Morgunblaðið - 03.10.2014, Page 1

Morgunblaðið - 03.10.2014, Page 1
F Ö S T U D A G U R 3. O K T Ó B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  231. tölublað  102. árgangur  HÖFUÐSKART OG DRAMATÍSKIR HAUSTLITIR SJÓMENN GRÁT- BÁÐU HANA UM AÐ SKRIFA MEIRA 40 SÍÐNA BLAÐAUKI UM TÍSKU OG FÖRÐUN GUÐRÚN HELGADÓTTIR 10 Morgunblaðið/Kristinn Útvarpshúsið Reksturinn er þungur. Ríkisútvarpið ohf. mun á endanum ekki geta greitt skuldir sínar ef eng- ar breytingar verða. Þetta segir Ingvi Hrafn Óskarsson, stjórnar- formaður RÚV. Hann telur þó að fé- lagið geti mætt skuldbindingum næstu mánaða. Uppsagnir sem fyrri framkvæmdastjórn réðst í hafi ekki skilað tilskildum árangri. RÚV hefur samið við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins um frestun á gjalddaga afborgana á skuldabréfi. Það er frá því áður en RÚV var gert að opinberu hlutafélagi og er því ríkisábyrgð á skuldabréfinu. Samkvæmt úttekt Price Water- house Coopers nema vaxtaberandi skuldir RÚV 5,5 milljörðum króna, þar af nemur skuldabréfið vegna líf- eyrisskuldbindinganna um þremur milljörðum. Afborganir og vaxta- gjöld RÚV á næsta rekstrartímabili nema 444 milljónum króna. »18 Mun ekki geta greitt skuldir  Lífeyrisskuldbind- ingar íþyngja RÚV Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Hreinar tekjur af þjónustugjöldum þriggja stærstu við- skiptabankanna voru 15,1 milljarður króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Tekjurnar árið 2013 voru tæpir 27 milljarðar kr. Bankarnir eru hver um sig með um 200 tegundir gjalda fyrir veitta þjónustu og eru hreinar þjónustu- tekjur útreiknaðar í ársreikningum þegar búið er að draga gjöld frá. Stærstur hluti þjónustuteknanna er vegna greiðslukortaviðskipta og á fyrstu sex mánuðum ársins voru hreinar þjónustutekjur bankanna þriggja rúmir fimm milljarðar króna. Gjöldin ekki nægilega há Eftir að ákveðið var að hefja gjaldtöku fyrir úttekt hjá gjaldkera af tékkareikningi árið 2012 er eina leiðin til þess að greiða ekki pening til þess að nálgast eigið fé í gegnum bankabók á borð við sparisjóðsbók. Helgi Teitur Helgason, viðskiptastjóri Landsbankans, segir að tekj- urnar séu bókfærðar beint í „vasa“ bankanna í ársreikn- ingum en í raun séu þær nýttar til uppihalds og þróunar á tölvukerfum. „Það eru skiptar skoðanir innan bankageir- ans hvort gjöldin séu nægilega há til að standa undir end- urnýjun og þróun kerfisins. Svo er þetta hins vegar alltaf spurning um það hvað hægt er að krefja fólk um. En það er sjónarmið í bankakerfinu að raunkostnaður sé ekki rukkaður,“ segir Helgi Teitur. M 15,1 milljarður í þjónustutekjur »12 Tugmilljarðar „í vas- ann“ fyrir þjónustuna  15 milljarðar á fyrstu sex mánuðum ársins  „Skiptar skoðanir innan bankageirans hvort gjöldin séu nægilega há“ Samsett mynd/Eggert Bankar Eru með um 200 tegundir gjalda fyrir þjónustu. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Örnefni Dyrajökull er kenndur við Dyrfjöll á Borgarfirði eystra. Deilijökull, Sýlingarjökull og Dyra- jökull eru á meðal þeirra örnafna sem gefin hafa verið 130 áður nafn- lausum jöklum hér á landi. Að sögn Odds, Sigurðssonar, sér- fræðings á sviði jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands, voru nýju nöfn- in í langflestum tilvikum dregin af örnefnum í nágrenni jöklanna. Hann vann að gerð nýs jöklakorts sem verður hluti heftis um Ísland í alþjóðlegum jöklaatlas sem er væntanlegur. Hátt í eitt hundrað af jöklunum sem nú fengu nöfn eru á Trölla- skaga. »6 Á annað hundrað ís- lenskra jökla fá nöfn Varla hefur verið hundi út sigandi á landinu undan- farna daga eftir að haustið tók öll völd á veðrinu og gengu vegfarendur í miðborginni greitt til að komast inn fyrir hússins dyr. Ekkert lát á að verða á rokinu og rigningunni ef marka má spár Veðurstofunnar og er áfram búist við stormi norðantil á landinu í dag. Flýta sér milli húsa í roki og rigningu Morgunblaðið/Golli Haustið er með tögl og hagldir á veðrinu þessa dagana  „Mikilvægt er að efla stuðning við foreldra vegna netávana unglinga. For- eldrar virðast eiga í erfið- leikum með að setja börnum sín- um mörk og þurfa verkfæri til að takast á við foreldrahlutverk sitt hvað net- notkun varðar,“ segir Ólína Frey- steinsdóttir um niðurstöður MA- verkefnis í fjölskyldumeðferðar- námi við Háskóla Íslands. Auka þarf faglega þjónustu, aðstoð og fræðslu til fjölskyldna og opna um- ræðuna um mikilvægi samskipta og að foreldrar setji börnum sínum einhver mörk, segir Ólína. »4 Foreldrar eiga erfitt með að setja mörk Netávani Efla þarf fræðslu til foreldra.  Heildartekjur af ráðstefnu- og fundarhaldi frá því að tónlistar- og ráðstefnu- húsið Harpa var opnað í maí 2011 nema ríflega 570 milljónum króna. Ráðstefnum hefur fjölgað um 15% á árunum 2011-2013 og gest- um þeirra um 39%. Áætlað er að á bilinu 35-40 þúsund manns hafi sótt ráðstefnur eða fundi í Hörpu í fyrra. »22 Ráðstefnurnar skila hálfum milljarði Fjöldi viðburða er haldinn í Hörpu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.