Morgunblaðið - 05.09.2014, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 5. S E P T E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 207. tölublað 102. árgangur
• AFSLÁTTUR AF FLUGI INNANLANDS
• SÉRÞJÓNUSTA OG FRÍÐINDI
• VIÐSKIPTAYFIRLIT
FYRIR FYRIRTÆKI OG ATHAFNAFÓLK.
Sæktu um á flugfelag.is eða
sendu póst á flugkort@flugfelag.is
FLUGKORTIÐ HAGKVÆMT GREIÐSLU-OG VIÐSKIPTAKORT
AUKABLAÐ
UM BÖRN OG
UPPELDI
BRÆÐRA- OG SVEITASAGA
BALDUR „BONGÓ“
ER MEÐ MÖRG
JÁRN Í ELDINUM
KVIKMYNDIN HRÚTAR 30 GRUNDARFJÖRÐUR 14LIFUN 24 SÍÐUR
Morgunblaðið/Golli
Í þingsal Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, við nýja ræðustólinn.
Þingmenn í hjólastól munu í fyrsta
skipti í þingsögunni geta ávarpað
þingheim úr ræðustól í þingsal þeg-
ar Alþingi kemur saman næstkom-
andi þriðjudag. Nýjum ræðustól hef-
ur verið komið fyrir í þingsalnum og
hefur aðgengi fatlaðra þannig verið
bætt til mikilla muna.
„Þetta er fyrst og fremst gert til
að allir þingmenn njóti sama réttar í
þingsalnum, hvort sem þeir eru fatl-
aðir eða ófatlaðir,“ segir Helgi Bern-
ódusson, skrifstofustjóri Alþingis.
Ræðustóllinn lítur nánast eins út og
gamli stóllinn en hann er með bún-
aði svo hægt er að lækka hann eftir
þörfum. Minjastofnun hefur fylgst
með breytingunum og fallist á þær.
»4
Nýr ræðustóll bætir
aðgengi fatlaðra í
þingsal Alþingis
Bogi Þór Arason
Kristján H. Johannessen
„Það er ljóst að atburðir þeir sem
gerst hafa í Úkraínu og annars
staðar í heiminum munu móta Atl-
antshafsbandalagið til framtíðar,“
segir Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra í samtali við Morg-
unblaðið, en hann situr ásamt Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni
forsætisráðherra leiðtogafund Atl-
antshafsbandalagsins sem fram fer
í Wales. Málefni Úkraínu eru efst á
baugi á fundinum.
Fram kemur í yfirlýsingu fund-
arins að hernaðarinngrip og aðgerð-
ir Rússa í Úkraínu ógni öryggi Evr-
ópu og séu brot á alþjóðalögum.
Áréttuðu leiðtogarnir stuðning sinn
við fullveldi og sjálfstæði landsins
og eru stjórnvöld í Rússlandi hvött
til að styðja friðsamlega lausn mála.
Forseti Úkraínu var meðal þeirra
sem til máls tóku á leiðtogafund-
inum og segir Gunnar Bragi lýs-
ingar hans á ástandinu átakanlegar.
„Það má vitanlega skilja af orðum
hans að ástandið sé nú með þeim
hætti að verði það ekki stöðvað
núna muni menn endanlega missa
tökin.“ Fundinum hefur verið lýst
sem mikilvægasta leiðtogafundi
bandalagsins eftir að kalda stríðinu
lauk. Talið er að Úkraínuher þurfi
þungavopn og aðra aðstoð frá aðild-
arríkjunum til að eiga möguleika á
að sigra uppreisnarmenn.
MLeiðtogafundur »6, 17 og 18
Árétta stuðning við Úkraínu
Mikilvægasti leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins frá lokum kalda stríðsins
Nýnemar í Menntaskólanum í Reykjavík voru
boðnir velkomnir á hefðbundinn hátt í gær.
Skiljanlega fengu sumir fiðring í magann þegar
þeir voru tolleraðir af tógaklæddum sjöttubekk-
ingum. Allt var þó til gamans gert og var nýnem-
unum boðið upp á mjólk og köku á eftir.
Með fiðring í maganum yfir móttökunum
Morgunblaðið/Golli
Hefðbundin nýnemavígsla fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í gær
Sálfræðingur-
inn Anna Kristín
Newton segir
ástand á með-
ferðarúrræðum
fyrir fólk með
barnagirnd
minna á feluleik.
Meðferðaraðilar
mega ekki aug-
lýsa þjónustu sína og fá ekki stuðn-
ing frá hinu opinbera á meðan fólk
með barnagirnd þorir ekki að leita
sér aðstoðar af ótta við afleiðing-
arnar.
Í dag býðst dæmdum kynferðis-
brotamönnum sálfræðiaðstoð með-
an á fangavist þeirra stendur en
Anna segir þá einnig þurfa stuðn-
ing eftir að henni lýkur. Þar að auki
sé nauðsynlegt að ná til þeirra ein-
staklinga með barnagirnd sem ekki
hafa brotið af sér svo hægt sé að
hjálpa þeim að hafa stjórn á hvötum
sínum. „Það er sá hópur sem mikil-
vægast er að ná til en það þarf að
vera gert með stuðningi opinberra
aðila.“ »12
Einn stór feluleikur