Morgunblaðið - 05.09.2014, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
Fyllt á tankinn Flugmaður fis-vélar kemur við í Hrauneyjum til að ná sér í eldsneyti á leið sinni frá eldgosinu í Holuhrauni þangað sem hann flaug með ljósmyndara Morgunblaðsins.
Árni Sæberg
Landsmenn hafa nú
um nokkurra vikna
skeið fylgst með frétt-
um af jarðskjálftum og
eldsuppkomu við norð-
vestanverðan Vatna-
jökul. Í okkar rómaða
eldfjallalandi vekja at-
burðir af þessu tagi gíf-
urlega athygli og verða
fremsta fréttaefni fjöl-
miðla, þannig að allt
annað hverfur í skugg-
ann á meðan á þeim stendur. Það er
ekki óeðlilegt þar sem á ferðinni eru
frumkraftar sem mannlegur máttur
fær lítið við ráðið og þeim fylgir sjón-
arspil sem lætur flugeldasýningar og
aðra manngerða tilbreytingu blikna.
Við þetta bætist svo kitlandi óvissa
um framvindu náttúruhamfaranna,
sem endurspeglast nú dag hvern í
„gosfréttum“ fjölmiðla þar sem sam-
an fer aðdáun á sjónarspilinu og af-
sökunartónn yfir hrifningu sem á
næsta augnabliki getur breyst í vá.
Vel varðveitt leyndarmál
Eldsumbrotin tengjast að þessu
sinni Bárðarbungu, öflugustu eldstöð
landsins með allt að 200 kílómetra
löngu eldstöðvakerfi sem gert hefur
vart við sig hátt í 30 sinnum á sögu-
legum tíma, þeirra afdrifaríkast lík-
lega Veiðivatnagosið 1477 sem þakti
allt að helming landsins með basalt-
ösku. Gosið í Gjálp haustið 1996
leiddi af sér stórhlaup úr Gríms-
vötnum niður yfir Skeiðarársand og
virtist sem kylfa réði kasti hvorum
megin vatnaskila flaumurinn brytist
fram. Það sem af er nú-
verandi hrinu sýnist
jarðeldur einvörðungu
hafa tengst berggang-
inum út frá kvikuþró
Bárðarbungu til norð-
austurs, fyrst lítillega
undir Dyngjujökli en
síðan í tvígang í Holu-
hrauni. Það nafn var til
skamms tíma eitt best
varðveitta leyndarmál
landsins, en nú skyndi-
lega á hvers manns
vörum. Nafngjafinn var
Þorvaldur Thoroddsen
sem þar var á ferð 17. ágúst 1884
með sínum dygga förunauti Ögmundi
Sigurðssyni. „Miðja vega milli Urð-
arháls og Jökulsár er allmikið hraun
á miðjum söndunum. Nær það fast
upp að jökli og langt norður, og [er]
ákaflega illt yfirferðar. Kölluðum við
það Holuhraun.“ (Þorvaldur Thor-
oddsen. Ferðabók I. 2. útg. 1958, s.
367).
Tveir á ferð 1839
Fyrsta lýsingin sem ég hef séð á
Holuhrauni kom úr penna Sigurðar
Gunnarssonar (1812-1878), síðast
prófasts á Hallormsstað, sem þarna
var á ferð sem nýstúdent og fylgdar-
maður Björns Gunnlaugssonar land-
mælingameistara í júní 1839. Fóru
þeir fyrstir manna svo vitað sé eftir
Gnúpa-Bárð landnámsmann um
Vonarskarð, en þaðan lá leið þeirra
upp eftir Dyngjujökli og niður af
honum í krikanum vestan Kistufells.
