Morgunblaðið - 05.09.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
extra stórar og flottar
Hágæða flísar
frá Ítalíu
Frábært verð
Sérpöntunarvara
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Nýjum ræðustól hefur verið komið
fyrir í þingsal Alþingis og hefur að-
gengi fatlaðra þannig verið bætt til
mikilla muna þegar þingmenn koma
saman við þingsetningu næstkom-
andi þriðjudag. Þingmenn sem
bundnir eru í hjólastól munu fram-
vegis geta flutt ræður sínar úr ræðu-
stólnum, sem hannaður er fyrir
hjólastóla.
„Þetta er fyrst og fremst gert
til að allir þingmenn njóti sama rétt-
ar í þingsalnum, hvort sem þeir eru
fatlaðir eða ófatlaðir,“ segir Helgi
Bernódusson, skrifstofustjóri Al-
þingis.
Allir þingmenn töluðu úr sæt-
um sínum allt til ársins 1952
„Ræðustóll varð ekki hluti af
innréttingunni í þingsalnum fyrr en
árið 1952 en fram til þess tíma töl-
uðu þingmenn og ráðherrar úr sæt-
um sínum,“ segir Helgi. „Þá var
segulbandstæknin tiltölulega nýtil-
komin og var þingið með þeim fyrstu
sem tóku hana í notkun hér á landi.
Farið var að taka upp allar þingræð-
ur en þá var það ófrávíkjanlegt skil-
yrði tæknimanna að ræður yrðu
fluttar úr ræðustól. Það var því af
tæknilegum ástæðum sem því var
hætt að þingmenn töluðu úr sætum
sínum,“ segir hann.
Upp frá þessu hafa þingmenn
alltaf talað úr ræðustól með örfáum
undantekningum þegar fatlaðir
menn sem hafa átt sæti á Alþingi og
ekki getað staðið í ræðupúltinu hafa
fengið að tala úr sætum sínum.
Ræðustólar voru í báðum þing-
deildum frá 1952 á meðan Alþingi
var deildaskipt og frá því um 1960
hefur ræðustóllinn verið beint fyrir
framan forsetastúkuna í neðri deild
og sameinuðu þingi. Þegar deild-
irnar voru sameinaðar árið 1991 var
ræðustóllinn sem stóð í neðri deild
og sameinuðu þingi fjarlægður og
stendur hann í dag í anddyri Skála
Alþingis en forsetastúkunni og
ræðustólnum sem voru í efri deild
var komið fyrir í þingsalnum.
,,Allar götur frá því um miðjan
áttunda áratuginn þegar þeir sátu
hér í salnum Jóhann Hafstein [fyrrv.
forsætisráðherra og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins] og Magnús
Kjartansson [fyrrv. ráðherra og
þingmaður Alþýðubandalagsins] en
þeir voru báðir í hjólastól, þá hófst
umræða um að búa þyrfti þannig um
hnútana að fatlað fólk gæti talað úr
ræðustól þingsins.
Þetta hefur svo verið til um-
ræðu annað slagið undanfarin ár en
síðan var látið til skarar skríða síð-
ast liðinn vetur. Niðurstaðan varð sú
að láta smíða nýjan ræðustól, sem
væri eins líkur gamla ræðupúltinu
og kostur væri á og þannig frá því
gengið að þingmaður í hjólastól
kæmist í ræðupúltið,“ segir Helgi.
Hægt að lækka stólinn mikið
Nýi stóllinn stendur aðeins
framar í salnum en áður og meira bil
er því á milli hans og forsetastúk-
unnar, sem var færð lítið eitt nær
veggnum. Í nýja stólnum er búnaður
svo hægt er að hækka hann og
lækka eftir þörfum og láta hann síga
mun neðar en gamla stólinn svo auð-
veldlega er hægt að koma hjólastól
að honum. Einnig geta starfsmenn
þingsins sem sitja við hlið forseta
hækkað eða lækkað fótstallinn sem
ræðumenn standa á við púltið og lát-
ið það síga niður í gólfhæð til að auð-
velda aðgengi að púltinu.
Freyja Haraldsdóttir,varaþing-
maður Bjartrar framtíðar, sem hef-
ur nokkrum sinnum tekið sæti á Al-
þingi hefur fram til þessa ekki getað
talað úr ræðustólnum vegna fötlunar
og þurft að flytja ræður úr sæti sínu.
Að sögn Helga mun hún framvegis
geta farið í ræðustól þingsins.
,,Við höfum verið í mjög mikilli
samvinnu við forsætisnefnd þingsins
um þessar breytingar og hefur Ein-
ar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis,
lagt mikla áherslu á að breytingar
og frágangur allur sé gerður í góðu
samkomulagi allra flokka, bæði í
samvinnu í forsætisnefnd þingsins
og eins hefur hann haft samráð við
formenn þingflokkanna um þetta,“
segir Helgi.
Alþingishúsið er alfriðað og má
engar breytingar gera á útliti þing-
salarins nema í samráði við Minja-
stofnun. Fulltrúar hennar skoðuðu
nýja ræðustólinn í gær og eru þeir
mjög sáttir við hvernig til hefur tek-
ist, að sögn Helga.
Sjáanlegar breytingar eru litl-
ar. Stóllinn er nokkurn veginn á
sama stað og lítur nokkurn veginn
eins út og gamli ræðustóllinn, að
sögn hans. Helgi segir að gamli
ræðustóllinn verði varðveittur, enda
er engu fargað sem tekið hefur verið
úr notkun í þinghúsinu.
Það var Stálsmiðjan-Framtak
sem sá um smíði nýja ræðustólsins
fyrir Alþingi.
