Morgunblaðið - 03.10.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.10.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014 Jólaferð til München Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Glæsileg jólaferð til München, höfuðborgar Bæjaralands. Ljómi aðventunnar og ilmur frá jólaglöggi kemur öllum í jólaskapið. Sp ör eh f. 27. - 30. nóvember Örfá sæti laus! Fararstjóri: Guðbjörn Árnason Verð: 104.400 kr. á mann í tvíbýli. Skoðunarferð um München innifalin! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hæstiréttur dæmdi í gær að lán Lánasjóðs sveitarfélaga til sveitar- félagsins Skagafjarðar (LS) hefði falið í sér ólögmætt gengislán í erlendri mynt. Skulu eftirstöðvar lánsins því vera 103,8 milljónir króna. Upphaflegt lán var veitt 2007 og var þá 115,3 millj- ónir kr. Sjóðurinn hélt því fram að samningurinn fæli í sér gilt erlent lán og að staða lánsins væri 218,3 milljónir króna. Lánið var til 15 ára. Hæstiréttur staðfesti með því dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Óttar Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, telur ekki að dómur Hæstaréttar hafi for- dæmisgildi vegna annarra lánasamn- inga sjóðsins til sveitarfélaga. „Við teljum dóminn ekki hafa for- dæmisgildi. Við höfum sagt það. Þetta mun ekki hafa nein áhrif á sjóð- inn. Við höfum farið yfir lánasamn- inga sjóðsins og það vill svo óheppi- lega til að þessi tiltekni samningur er því miður einstakur, vegna þess hvernig hann er skrifaður. Hann er einstakur að því leyti að það var ekki skýrt skrifað í samningnum hvað væri mikið lánað í dollurum og evr- um. Það er það sem þetta mál stendur og fellur með.“ Var gert í góðri trú „Menn voru að vinna í góðri trú og áttu ekki von á að það yrði hangið í svona orðhengilshætti … Sveitar- félagið Skagafjörður bað um erlent lán og fékk erlent lán. Því stóð til boða lán í krónum en það vildi ekki lán í krónum. Nú halda fulltrúar sveitar- félagsins því fram að þeir hafi tekið lán í krónum,“ segir Óttar. Einar Hugi Bjarnason hæstaréttar- lögmaður var lögmaður Skagafjarðar í málinu. „Þetta er í fyrsta sinn sem það reynir á lán Lánasjóðs sveitar- félaga fyrir Hæstarétti með tilliti til lögmætis, eða ólögmætis, gengis- tryggingar. Þannig að sú niðurstaða liggur þá fyrir … Samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá lánasjóðnum sjálfum í nóvember 2013, í kjölfar þess að dómur Héraðsdóms lá fyrir, var verðmæti útlána sjóðsins í erlendum myntum í árslok 2008 rúmir 19 milljarðar. Þar af voru bókfærð lán eins og lán Skagafjarðar á rúma 3 milljarða samkvæmt flokkun sjóðsins sjálfs – eins og kemur fram í þessari fréttatilkynningu. Í því ljósi tel ég að full ástæða sé fyrir önnur sveitarfélög á Íslandi að fara mjög gaumgæfilega yfir þá samn- inga sem gerðir hafa verið við lána- sjóðinn í kjölfar þessarar niðurstöðu Hæstaréttar,“ segir Einar Hugi. Tekist á um fordæmið  Lán frá Lánasjóði sveitarfélaga til Skagafjarðar dæmt ólöglegt í Hæstarétti  Forysta sjóðsins telur málið ekki skapa fordæmi  Lögmaður telur líkur á því Þrjú mál hjá sjóðnum » Óttar segir dóm Hæsta- réttar í sambærilegu máli Fjarðabyggðar gegn LS hafa fallið sjóðnum í vil. » Mál slökkviliðs höfuðborg- arsvæðisins gegn sjóðnum vegna gengisláns hafi hins vegar ekki verið dómtekið. Unnið er að því hjá innanríkis- ráðuneytinu að skipa saksóknara til að taka afstöðu til mögulegrar endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála eftir að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari lýsti sig vanhæfa til þess í fyrradag. „Við erum að vonast til að þetta geti gengið hratt og vel fyrir sig,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, að- stoðarmaður dómsmálaráðherra, sem segist að öðru leyti ekki geta sagt til um hvenær hægt verði að setja saksóknara í verkið. Eitt og hálft ár er liðið frá því starfshópur um rannsókn málanna lagði til leiðir að því hvernig taka mætti upp málin að nýju. Ein þeirra leiða var að rík- issaksóknari mæti hvort ástæða væri til þess að taka málin upp aftur. Reyna að finna sak- sóknara til að meta endurupptökuna Jóhannes Þór Skúlason Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, og flokksbróðir hans Júlíus Vífill Ing- varsson borgarfulltrúi hafa lagt fram ályktunartillögu í borgarráði um flutning Fiskistofu. Þar segir að ákvörðun um flutning Fiskistofu sé dæmi um „óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar“. