Morgunblaðið - 05.09.2014, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
Jarðvegsþjöppur, valtarar, malbikunarvélar,
gatnasópar, umferðaröryggisbúnaður
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Tæki til verklegra
framkvæmda
Stofnað 1957
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er auðvelt að láta hugfallast í
dag og jafnvel að finnast minni máttar. Leit-
aðu ráða ef þess gerist þörf.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er oft lærdómsríkt að vera bak-
sviðs og fylgjast með því sem gerist á bak
við tjöldin. Svo virðist sem enginn vilji sýna
samstarfsvilja.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Rafmagnsleysi, tölvubilanir og önn-
ur skakkaföll tengd tækjabúnaði verða lík-
lega í vinnunni í dag. Láttu einskis ófreistað
til þess að komast til botns í hlutunum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það leysir engin vandamál að sópa
þeim undir teppið. Ef einhver réttir þér verk
á silfurfati skaltu njóta þess til hins ýtrasta.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu
við þegar deilur um viðkvæm málefni hafa
farið úr böndunum. Notaðu nú tækifærið og
talaðu hreint út um hlutina.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt það sé freistandi að leggja ýmis-
legt á sig til þess að komast hjá rifrildi eru
takmörk fyrir því sem öðru. Einangraðu þig
ekki um of, því það skerðir möguleika þína.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir selt snjó á norðurheimskaut-
inu ef því væri að skipta þessa dagana.
Gefðu heiminum tíma til að skilja þig. Ekki er
víst að allir skilji það en það skiptir engu
máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það virðist stundum auðveldara
að biðja aðra fyrirgefningar en að biðja þá
um leyfi. Vertu opin/n fyrir því sem viðkom-
andi hefur að segja.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur haldið þig til hlés í
ákveðnu máli en nú kemstu ekki lengur hjá
því að taka afstöðu og láta hana í ljós við
viðkomandi. Láttu gagnrýni sem vind um
eyru þjóta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Trú þín gæti á einhvern hátt dýpk-
að í dag. Forðastu samt alla áhættu því fá-
nýtt titlatog hefur ekkert upp á sig og ein-
falda leiðin er oft farsælust.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ekki drengilegt gagnvart
vinum sínum að hrósa sér yfir óförum þeirra
með því að segja „ég var búinn að segja þér
þetta“. Nú dreymir þig um þegar þú varst lít-
il/l.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu varkár í samtölum þínum við
ástvini í dag. Fáðu þína nánustu í lið með þér
og þá heppnast allt vel.
Ólafur Stefánsson þóttist ásunnudag „svolítið spávís, í
gær, og setti þessa vísu á Draft,
eftir að hafa hlustað á allskonar að-
varanir frá Veðurstofu og Al-
mannavörnum“:
Það er ekki ónýtt hjal,
og ágæt fyrirsorgun,
þegar kemur Cristobal
og kannski gos á morgun.
Og bætti svo við þann sama dag:
Fór út að braska í morgun og kom
votur inn.
Margur er til fjörsins fús,
feginn að vera inni.
Kominn er ég heill í hús
holdvotur að skinni.
Og enn gerist það á sunnudaginn
að Davíð Hjálmar Haraldsson skrá-
ir í Leirinn: „Koldimmt í lofti,
Vaðlaheiðin sést ekki í sortanum
sem stafar af moldar- og öskufoki
af hálendinu. Alvörugos byrjað í
Holuhrauni samkvæmt fréttum.
Gamli Landroverinn hans Pálma
mágs fer í gang í svörtum sót-
mekki. Brúni klárinn hristir sig
eftir að hafa velt sér í þurru flagi á
skurðbakkanum.“
Sortnar loftið, syðra gýs,
sótar bíll á stræti.
Hristir sig með hregg og frýs
hrossakjöt á fæti.
Bjarki Karlsson stenst ekki
mátið:
Oft mig svíkur sinni og von
uns sálarhjálpin kemur
er Davíð Hjálmar Haraldsson
hrossavísu semur.
Hér leikur Bjarki sér á öðrum
nótum og segist hafa heyrt á skot-
spónum:
Lið sem er lélegur pappír
og lið sem er síst betri pappír
berst á ljót
banaspjót
um aldeilis afleitan pappír.