Fatlaðir geta
talað úr nýja
ræðustólnum
„Allir þingmenn njóti sama réttar í
þingsalnum,“ segir Helgi Bernódusson
Morgunblaðið/Golli
Í lægstu stöðu Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, við nýja ræðu-
stólinn. Hægt er að hækka og lækka stólinn mikið eftir þörfum hverju sinni.
Nýr ræðustóll settur upp í þingsal Alþingis og aðgengi fatlaðra stórbætt
Breytingar í þingsal
» Oft hefur komið til um-
ræðu á Alþingi að bæta þurfi
aðstöðu fyrir fatlaða í þing-
salnum.
» Gamli ræðustóllinn hefur
nú verið fjarlægður og nýjum
stól komið fyrir með búnaði
svo hægt er að koma hjólastól
að honum.
» Þingsetning fer fram
næstkomandi þriðjudag.
Oslóarborg mun
áfram færa
Reykjavíkurborg
jólatré að gjöf.
Því lýsti borgar-
stjórinn í Osló,
Fabian Stang,
yfir í bréfi sem
hann sendi Degi
B. Eggertssyni,
borgarstjóra í
Reykjavík. Í
bréfinu er einnig upplýst að skipa-
félagið sem hefur flutt tréð á milli
landanna borgunum að kostnaðar-
lausu muni gera það áfram.
Nokkur umræða varð um Osló-
artréð í vetur sem leið en borgar-
stjórn Oslóar tók þá ákvörðun um
að hætta við að gefa Reykjavíkur-
borg tréð. Í tilkynningu frá borg-
inni segir að ákvörðun Oslóar-
borgar hafi verið dregin til baka
og norskt tré mun áfram prýða
Austurvöll á aðventunni borgar-
búum til mikillar gleði en mikill
mannfjöldi hefur jafnan verið við-
staddur þegar ljós Oslóartrésins
eru tendruð.
Áfram verður Osló-
artré á Austurvelli
yfir jólahátíðina
Frá Osló Jólatréð á
Austurvelli.
Síðasta lag fyrir
hádegisfréttir
hefur hljómað á
rás 1 í Ríkis-
útvarpinu lengur
en elstu menn
muna, en nú hef-
ur verið tekin sú
ákvörðun að
færa dagskrár-
liðinn fram fyrir auglýsingar og
koma þær því á milli lagsins og
fréttanna.
Una Margrét Jónsdóttir dag-
skrárgerðarmaður, sem velur að
jafnaði lagið, segir að stjórnendur
hafi tekið þessa ákvörðun til þess
að einfalda útsendinguna, þar sem
meira sé um það en áður að dag-
skrárgerðarmenn sjái um útsend-
ingar en ekki tæknimenn.
Áratuga hefð er fyrir því að spila
síðasta lag fyrir fréttir, en í stað
þess að byrja um 18 mínútur yfir 12
hefst spilun lagsins um 10 til 12
mínútur yfir 12 og er nú síðasta lag
fyrir auglýsingar.
Fyrir nokkru var tilkynnt að
ákveðið hefði verið að hætta með
dagskrárliðina morgunbæn, morg-
unandakt og orð kvöldsins á Rás 1
en eftir töluverð viðbrögð úr sam-
félaginu við fyrirhuguðum breyt-
ingum var ákveðið að halda morg-
unbæn áfram á dagskrá.
steinthor@mbl.is
Síðasta lag fyrir
auglýsingar
Afgreiðslu á tillögu fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks í skóla- og frístundaráði
Reykjavíkurborgar um úrbætur á
mötuneyti Hagaskóla var frestað á
fundi ráðsins síðastliðinn miðvikudag.
„Við viljum leysa málið sem fyrst
og koma því í skýrari og öruggari far-
veg,“ segir Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
um tillöguna.
Eldhúsið í Hagaskóla er orðið of
lítið til að anna þeim fjölda nemenda
sem nú er í skólanum og því hefur
þurft að draga verulega úr fjölbreytni
á hádegismatseðli skólans. Þetta kom
fram í Morgunblaðinu í síðustu viku.
Í tillögunni er lagt til að ráðist
verði í „viðeigandi úrbætur á húsnæði
skólans í því skyni að tryggja sam-
bærilega þjónustu mötuneytisins og
veitt var sl. vetur“. Einnig er óskað
eftir að heilbrigðiseftirlitið samþykki
að mötuneytið starfi áfram á und-
anþágu þar sem framkvæmdir á hús-
næði munu liggja fyrir.
„Það er hefð fyrir því að tillögur
sem lagðar eru fram á fundi séu skoð-
aðar á milli funda og afgreiddar jafn-
vel á þeim næsta,“ segir Skúli Helga-
son, formaður skóla- og
frístundaráðs, um frestunina.
Skúli vildi ekki tjá sig efnislega um
tillöguna. „Afstaða okkar til málsins
er sú að skóla- og frístundaráð hefur
þegar lagt fram þær óskir inn í fjár-
hagsáætlun fyrir 2015 að mötuneyti í
fjórum skólum séu í forgangshópi til
úrbóta. Við munum fylgja því fast eft-
ir og erum öll á sömu blaðsíðu um að
knýja fram endurbætur,“ segir Skúli.
Á síðasta fundi ráðsins voru ýmsar
hugmyndir ræddar varðandi úrlausn-
ir. Það liggur fyrir að fundað verður
með stjórnendum Hagaskóla á næst-
unni. Hagaskóli er á meðal fjögurra
skóla sem eru efst á lista yfir skóla
þar sem brýnast þykir að bæta mötu-
neyti. Ekki fékkst uppgefið hverjir
hinir skólarnir væru. thorunn@mbl.is
Úrbótatillögu frestað
Tillögu um úrbætur á mötuneyti Hagaskóla frestað
Allir vilja knýja á um úrbætur, segir formaður
Hagaskóli Mötuneytið er of lítið.