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri segir aðspurður að þarna sé á ferð „mjög athyglisverð tillaga“. „Hún kom reyndar fram í lok fundar borgarráðs þannig að við munum ræða hana á fundi borgar- ráðs eftir viku. En mér finnst hún mjög athyglisverð og til marks um það að það sé ekki traust á þeim vinnubrögðum sem verið er að beita í þessu máli. Ég á von á því að borgarráð muni taka þetta til umfjöllunar á fundi í næstu viku.“ Samstaða innan borgarráðs – Mun tillagan verða samþykkt? „Já. Það kæmi mér ekki á óvart ef það væri samstaða um ályktun á þessum nótum. En umræðan er eft- ir og það vekur auðvitað athygli að þarna er tekið mjög afdráttarlaust til orða,“ segir Dagur. Spurður um tilefni ályktunar- innar segir Halldór, sem er einnig formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, að á sama hátt sé erfitt að sjá hvernig ný stofnun sem Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hafi til- kynnt um muni eiga erindi út á land. „Í kjölfarið fórum við að velta því fyrir okkur hvað sé að gerast. Við erum ekki á móti eðlilegri dreifingu opinberra starfa, síður en svo. Fyrst á að rífa Fiskistofu upp með rótum og flytja starfsfólkið með og svo kemur til greina að taka verk- efni sem snúa mest að þjónustu við höfuðborgarsvæðið og flytja líka út á land. Þannig að við ákváðum að álykta um þetta.“ baldura@mbl.is Gagnrýna flutn- ing Fiskistofu  Borgarstjóri styður ályktunartillögu Dagur B. Eggertsson Halldór Halldórsson Fimmtíu ára afmælis tæknifræði- náms á Íslandi var fagnað í Háskól- anum í Reykjavík í gær. Tækniskóli Íslands var stofnaður fyrir hálfri öld og gátu Íslendingar þá numið tæknifræði sem þeir þurftu áður að leita utan landsteinanna eftir. Skól- inn varð að Tækniháskóla Íslands árið 2002 en þremur árum síðar sameinaðist hann Háskólanum í Reykjavík. Öllum fyrrverandi nemendum HR og Tækniskólans var boðið til fagnaðarins og þá fluttu Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, ávörp í tilefni dags- ins. Í kjölfarið fór fram málþing um háskólamenntun á Íslandi. Tæknifræðinám á Íslandi í hálfa öld Morgunblaðið/Kristinn Sjálfsmynd Margir nýttu tækifærið til þess að ná sjálfsmynd af sér með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Fögnuðu tímamótum í tækni Kaka Hátíðargestir gerðu afmælistertu sem boðið var upp á góð skil. Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu bílastæðanefndar frá 12. september um hækkun stöðu- brotsgjalda. Felur hún í sér að stöðubrotsgjald vegna stöðvunar- brota skuli hækka úr 5.000 í 10.000 krónur og stöðubrotsgjald vegna stöðvunarbrota í bílastæði hreyfi- hamlaðra úr 10.000 í 20.000 krónur. Innanríkisráðherra þarf að staðfesta ákvörðun borgarráðs. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hækkunina af gefnu tilefni. „Okkur finnst einfaldlega óþol- andi að bílum sem ófatlaðir aka sé lagt í stæði fatlaðra. Sektirnar virð- ast ekki hafa dugað til þess að bæta ástandið þannig að við viljum ein- faldlega hækka þær,“ segir Dagur. – Eru fleiri atriði varðandi sektir til skoðunar, þá vegna bílastæða? „Í þessari umferð erum við að taka á bílum sem er lagt ólöglega. Ég veit ekki hvort það er eitthvað fleira á leiðinni frá bílastæðasjóði. Bílastæðagjöldin eru til að stýra. Í þessu tilviki er þeim ætlað að koma í veg fyrir að fólk leggi þar sem það á ekki að leggja. Með því veldur það öðrum ónæði og jafnvel skerðir ör- yggi annarra um leið. Því ólöglega lagðir bílar geta verið á stöðum þar sem lögregla, slökkvilið og sjúkra- flutningamenn þurfa að komast að.“ Tvöfalda sekt fyrir að leggja ólöglega Morgunblaðið/Baldur Arnarson Í síðustu viku Þessum pallbíl var lagt upp á stétt við Laugarásbíó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.