„Sjálfur myndi ég aldrei segja
neitt þessu líkt um sómakært fólk
og virðulega fjölmiðla þannig að
ekki getur þetta verið eftir mig,“
bætir hann við að vísu.
Davíð Hjálmar Haraldsson vísar
í Fréttablaðið á bls. 6 á mánudag,
en þar stendur að nú bjóðist aðstoð
öllum konum sem berja manninn
sinn. Er meðferð í boði átaksins
„Karlar til ábyrgðar“.
Mörgum blöskrar misréttið
að vonum,
meðvirkur til ábyrgðar ég finn:
Ég mun bjóða öllum eiginkonum
aðstoð við að berja manninn sinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af spávísi, gosum
og lélegum pappír
Í klípu
„ÞESSI HEFUR VERIÐ MJÖG VINSÆLL
Í HRINGALEIGUNNI OKKAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER EKKI AÐ STELA ÞVÍ, ÉG ER
AÐ FÆRA ÞAÐ NÆR HÚSINU MÍNU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem heldur
á þér hita.
S
Biðs
töðTRÚLOFUNA
R-
HRINGAR
DEMANTAR
ER ÉG OF SEINN
Í FJÖRIÐ?!
OF
SNEMMA?!
HVAR VARSTU
ÞEGAR ORRUSTAN
BYRJAÐI, LEIFUR
ÓHEPPNI?
ÉG VAR
FREMSTUR,
OG LEIDDI
ÁRÁSINA!
EINMITT ... OG ÞEGAR ÞÚ LEIÐIR
ÁRÁSIR, HLEYPURÐU ÞÁ VENJULEGA
AFTUR Á BAK?
Hver stórviðburðurinn rekur ann-an í íþróttalífinu og eftir helgi
hefst enn ein Evrópukeppnin í
knattspyrnu karla. Þátttaka íslenska
landsliðsins að þessu sinni markar
ákveðin tímamót því yfirlýst stefna
er að komast í úrslitakeppnina 2016.
x x x
Íslenska landsliðið sýndi í nýliðinniundankeppni heimsmeistaramóts-
ins að það hefur eflst við hverja
raun. Stuðningsmenn liðsins létu
heldur ekki sitt eftir liggja og Vík-
verji líkir því ekki saman hvað það er
miklu skemmtilegra að vera á Laug-
ardalsvellinum þegar hvert sæti er
skipað, eins og gjarnan var í HM, en
þegar horft er á nánast auða stúkuna
gegnt aðalstúkunni, eins og mörg
dæmi eru um frá fyrri tíð.
x x x
Víkverji bíður spenntur eftir kom-andi keppni. Það er mikill hugur
í landsliðsmönnunum og þjálfararnir
ætlast til árangurs. Þetta er gott
veganesti.
x x x
Í vikunni var greint frá því í vef-útgáfu breska blaðsins Daily Mail
að Ísland og Finnland hefðu komið í
veg fyrir sameiginlegt framboð Evr-
ópuþjóða í komandi kjöri um forseta
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA. Geir Þorsteinsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands,
sagði við Rúv að fréttin væri reyndar
ekki rétt, hann hefði þvert á móti
hvatt til samstöðu innan FIFA á
þingi UEFA á dögunum. Samstaðan
hentaði ekki fréttaflutningnum en
hún er ekki síður mikilvæg í sam-
bandi við íslenska landsliðið.
x x x
Auðvitað er ekkert sjálfgefið íkeppni eins og Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu. Það geta
komið leikir þar sem ekkert gengur
upp og stig geta tapast. Við því er
aðeins eitt svar: Að bretta upp erm-
ar og reyna að gera betur næst. Það
á ekki aðeins við um landsliðshópinn
heldur skiptir máli að stuðnings-
menn fylgi liðinu í gegnum sætt og
súrt. Það gera þeir best með því að
fylla Laugardalsvöllinn á hverjum
heimaleik, njóta gleðistundanna og
vera jákvæðir. víkverji@mbl.is
Víkverji
Náðugur og miskunnsamur er Drott-
inn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.
(Sálmarnir 103:8)