Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.08.2014, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2014
Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari flýgur á mánu-
dag til Íran, þar sem hún verður meðal dómara í al-
þjóðlegri höggmyndasamkeppni sem stendur nú yfir.
Keppnin er liður í alþjóðlegu höggmyndamálþingi í Pa-
dide, úthverfi annarrar stærstu borgar Íran, Mashhad. Í
Padide á sér stað gríðarleg uppbygging þar sem mynd-
list kemur mikið við sögu.
„Þetta er mjög spennandi verkefni en umsjónarmaður
þess, Behdad Lahooti, hafði samband við mig og bað mig
að taka sæti í þriggja manna dómnefnd,“ segir Steinunn.
35 keppendur, þar af átta erlendir, hafa að undanförnu
unnið að verkum í fullri stærð og verða úrslit kunngjörð
um næstu helgi. Efnið er valfrjálst.
Steinunn segir áhugavert að lokað land á borð við Íran
sem sætir viðskiptaþvingunum sé að halda alþjóðlega
keppni af þessu tagi en á móti kemur að margir íranskir
myndlistarmenn hafi látið að sér kveða undanfarin ár.
Nægir þar að nefna Shirin Neshat sem búsett er í New
York en hún er þekktust fyrir myndbands- og ljós-
myndaverk sín sem mörg hver eru af pólitískum toga.
Einnig má geta þess að einn þriggja dómnefndarmanna
er Hossein Valamanesh, þekktur íranskur listamaður
sem búsettur er í Ástralíu.
„Írönsk menning stendur á gömlum merg og það verð-
ur mjög fróðlegt að koma þangað og kynna sér strauma
og stefnur. Ég hlakka mikið til,“ segir Steinunn en fyrir
liggur að hún fær að skoða ýmsa merka staði í fylgd leið-
sögumanns, svo sem hina fornu borg Shiraz. „Ég er byrj-
uð að æfa mig að bera slæðu en það er algjört skilyrði.“
Behdad Lahooti, stjórnandi verkefnisins hefur sýnt
verkum Steinunnar mikinn áhuga. „Það er merkilegt í
ljósi þess að oft er því haldið fram að múslimar séu al-
mennt ekki hrifnir af nekt í myndlist,“ segir Steinunn
sposk en fígúrur hennar eru iðulega án klæða.
Steinunn
Þórarinsdóttir á
vinnustofu sinni
í Reykjavík.
Morgunblaðið/Ómar
STEINUNN ÞÓRARINSDÓTTIR MYNDHÖGGVARI
Dæmir skúlptúra í Íran
Miyazaki,
103 ára, kom
fyrstur í mark.
AFP
HUNDGAMALL HLAUPAGARPUR
WMA eða World Masters Athletics hefur staðfest að Hide-
kichi Miyazaki frá Kyoto í Japan sé sneggsti hlaupari í heimi á
tíræðisaldri. Kappinn er hvorki meira né minna en 103 ára
gamall og verður 104 á árinu og er við hestaheilsu. Hann
fæddist árið 1910, en þá var enn verið að smíða stórskipið Tit-
anic. Hann hljóp 100 metra í Masters Athletics-keppninni í
Japan á innan við 30 sekúndum, nánar tiltekið 29,83 sek-
úndum.
Miyazaki er grannur og smávaxinn, aðeins 1,53 cm á hæð og
42 kíló. Með hlaupi sínu vill Miyazaki sína fram á hversu mik-
ilvægt er að lifa heilsusamlegu lífi, sérstaklega á efri árum.
„Ég vil halda lífi í draumi mínum. Ég reyni að halda mér í
aga og þannig viðhalda góðri heilsu og góðu formi. Það er
mjög mikilvægt fyrir alla,“ segir hann í samtali við fréttastofu
AFP. „Þegar ég borða tygg ég hvern bita 30 sinnum áður en
ég kyngi. Fyrir vikið er maginn minn hamingjusamur.“ Miya-
zaki viðurkennir að töfrafæði hjálpi honum við hlaupin en það
ku vera mandarínumarmelaði dóttur hans. Ekki væri verra að
fá uppskrift að því.
103 ára setti
heimsmet
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Gabríela Friðriksdóttir
listakona
Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir
stílisti
Fairuza Balk
leikkona
GO CRAZY
25%
af öllu*
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
LAUGARDAG 30/8
& SUNNUDAG 31/8
*Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði
og merktum Everyday low price.
Afsláttur reiknast á kassa.
Sparaðu 40%
AF ÖLLUM SUMARVÖRUM
AÐEINS ÞESSA HELGI
NÚ
89.925
Bora-sófi. Áður 119.900kr.
NÚ
13.425
Moon-stóll. Áður 17.900kr.
NÚ
7.496
Oslo-ábreiða. Áður 9.995kr. Ballmulti pend-loftljós.
Áður 99.995kr.
NÚ
74.996
NÚ
2.997
Sommer-fatameð leðurhöldum.
Stór. Áður 4.995kr.
NÚ
29.940
Click-ruggustóll.
Áður 49.900kr.