Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Qupperneq 49
31.8. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Síðasti dagur sýningar á mál- verkum Rúnu K. Tetzschner og þæfðum ullarverkum Kömmu Níelsdóttur í hlöðunni við Krók á Garðaholti, við Garðakirkju í Garðabæ, er á morgun, sunnudag. Opið er milli kl. 13 og 17. 2 Hljómsveitin Á móti sól leikur á hinum árlega kjötsúpudansleik í Hvoli á Hvolsvelli í kvöld, laugar- dagskvöldið 30. ágúst. Hljómsveitin hefur leik á miðnætti, en húsið verð- ur opnað kl. 23. Fyrr um kvöldið stjórnar Magni Ásgeirsson, söngvari sveitarinnar, vallarsöng við snarkandi varðeld. 4 Skynjun nefnist sýning á verk- um listakonunnar Ragnhild- ar Stefánsdóttur sem opn- uð verður í safnaðarheimili Neskirkju á morgun, sunnudag. Sýn- ingin samanstendur af þremur verk- um listakonunnar. 5 Lokadagur alþjóðlegu leik- listarhátíðarinnar Lókal er í dag, laugardag. Í kvöld kl. 19 er í Tjarnarbíói hægt að sjá sýninguna Petru sem Pétur Ár- mannsson samdi til minningar um langömmu sína, Petru Sveinsdóttur sem flestir þekktu sem Steina-Petru enda var hún öflugur steinasafnari meðan hún lifði. 3 Reykjavík Dance Festival stendur sem hæst um helgina. Í dag, laugardag, er hægt að sjá Wilhelm Scream í Kassanum í Þjóðleikhúsinu kl. 17 og í kvöld kl. 21.30 verður sýningin Reið frumsýnd í Borgarleikhúsinu. MÆLT MEÐ 1 Yfirleitt nenni ég ekki að gera neitt í til-efni dagsins, en svo fékk ég þá hug-mynd að gaman væri að halda tón- leika,“ segir djasspíanistinn Agnar Már Magnússon, sem heldur einleikstónleika í Hannesarholti í dag, laugardag, kl. 16. Agn- ar Már segist lengi hafa langað að halda tón- leika í Hannesarholti. Aðspurður segist Agnar Már ekki ætlast til þess að allir vinir og vandamenn hans mæti á tónleikana, sem eru öllum opnir því hann ætlar að bjóða þeim til samsætis ann- ars staðar að tónleikum loknum. „Það er auðvitað vandmeðfarið að halda tónleika á þessum tiltekna degi, því mann langar auð- vitað að bjóða öllum sem er ekki hægt.“ Inntur eftir efnisskránni segist Agnar Már munu leika eigin verk í bland við þekkta djassstandarda sem og eigin spunaverk. Ljóst er að af nógu er að taka því Agnar Már hefur gefið út fjóra diska með eigin efni frá árinu 2001. „Samkvæmt upplýsingum frá STEF eru skráð á mig eitthvað í kringum hundrað lög, þar af eru 24 verk af spuna- diskinum Hyl sem ég gaf út fyrir tveimur árum,“ segir Agnar Már og viðurkennir að heildarfjöldinn hafi komið sér nokkuð á óvart. Spurður hvort hann hyggist leika af- mælissönginn á tónleikunum í tilefni dagsins segir Agnar Már það aldrei að vita. „Þetta er reyndar uppáhaldslag dóttur minnar sem er þriggja ára þannig að ég spila það mjög oft. Ég er búinn að búa til mína eigin útgáfu af laginu,“ segir Agnar Már og útilokar ekki að tónleikagestir fái að heyra hljómsetningu hans. silja@mbl.is EIGIN VERK Í BLAND VIÐ ÞEKKTA DJASSSTANDARDA SEM OG EIGIN SPUNAVERK Tónleikar í tilefni dagsins AGNAR MÁR MAGNÚSSON HELD- UR EINLEIKSTÓNLEIKA Í HANN- ESARHOLTI Í DAG, LAUGARDAG, Í TILEFNI AF FERTUGSAFMÆLI SÍNU. Agnar Már Magnússon spilar afmælislagið oft fyrir dóttur sína, enda er það uppáhaldslagið hennar. Ljósmynd/Daníel Starrason „Þó að við höfum klippt þetta niður í hæfilega tímalengd þá má ekkert vera að ritstýra þessu of mikið. Þetta eru tilraunir, stundum tókust þær ótrúlega vel og stundum ekkert svo vel. Við ætlum ekkert að fegra þetta, þetta var ekki alltaf dans á rósum,“ segir Albert meðal annars um afsprengi Úslands. Morgunblaðið/Þórður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.