Morgunblaðið - 05.09.2014, Blaðsíða 13
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Okkur gremst að nú skuli hafa
verið lokað á makrílveiðar minni
bátanna því svo sannarlega er ekk-
ert fararsnið á fiskinum. Hann fitn-
ar dag frá degi og verðmætið eykst
eftir því sem líður á. Þessar veiðar
skapa mikla atvinnu til dæmis hér á
Snæfellsnesi og það er bölvað að
hætta núna,“ segir Heiðar Pálsson,
skipstjóri og útgerðarmaður
Brynju SH. Síðasti dagur króka-
veiða á makríl var í gær, en þá var
6.800 tonna viðmiðuninni náð. Ráð-
herra hafnaði á miðvikudag ósk
Landssambands smábátaeigenda
um að auka kvóta minni bátanna.
Aflakóngur á Brynju SH
Í gær var útlit fyrir að Heiðar á
Brynju SH yrði aflakóngur á mak-
rílvertíðinni, en hann var þá kom-
inn með um 220 tonn. Pálína
Ágústsdóttir GK var einnig komin
með yfir 200 tonn og 23 bátar voru
með meira en 100 tonn. Alls hafa
114 smábátar landað makríl í sum-
ar og voru stundaðar ólympískar
veiðar úr sameiginlegum potti.
Að sögn Heiðars hefur algengt
verð á makrílnum í sumar verið um
og yfir 90 krónur fyrir kílóið og hef-
ur það aðeins hækkað undanfarið.
Brúttótekjur af veiðunum hjá þeim
aflahæstu hafa því verið um 20
milljónir. Mikil vinna liggur að baki
veiðunum og segir Heiðar að haldið
sé út klukkan fimm að morgni og
hann sé ánægður ef hann komi
heim fyrir klukkan 10 að kvöldi. Oft
hafi verið löndunarbið og síðustu
vikur hafi 50-60 minni bátar verið
að makrílveiðum í Breiðafirði frá
Öndverðarnesi og inn með Nesinu.
Heiðar segir að makríllinn gefi
sig best á morgnana og á kvöldin og
síðdegis á miðvikudag hafi hann t.d.
mokveitt. Þegar talað var við hann
um hádegið í gær var lítið að hafa
en fjöldi torfa allt í kringum bátinn.
Eftir makrílinn verður lítil hvíld því
þorskveiðar á línu taka fljótlega við
á Brynjunni. Útgerð Heiðars heitir
Bjartsýnn og segir hann nafnið
tengjast bjartsýni hans. „Ég byrj-
aði í þessu árið 2001 og margir
spáðu því að ég myndi ekki endast
árið, en ég er enn lifandi,“ segir
Heiðar á makrílmiðum úti fyrir
Ólafsvík.
Í gær, síðasta dag vertíðar, tók
gildi reglugerð um að allan makríl
sem veiddur er á línu og handfæri
skuli endurvigta hjá vinnslufyrir-
tæki til aflaskráningar. Heiðar
gagnrýnir að þetta skuli ekki hafa
verið gert alla vertíðina og segir að
mikið af ís hafi verið vigtað með
makrílnum, sem hafi flýtt fyrir því
að kvótinn er núna búinn.
Morgunblaðið/Alfons
Landburður Vel hefur veiðst af makríl í Breiðafirðinum síðustu vikur og er
ekkert lát á. Suma dagana hefur verið löndunarbið og talað um landburð.
Góður afli og bölv-
að að hætta núna
Aflahæstu bátarnir með yfir 200 t.
Brúttóverðmæti yfir 20 milljónir
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeig-
enda, harmar ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra um að auka ekki
heimildir smábáta á makrílveið-
um og segir hana gríðarleg von-
brigði. LS hefur gert athuga-
semd við auglýsingu Fiskistofu
þar sem þau 1200 tonn sem tek-
in voru frá vegna veiða í sept-
ember hafi ekki verið veidd.
Bent er á að heimild Fiskistofu
um stöðvun veiða er bundin við
heildarafla hvers tímabils, en
ekki heildarafla-
viðmiðun.
„Ég hef feng-
ið þau skilaboð
að auglýsingin
standist og
þessu verði ekki
breytt. Það eru
gríðarlegir hags-
munir tengdir
þessum veiðum fyrir hundruð
manna víða um land og því ekki
ólíklegt að við skoðum málið
frekar,“ segir Örn.
Landssambandið skoðar málið
GERA ATHUGASEMD VIÐ AUGLÝSINGU
Örn Pálsson