Morgunblaðið - 05.09.2014, Page 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Grímur Hákonarson hefur verið
önnum kafinn undanfarnar vikur við
að leikstýra mönnum og hrútum í
Bárðardal. Tökur á kvikmynd hans,
Hrútar, hófust þar 18. ágúst og lauk
nú í vikunni en hefjast á ný í nóv-
ember. Í Hrútum segir af bræðr-
unum Gumma og Kidda, sauðfjár-
bændum á sjötugsaldri sem búa í
afskekktum dal og eiga einhverja
allra bestu hrúta landsins. Þó svo að
bæir þeirra standi hlið við hlið hafa
Gummi og Kiddi ekki talast við í
fjóra áratugi en þegar riðuveiki
greinist hjá Kidda neyðast þeir til að
hefja samskipti á ný. Bræðurna
leika tveir af ástsælustu leikurum
þjóðarinnar, Sigurður Sigurjónsson
og Theodór Júlíusson.
Grímur segir Hrúta dramatíska
mynd með gamansömum undirtóni,
húmor í ætt við þann sem hafi ein-
kennt fyrri myndir hans, m.a. stutt-
myndina Bræðrabyltu. „Það er svip-
aður tónn í þessari mynd og henni,
þetta er dramatísk eða alvarleg saga
en lúmskur húmor með. Ekki
kannski húmor sem fær fólk til að
skella upp úr, það hlær meira inni í
sér,“ segir Grímur. Húmorinn sé
skandinavískur.
Högg fyrir samfélagið
Gummi og Kiddi deila bæði hliði
og hlaði, búa svo nálægt hvor öðrum
að ekki eru nema um 50 metrar milli
húsa. „Þessar aðstæður þekkjast nú
víða, fólk býr nálægt hvað öðru í af-
skekktri sveit og talast ekki við og
svo kemur eitthvað upp á. Þú býrð
kannski með púðurtunnu í næsta
húsi og veist ekki hvenær hún mun
springa,“ segir Grímur og bendir á
að tvær sögur séu sagðar í mynd-
inni, sagan af bræðrunum annars
vegar og hins vegar af samfélaginu í
sveitinni. „Ef það kemur upp riðu-
veiki þarf að skera niður kindurnar
og ef menn eru bara með sauð-
fjárrækt í heilli sveit er það svolítið
högg fyrir samfélagið,“ bendir Grím-
ur á. Með „samfélagi“ eigi hann
einnig við menninguna sem tilheyrir
sauðfjárrækt. Grímur segir að lík-
lega hafi engin íslensk kvikmynd
kafað jafn djúpt ofan í þessa menn-
ingu og samband bóndans við fé sitt.
– Nú er myndin m.a. tekin upp á
tveimur bæjum í Bárðardal, Bólstað
og Mýri. Mér skilst að Atli Örvars-
son, sem semur tónlist við myndina,
tengist þessum bæjum?
„Jú, mamma hans ólst upp á Mýri
og hann er ættaður úr dalnum, á hús
hérna. Fyrir mjög mikla tilviljun
komumst við í samband við hann og
þegar hann frétti að við ætluðum að
gera svona mikla sveitamynd í daln-
um hans varð hann mjög áhuga-
samur um að semja tónlistina. Við
hittumst og spjölluðum og mér
finnst mjög gott að fá hann í þetta,
held að það muni gefa góða raun,“
segir Grímur og bætir við að myndin
sé „bárðardælsk“ í húð og hár.
Gæfir hrútar
– Hvaðan fenguð þið hrúta í
tökurnar?
„Við fengum þá héðan og þaðan,
aðalmálið var að finna gæfa hrúta til
að gera okkur auðveldara fyrir.
Kindur eru misgæfar eftir bæjum og
það fer líka eftir því hversu duglegir
bændurnir eru að klappa þeim,
hversu miklum tíma þeir verja með
þeim. Við völdum kindur sem eru
gæfar og þá helst kindur sem geta
gert það sem maður vill að þær geri.
Við notuðum heimalninga svolítið,
þeir eru hændir að fólki og vanir að
vera á heimabæ,“ svarar Grímur.
– Þurftu Siggi og Teddi að fara í
e.k. hrútaþjálfun fyrir tökur?
„Já, við fórum í eina ferð í vor, í
Biskupstungur, töluðum við bændur
um riðuveiki og tókum aðeins í
hrúta. Svo komu þeir hingað í sveit-
ina í þrjá daga á æfingar og þá eydd-
um við töluverðum tíma í fjárhús-
unum þar sem þeir voru að fara í
gegnum allar dýrasenurnar. Ég
kveið dálítið fyrir þeim, þær eru dá-
lítið flóknar en hafa gengið fárán-
lega vel,“ segir Grímur.
