Morgunblaðið - 05.09.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Þessi söfnun er ein sú mikilvægasta
fyrir starfsemi Rauða krossins hér á
landi,“ segir Björn Teitsson, upplýs-
ingafulltrúi hjá Rauða krossinum,
um landssöfnunina „Göngum til
góðs“. Söfnunin hófst í gær og
stendur út helgina, til miðnættis
sunnudaginn 7. september.
Söfnunin gengur þannig fyrir sig
að sjálfboðaliðar ganga í hús með
söfnunarbauka en einnig er hægt að
hringja í söfnunarsíma og veita
framlag í gegnum söfnunarapp
Rauða krossins. Þetta er í áttunda
sinn sem söfnunin fer fram en hún er
haldin annað hvert ár. Að þessu
sinni er hugað að söfnun sem nýta á
innanlands til ólíkra verkefna.
Hvar þrengir að?
Stærstu verkefni samtakanna á
Íslandi snúa að neyðaraðstoð og
áfallahjálp. Björn segir að einnig
eigi að nýta söfnunarféð í samræmi
við niðurstöður skýrslu sem Rauði
krossinn gerði undir yfirskriftinni
„Hvar þrengir að?“
„Hún sýndi að ungt fólk glímir í
meira mæli við atvinnuleysi og ein-
angrun. Sérstaklega á þetta við um
unga karla og eldra fólk sem glímir
við félagslega einangrun. Þá eykst
bilið á milli ríkra og fátækra. Meira
er um fíkniefnaneyslu og sjúkdóma
tengda henni. Markmið söfnunar-
innar er að styrkja það starf sem
getur komið á móts við þessa þætti
samfélagsins,“ segir Björn.
Í auglýsingum fyrir söfnunina
hefur Rauði krossinn haft uppi á
fólki sem safnaði fé fyrir samtökin á
tombólum sem börn. Björn segir að
fólk hafi verið mjög jákvætt þegar
haft var samband við það. „Við vit-
um til þess að gamlir vinir sem hafa
séð mynd af sér saman sem börn
ætla að ganga saman og safna fram-
lögum um helgina,“ segir Björn.
Kynslóðir hafa safnað
Tombólusöfnun fyrir Rauða
krossinn á sér langa hefð á Íslandi.
„Þetta nær langt aftur og fyrstu
kynslóðir eru jafnvel orðnar afar og
ömmur í dag. Eins eru þetta orðnir
foreldrar í dag og þeir minna börn
sín á að láta gott af sér leiða. Börnin
eru yfirleitt minna að hugsa um pen-
ingana en það að fá mynd af sér í
Moggann þótt ekkert nema gott sé
um það að segja. Myndbirtingin á
stóran þátt í þessu og býr til góðan
hvata fyrir börn til þess að láta gott
af sér leiða. Það er gott veganesti
fyrir þau út í lífið,“ segir Björn.
Gamlir vinir sameinast í söfnun
Landssöfnun Rauða krossins, Göngum til góðs, hófst í gær og lýkur á sunnudag Ein mikilvægasta
söfnun samtakanna Tombólusöfnun á sér áratugalanga hefð og „afar og ömmur“ hafa verið með
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Göngum til góðs Sjálfboðaliðar munu ganga um landið og safna fé fyrir Rauða krossinn.
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
55% þeirra sem beita stúlkur
kynferðislegu ofbeldi eru karlar
tengdir fjölskyldu þeirra.
Bambo Nature bleiurnar eru einstaklega mjúkar og þægilegar. Þær eru afar
rakadrægar og ofnæmisprófaðar auk þess sem gott snið og teygjur í hliðum
gera það að verkum að þær passa barninu fullkomlega.Sölustaðir Bambo Nature
Umhverfisvænar og ofnæmisprófaðar bleiur
Bambo Nature
BamboNature – er annt um barnið þitt.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
31
46
Spilakassar Rauða kross Íslands hafa lengi verið ein helsta tekjulind
samtakanna. Mjög hefur dregið úr spilun og fyrir vikið hafa tekjur dregist
saman. Að sögn Björns Teitssonar fékk RKÍ rúman milljarð króna að nú-
virði frá kössunum árið 1998 en í fyrra voru tekjurnar um 400 milljónir
króna. „Á milli áranna 2012 og 2013 lækkuðu tekjurnar um 2% en 6%
þegar tekið er tillit til vísitölu neysluverðs,“ segir Björn. Starfsemin
byggist að mestu á frjálsum framlögum frá fólki. „Þess vegna er lands-
söfnunin ein mikilvægsta fjáröflun félagsins,“ segir Björn.
600 milljóna tekjurýrnun
MINNA FRÁ SPILAKÖSSUM