Af Grjóthálsi héldu þeir austur á
Jökulsáraura. Um það sem þar bar
fyrir augu segir Sigurður í ritgerð
löngu síðar: „Þegar nokkuð dregur
norðaustur á þessa Jökulsár aura,
kemur þar flatt, lágt og breitt bruna-
hraun, sem runnið hefir innan dalinn
sem falljökullinn fyllir nú, því það
kemur undan falljöklinum. Hafa
grjót og aurspýjur, sem jökulhlaup
og vatnsmagn úr jöklinum hafa fært
yfir, hækkað alla farvegi báðum meg-
in við hraunið og innanum það, svo
það er nú orðið mjög lágt og sjer
sumstaðar eigi til þess.“ (Norðanfari,
s. 69-76 1876)
Austfirðingar sem
landkönnuðir
En þeir voru fleiri Austfirðing-
arnir sem komu við sögu landkönn-
unar á þessum slóðum norðan Vatna-
jökuls. Þar var fyrstur á ferð sumarið
1794 Fljótsdælingurinn Pétur Brynj-
ólfsson (1772-1798) sem ásamt Gutt-
ormi Pálssyni (1775-1860) fylgdi síð-
ar þetta sama ár Sveini Pálssyni
náttúrufræðingi og lækni upp að
Snæfelli og fræddi hann um öræfin
norðan jökulsins, þar sem Pétur
hafði riðið „yfir hinar tíu kvíslar Jök-
ulsár á Fjalli“ og þaðan norðan
Trölladyngju að Kiðagili. Ekki getur
hann um neitt hraun þar á söndunum
samkvæmt endursögn Sveins, né
heldur er það sýnt á uppdrætti frá
1834 þar sem vísað er til ferðar Gutt-
orms Þorsteinssonar prests á Hofi í
Vopnafirði sumarið 1797 yfir kvíslar
Jökulsár. (Árbók FÍ 1987. Norðaust-
urland, s. 120-121) Lýsingu á ferð
Guttorms, sé hún til, hef ég ekki und-
ir höndum, en ólíklegt er að hann
hefði ekki getið um nýorpið hraun
þarna. Í því ljósi er rétt að hafa fyrir-
vara um ágiskanir Ólafs Jónssonar,
byggðar á framburði Jóns Jónssonar
í Reykjahlíð, sem veturinn á undan
hafi séð „eldsloga leggja í dimmu upp
í loftið úr fjöllum eða öræfum suður
undan Þingeyjarsýslu …“. (Ódáða-
hraun II, s. 236). Enn einn Austfirð-
ingur, Pétur Pétursson á Hákonar-
stöðum á Jökuldal, hélt haustið 1834
að áeggjan Hins íslenzka fjallvega-
félags við annan mann í leit að vegi
norðan Vatnajökuls. „Nokkru fyrir
vestan vaðið [á Jökulsá á Fjöllum]
komust þeir í þvílíkt vonzkuhraun
fyrir neðan jökulinn, að þeir voru
nærri búnir að missa hestana.“ (Þor-
valdur Thoroddsen. Ferðabók I. 2.
útg. s. 264). Vafalítið er þetta sama
hraunið og Sigurður Gunnarsson fór
yfir fimm árum síðar, þá líklega fárra
áratuga gamalt.
Töfrandi lýsing Ólafs Jónssonar
Enginn hefur enn gert Ódáða-
hrauni í heild viðlíka skil og Ólafur
Jónsson frá Freyshólum í Skógum
(1895-1980) eftir að hafa ferðast um
það í mörg sumur. Um Holuhraun
segir hann m.a. (Ódáðahraun I, s.
150): „Einkum mun kyrrðin og feg-
urðin mikil kvölds og morgna. Ekk-
ert hljóð heyrist, engin lind suðar,
enginn fugl tístir. Hér er algjör
þögn.“ – Þegar eldurinn slokknar
skulum við leggja þangað leið okkar.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Í gosfréttum fjöl-
miðla fer saman að-
dáun á sjónarspilinu og
afsökunartónn yfir
hrifningu sem á næsta
augnabliki getur breyst
í vá.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Náttúruvá og seiðmagn eldsumbrota
Ljósmynd/Hjörleifur Guttormsson
Stórbrotið Yfir Dyngjujökli 9. ágúst 2010. Gígar Holuhrauni t.h. Urðarháls
fyrir miðju. Kistufell og Trölladyngja fjær.