-Hafa einhver óvænt vandamál
eða leikstjórnaráskoranir komið upp
í tengslum við dýrin?
„Já, já, hrútarnir eru ekkert alltof
hrifnir af því að vera bundnir aftan í
sexhjól og keyrðir milli staða,“ segir
Grímur kíminn og bætir við að tökur
á slagsmálum og skotárás hafa einn-
ig reynst nokkuð erfiðar. Allt hafi þó
farið vel en þeir Teddi og Siggi
býsna lúnir að loknum degi.
Að lokum er Grímur spurður að
því hvernig honum hafi dottið þessi
saga í hug en hann skrifaði handrit
myndarinnar. Hann segist hafa ver-
ið töluvert mikið í sveit og kynnst
fólki sem hefur orðið að skera niður
fé vegna riðu. Þá séu margar átaka-
sögur úr sveitinni þaggaðar niður og
hann hafi viljað draga eina slíka upp
á yfirborðið.
Púðurtunna
í næsta húsi
Grímur Hákonarson segir dramatíska bræðra- og sveita-
sögu með gamansömum undirtóni í kvikmyndinni Hrútar
Ljósmyndir/Grímar Jónsson
Á tökustað Grímur Hákonarson með aðalleikurum Hrúta, Sigurði Sigurjónssyni og Theódóri Júlíussyni.
Ljósmynd/Sturla Brandth Grovlen
Bundinn Grímur með Sigurði á sexhjóli og hrúti bundnum á kerru.
VINNINGASKRÁ
18. útdráttur 4. september 2014
89 9479 19705 29020 39175 49791 59628 70005
361 9485 19793 30192 39429 49924 61542 70023
866 9531 20383 30235 39520 50808 61680 70997
1077 9830 21393 30498 39561 51223 61778 71471
1195 10068 21447 30963 39962 51899 61858 72109
1407 10513 21781 31209 40019 52148 62412 72821
1967 11013 22033 31378 41303 52255 62521 72881
2119 11311 22674 31477 41577 52576 62844 73056
2261 11391 22923 31660 41982 52818 62996 73232
2533 11403 23109 31987 42590 53323 63002 74267
2540 11786 23401 32281 42671 54652 63125 74457
2706 11828 23722 32628 43753 54841 63356 74519
2929 11868 23778 32708 43914 54917 63528 74737
3386 12005 23993 33195 44630 55086 64376 74902
3921 12206 24076 34662 44695 55245 64584 75464
4578 12541 24509 34736 45969 55381 65505 75999
4854 12603 24651 35756 46141 55538 65988 76121
4899 13291 25055 35808 46577 55550 66097 76160
4963 13656 25132 35976 46600 55571 66159 77291
6811 13691 25239 36100 46618 55743 66353 77668
6867 13708 25559 36405 47483 55959 66669 78337
7086 13864 25983 36715 47494 56009 67614 78514
7232 14128 26166 37002 47822 56030 67974 78580
7237 14134 26434 37254 48084 56537 67983 79239
7787 14781 26447 37388 48173 56861 68014 79682
7828 15286 26451 37409 48329 57576 68156 79984
8306 15393 27346 37431 48436 57649 68187
8328 15543 27433 37473 48488 57675 68433
8481 16596 27611 37847 48641 57779 69542
8763 17331 27631 38493 49136 58647 69547
9358 19433 27917 38739 49343 59100 69728
9461 19454 28644 39014 49594 59499 69946
284 9516 17888 26344 37267 45988 53177 66732
565 9767 18428 26690 38141 46093 53441 69047
1905 10669 19273 27043 38457 46166 53602 69618
2480 11971 19480 27316 39965 47053 54549 70022
3316 12354 19957 29602 40207 47439 54689 70280
4714 13671 20771 30388 41881 48815 60808 70473
5869 14048 21364 30568 42177 48950 62577 72323
7548 14236 22332 32388 42317 50638 63731 76566
8103 14448 22809 32817 42827 51111 64507 78243
8911 14640 25008 33470 44010 52287 65189
9272 14967 25157 35515 44084 52755 65350
9299 15121 25525 35996 44105 52816 65902
9399 17267 26237 36783 45635 53148 66664
Næstu útdrættir fara fram 11., 18., 25. sept. & 2. okt. 2014
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
13783 31286 46139 64177
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
6965 20157 30193 40035 60116 62835
9676 22591 30988 40997 60246 66790
10857 22999 37451 44328 60607 71687
19137 26503 38599 48109 61793 72019
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
2 1 7 0 0