Morgunblaðið - 05.09.2014, Síða 33
stöðvar í Köln í Þýskalandi auk þess
sem tónleikabókari sveitarinnar er
þar í landi.
– Kanntu einhverja skýringu á vin-
sældum ykkar í þessum löndum?
„Nei, það er náttúrlega nokkuð
snúið að komast inn á Bandaríkja-
markað og inn í Bretland sem stjórn-
ar dálítið poppinu í Evrópu. Þeir eru
dálítið uppteknir af sínu og Gus Gus
er ekki tískuband þannig að við erum
aldrei samstilltir við eitthvað sem er í
tísku, erum bara að gera okkar, inn-
blásnir af ólíkum tímabilum í sögu
elektrónískrar tónlistar en samt með
sterka tengingu inn í klúbba-sándið.
Og þetta hafa Austur-Evrópubúar
fílað, þeir fíla mjög mikið svona dans-
skotið popp sem er frjálsara í form-
inu. Þeir eru ekki eins háðir þessum
fyrirmælum frá bresku og amerísku
pressunni,“ segir Biggi og hlær.
Rúta betri en flugvél
Gus Gus heldur 36 tónleika á ferð
sinni um Evrópu og Bandaríkin.
„Þetta er slatti,“ segir Biggi um tón-
leikafjöldann. Hljómsveitin mun
ferðast um Evrópu í rútu og segir
Biggi að sá ferðamáti sé mun þægi-
legri en að fljúga á milli staða. „Það
er mjög „hellað“ að fljúga á milli, þó
að það sé ódýrara. Það er svo lík-
amlega erfitt,“ segir Biggi. Best sé
að geta slakað á í rútu að loknum tón-
leikum og vaknað endurnærður á
næsta tónleikastað.
tískuna
Ljósmynd/Ari Magg
Gus Gus Högni Egilsson, Stephan
Stephensen (President Bongo), Birg-
ir Þórarinsson (Biggi Veira) og Daní-
el Ágúst Haraldsson. Stephan er í fríi
frá tónleikahaldi og hleypur Maggi
Legó í skarðið fyrir hann.
www.gusgus.com
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2014
Sin City: A Dame To Kill For
Hér er komið framhald og for-
saga kvikmyndarinnar Sin City
frá árinu 2005, sem byggð er á
teiknimyndasögum Frank Miller.
Sem fyrr segir af íbúum synda-
borgarinnar Basin City sem búa
við afar háa glæpatíðni og þurfa
að berjast fyrir lífi sínu. Með að-
alhlutverk fara Jessica Alba,
Mickey Rourke, Rosario Dawson,
BruceWillis, Joseph Gordon-
Levitt, Powers Boothe og Eva
Green og með smærri hlutverk
fara Josh Brolin, Lady Gaga,
Juno Temple, Ray Liotta, Chri-
stopher Lloyd, Christopher Mel-
oni, Marton Csokas, Jaime King,
Jeremy Piven, Jamie Chung,
Julia Garner og Stacy Keach.
Leikstjórar eru Frank Miller og
Robert Rodriguez.
Metacritic: 45/100
Rotten Tomatoes: 46%
Life of Crime
Smáglæpamennirnir Ordell og
Louis ræna eiginkonu vellauðugs
viðskiptajöfurs og freista þess að
fá milljón dollara í lausnargjald.
Viðskiptajöfurinn getur hins veg-
ar ekki látið lögregluna vita þar
sem hann hefur stundað ólögleg
viðskipti. Hann heldur auk þess
framhjá eiginkonu sinni og kann
betur að meta viðhaldið en eig-
inkonuna. Hann ákveður því að
aðhafast ekkert og sitja Robbie
og Gara uppi með gíslinn. Á slík-
um vandræðum áttu þeir ekki
von. Með aðalhlutverk fara Isla
Fisher, Jennifer Aniston, John
Hawkes, Mark Boone Junior, Mos
Def, Tim Robbins og Will Forte.
Leikstjóri er Daniel Schechter.
