugvél viður- kenna að þeir slökkvi ekki alltaf á farsímanum áður en flugvélin tekur á loft þrátt fyrir að vera beðnir um það. Reglur um farsímanotkun um borð í flugvélum eru nokkuð samræmdar á milli landa. Í reglum flestra flugfélaga er talað um að farsíma ætti ekki að nota undir 10 þúsund feta hæð, jafnvel þótt síminn sé stilltur á svokallað flight mode. Þessar reglur eiga ekki bara við um farsíma heldur einnig aðrar græjur, svo sem Kindle-spjaldtölvur, iPod-spilara og fartölvur þar sem þessi tól eru sögð geta truflað viðkvæm rafræn stjórn- og samskiptatæki flugvéla. Þegar vélin er komin upp fyrir þessa tilteknu hæð er oft leyfilegt að nota fartölvur og mp3-spilara en á símum ætti áfram að vera slökkt. Farþegum er sagt að þessar reglur séu mikilvægar til að koma í veg fyrir truflun á viðkvæmum rafrænum kerfum um borð í vélinni en ástæðurnar eru sjaldan útskýrðar. Petre Ladkin, prófessor við Bielefeld-háskólann í Þýskalandi, gerði tilraun til að lýsa þeim áhrifum sem tæki á borð við farsíma geta haft á stjórntæki flug- vélar. Hann líkti samskipta- og stjórntækjum flugvélar við hitalagnir húss sem laga sig að hitastigi umhverf- isins. Þá sagði hann að farsímar og aðrar græjur gætu haft ruglandi áhrif á stjórntæki flugvélar sem læsu um- hverfi hennar. En eru til einhver dæmi sem sanna þessa kenningu? Það eru ekki til nein marktæk dæmi um að truflun frá farsíma eða annarri græju hafi valdið flugslysi en flug- öryggisstofnun Bandaríkjanna gaf þó nýverið út skýrslu yfir um 50 atvik þar sem rafræn tæki farþega ollu truflunum í stjórn- og samskiptatækjum flugvéla. Því ættu farþegar flugvéla möglunarlaust að hlýða til- mælum flugfélaga um að slökkva á farsímum og öðr- um tækjum meðan á flugi stendur. gudnyhronn@mbl.is NOTKUN RAFTÆKJA Í HÁLOFTUNUM Farsímar eru sagðir geta haft truflandi áhrif á stjórntæki flugvéla en ótal farþegar hunsa þessar upplýsingar. AFP Vinsamlegast slökkvið á farsímum Árið 2012 urðu snjallsímanotendur einn milljarður og talið er að þeir muni ná 1,75 milljörðum fyrir lok ársins 2014. Ódýrir snjallsímar á markaði eru taldir ástæðan fyrir mikilli fjölgun snjallsímanotenda. Snjallsímar eru að lækka í verði. Snjallsímanot- endum fjölgar Sequel hliðartöskur 13-15” Fartölvutöskur sem passa vel fyrir fartölvuna, spjaldtölvuna og aukahluti. Verð13.990.- Office skólaútgáfa Inniheldur eitt leyfi fyrir Word, Excel og PowerPoint. Verð 24.990.- 11" verð frá 159.990.- 13" verð frá 179.990.-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.