Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006 www.ullarkistan.is
Fyrir börnin í vetur
Hlýr og
notalegur
ullarfatnaður
á öll börn á
góðu verði
Malín Brand
malin@mbl.is
Það er alveg makalaust hvaðþær eru að hafa fyrir mér,þessar elskur,“ segir rit-höfundurinn Guðrún
Helgadóttir og á þar við starfsfólk
Borgarbókasafns Reykjavíkur sem
er í óðaönn að leggja lokahönd á
mikla sýningu í tilefni af fjörutíu ára
rithöfundarafmæli Guðrúnar. Til
viðbótar við sýninguna verður sér-
stök hátíðardagskrá á sunnudag og
hefst hún klukkan 15 í útibúi safns-
ins við Tryggvagötu. Á sýningunni
er fjölmargt sem tengist verkum
Guðrúnar og má þar meðal annars
sjá brúðuna Pál Vilhjálmsson sem
margir muna eftir úr Stundinni okk-
ar. Guðrún skrifaði alla texta fyrir
Pál og gaf síðar út um hann bók.
Illa þýddar á ljótum pappír
Bækur Guðrúnar eru sívinsæl-
ar á bókasöfnum landsins en það eru
ekki einungis bókasöfnin og gestir
þeirra sem eru Guðrúnu þakklátir
því án þess góða fólks sem á bóka-
söfnum starfar væru íslensku barna-
bækurnar ekki eins frábærar og
raun ber vitni. Það segir Guðrún og
talar af reynslu. „Þegar við fórum að
eignast menntaða bókasafnsfræð-
inga gjörbreyttist útgáfa barna-
bóka,“ segir Guðrún og minnist til-
tölulega óvandaðra bóka sem gefnar
voru út fyrir börn. „Þegar ég var að
lesa fyrir börnin mín voru þessar
bækur illa þýddar, á ljótum pappír
og illa myndskreyttar. Það varð nú
eiginlega til þess að ég fór að segja
krökkunum mínum sögur,“ segir
hún og þannig urðu sögurnar af tví-
burunum Jóni Oddi og Jóni Bjarna
Sjómenn vildu Jón
Odd og Jón Bjarna
Barnabókahöfundurinn Guðrún Helgadóttir á fjörutíu ára rithöfundarafmæli og
kom fyrsta bók hennar um tvíburana Jón Odd og Jón Bjarna út árið 1974. Alls
hafa tuttugu og fimm barnabækur eftir Guðrúnu komið út og er sú tuttugasta og
sjötta á leiðinni. Sjálf botnar hún ekkert í því hvernig fjörutíu ár geta liðið svona
hratt og segir hraðann slíkan að það sé rétt eins og að sitja í hraðlest gegnum lífið.
Morgunblaðið/Ómar
Afmæli Guðrún Helgadóttir á fjörutíu ára rithöfundarafmæli um þessar
mundir og því er sérstök dagskrá í Borgarbókasafninu í Grófarhúsi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í leikhúsinu Þórhallur Sigurðsson leikstjóri ásamt tveimur pörum af Jóni
Oddi og Jóni Bjarna. Myndin var tekin í Þjóðleikhúsinu árið 2002.
Að lesa sér til gagns og ánægju er
hrein unun en þó ekki á allra færi. Á
vef samtaka móðurmálskennara er
að finna fjölda greina sem fjalla um
allt er móðurmálskennslu tengist.
Síðan var opnuð sumarið 2011 en
sjálf samtökin hafa verið starfandi
síðan árið 1978 og eru félagsmenn
tæplega 600. Á þessum ágæta vef er
málgagn málfræðikennara, Skíma,
aðgengilegt og er ætlunin að birta
eldri útgáfur þess á vefnum.
Það sem mest hefur verið lesið af
greinum Skímu á vefnum er meðal
annars um einstaklingsmiðaða lestr-
arkennslu, hvernig efla á norrænan
tungumálaskilning og síðast en ekki
síst greinin Andrés önd stígur á
stokk. Þar er skemmtileg umfjöllun
um þýðingu Andrésblaðanna og þann
gullna orðaforða sem mörg okkar
hafa í gegnum tíðina tekið upp eftir
Andrési og félögum.
Vefsíðan www.modurmal.is
Morgunblaðið/Kristinn
Lestur Móðurmálskennarar leggja mikið upp úr lestri og lesskilningi barna.
Okkar ástkæra og ylhýra mál
Paper Beat Scissors er sviðsnafn
tónlistarmannsins Tim Crabtree.
Hann er nú á leið í Evróputúr og held-
ur í kvöld tónleika á Café Rosenberg
ásamt þeim Svavari Knúti og Elínu
Ey. Tim spilaði hér á landi sumarið
2012 þegar hann fylgdi eftir plötu
sem hann vann með meðlimum Ar-
cade Fire.
Svavar Knútur og Elín Ey eru mörg-
um vel kunn og koma þau fram ásamt
Paper Beat Scissors í kvöld. Svavar
Knútur fer fljótlega til Vesturheims í
tónleikaferð með smellinn „Girl from
Vancouver“. Tónleikar þremenning-
anna hefjast klukkan 21.
Endilega …
… hlýðið á Tim
Crabtree
Ljósmynd/Josh Feldman
Tónlist Paper Beat Scissors leikur.
Í hláturjóga er mikið hlegið en það er
hlegið án tilefnis. Hláturjóga er sér-
stök aðferð til að hafa góð áhrif á
sinnið og var þróuð af indverskum
lækni að nafni Madan Kataria.
Í vetur 2014-15 verða tveir hlátur-
klúbbar starfandi í Reykjavík: Í Hæð-
argarði 29, á miðvikudögum kl. 13:30
og í Lifandi markaði, Borgartúni 24,
fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl.
11-12.
Ásta Valdimarsdóttir leiðir tímana
ásamt Sölva nokkrum eins og fram
kemur í tilkynningu frá Ástu. Allir eru
velkomnir í hláturklúbbana en nánari
upplýsingar má fá hjá Ástu með því
að senda tölvupóst á netfangið asta-
.hlaturjoga@gmail.com. Auk þess
verður haldið námskeið fyrir þá sem
vilja gerast hláturjógaleiðbeinendur
og hefst það í dag. Nemendur útskrif-
ast sem hláturjógaleiðbeinendur með
skírteini frá Dr. Kataria School of
Laughter Yoga.
Stéttarfélög hafa styrkt fé-
lagsmenn sína til þessa náms, sem
Ásta heldur einnig utan um og um að
gera að nýta sér það.
Hláturjóga lengir lífið
Hláturklúbbar í Hæðargarði og
Lifandi markaði í Borgartúni
Morgunblaðið/Kristinn
Hlátur Hlegið verður í vetur í sérstökum hláturklúbbum í Reykjavík.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.