Metacritic: 59/100
Rotten Tomatoes: 65%
París norðursins
Dramatísk gamanmynd eftir leik-
stjórann Hafstein Gunnar Sig-
urðsson, gerð eftir handriti Huld-
ars Breiðfjörð. Í myndinni segir
af Huga, 37 ára kennara í kyrr-
látu þorpi úti á landi sem lærir
portúgölsku í frístundum og sæk-
ir AA-fundi. Dag einn hringir
faðir hans í hann og segist ætla
að koma í heimsókn. Þetta kemur
flatt upp á Huga þar sem hann
hefur ekki hitt föður sinn í mörg
ár og lítil samskipti haft við hann
um ævina. Heimsókn föðurins
reynist Huga erfið og setur allt á
annan endann.
Með aðalhlutverk fara Björn
Thors, Helgi Björnsson, Nanna
Kristín Magnúsdóttir, Jón Páll
Eyjólfsson og Sigurður Skúlason.
Bíófrumsýningar
Glæpir og tilfinningaflækjur
Syndaborg Stilla úr Sin City: A Dame To Kill for. Eva Green með ónefndum
og heldur ófríðum manni. Myndin er byggð á sögum Frank Miller.
þekkta vörumerki, sprengingar og
læti, í myndina og ríflega það.
Það er raunar einn stærsti kostur
myndarinnar hvað atburðarásin er
hröð og mikið af bardögum í henni.
Þá er myndin stútfull af vísunum í
fyrri myndirnar fyrir okkur gömlu
„Turtles-jálkana,“ og ættu bæði
ungir og aldnir aðdáendur skjald-
baknanna að geta notið mynd-
arinnar.
Í myndum af þessu tagi má
sjaldnast búast við Óskarsverð-
launaframmistöðu. Megan Fox
stendur þó sína vakt í aðalhlutverk-
inu með mikilli prýði, og nær að ljá
April O’Neil þá alvöru sem hæfir
kvikmynd um fjórar talandi stökk-
breyttar skjaldbökur á táningsaldri,
sem einnig eru ninjur, auk þess sem
Fox kemur vel til skila þeirri gremju
sem O’Neil finnur fyrir vegna þess
að enginn tekur hana alvarlega
vegna útlitsins. Nafnarnir Will Ar-
nett og William Fichtner skila sínu
einnig vel.
Á móti kemur að myndin er nokk-
uð fyrirsjáanleg og reynir varla að
fela það. Þá þótti undirrituðum frek-
ar vafasamt að April O’Neil vinnur
líklega fyrir eina verstu fréttastofu í
heimi, en fréttastjórinn, sem Whoopi
Goldberg leikur, virðist vart geta
séð stórfrétt fyrir framan nefið á
sér. Þá er fullmikið af auglýsingum í
myndinni, en Pizza Hut og Nokia
hafa bæði eflaust lagt drjúgan skerf
til myndarinnar.
Myndin um skjaldbökurnar er lík-
lega ekki allra, en eins og Vern segir
við April snemma myndar: „Það þarf
ekki allt að vera alvarlegt, það er í
lagi stundum að gera froðu.“ Tee-
nage Mutant Ninja Turtles er algjör
froða, en það er stundum barasta í
fínu lagi.
Froða Teenage Mutant Ninja Turtles er algjör froða, en það er stundum
barasta í fínu lagi, segir í gagnrýni um skjaldbökuninjumyndina.
EIN ÓVÆNTASTA
SPENNUMYND
ÁRSINS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
10
JENNIFER ANISTON
ISLA FISHER
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
ÍSL.
TAL
L
L
12
12
14
PARÍS NORÐURSINS Sýnd kl. 8 - 10:10
LIFE OF CRIME Sýnd kl. 5 - 8
TMN TURTLES 3D Sýnd kl. 5
LET´S BE COP´S Sýnd kl. 10:10
LUCY Sýnd kl. 8
THE EXPENDABLES 3 Sýnd kl. 10
AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 5
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar