Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 276. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Sat eftir með aðeins 72 krónur
2. Andlát Ástu rannsakað sem slys
3. Segir forsíðu Séð og Heyrt bull
4. „Ég var ólétt þegar ég greindist“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Bassasöngvarinn Þorvaldur Hall-
dórsson verður sjötugur 29. október
og mun af því tilefni halda tónleika á
afmælisdeginum í Grafarvogskirkju
kl. 20.30. Þar mun Þorvaldur rifja
upp helstu lögin af ferli sínum, allt
frá fyrsta laginu sem hann söng op-
inberlega og lögunum sem hann söng
með hljómsveit Ingimars Eydal til
laga sem hann hefur samið og sungið
allt til dagsins í dag. Þorvaldur fær
valinkunna söngvara og hljóðfæra-
leikara til liðs við sig, m.a. söngkon-
urnar Helenu Eyjólfsdóttur og Krist-
jönu Stefánsdóttur, son sinn Þorvald,
Gísla Magnason og Alla Þorsteins.
Undir leikur hljómsveit skipuð Gunn-
ari Gunnarssyni, Jóni Rafnssyni, Sig-
urði Flosasyni, Jóni Elvari Hafsteins-
syni og Hannesi Friðbjarnarsyni.
Þorvaldur fagnar sjö-
tugsafmæli syngjandi
Tónleikar til heiðurs blúsgítarleik-
aranum Stevie Ray Vaughan verða
haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld kl. 21, í tilefni af því að hann
hefði orðið sextugur í dag en Vaug-
han lést árið 1990. Á tónleikunum
leikur hljómsveitin Tvöföld vandræði
ásamt góðum gestum, þeim Björgvini
Gíslasyni, Ingó Geirdal og Örlygi
Smára. Hljómsveitina skipa Hjörtur
Stephensen, Friðrik
Geirdal Júlíusson,
Ingi S. Skúla-
son, Daði
Birgisson og
Beggi Smári.
Vaughan heiðraður
í Þjóðleikhúskjallara
Á laugardag Suðaustan og austan 5-13 m/s. Rigning eða slydda
með köflum, en yfirleitt þurrt á N-verðu landinu. Hiti 1 til 7 stig.
Á sunnudag Austan 5-10, skýjað með köflum og smáskúrir syðra,
en rigning eða slydda A-lands seinnipartinn. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan og vestan 13-23 m/s, hvassast
á N-verðu landinu. Slydda, snjókoma eða él fyrir norðan. Kólnandi.
VEÐUR
Nýliðar Aftureldingar halda
sigurgöngu sinni áfram í Ol-
ís-deild karla í handbolta og
sitja einir á toppnum sem
fyrr. Mosfellingar unnu
Framara, 27:22, í Safamýri.
ÍR-ingar eru einu stigi á eft-
ir en þeir skelltu FH í gær á
sama tíma og Haukar og ný-
liðar Stjörnunnar gerðu
jafntefli, 26:26, í skraut-
legri viðureign. Valsmenn
sóttu tvö stig í greipar
Akureyringa. »2
Mosfellingar
halda sínu striki
Hlynur Bæringsson og félagar í
sænska körfuboltaliðinu Sundsvall
Dragons hefja í kvöld nýtt tímabil í
sænsku úrvalsdeildinni. Í vetur spila
sex Íslendingar í deildinni, fjórir
þeirra með Sundsvall. „Við gætum
nánast verið
með íslenskt
byrjunarlið.
Það þyrfti
bara að
hringja í
einhvern
heima og
bæta
þeim
fimmta
við.
Þetta er vissu-
lega mjög sér-
stakt, að vera
með fjóra Íslend-
inga í sama liðinu,“
segir Hlynur. » 4
Þyrfti bara að hringja
í einhvern heima
„Ég lít á það þannig að það sé hægt
að nýta sér það að hafa leikmenn sem
hafa staðið í þessum sporum áður og
unnið titla. Það er hægt að tala um að
við höfum spilað fleiri svona leiki
heldur en Stjörnumenn en það telur
ekki inni á vellinum nema við náum
að nýta okkur það á réttan máta,“
segir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH,
um úrslitaleikinn gegn Stjörnunni. »1
Hægt að nýta sér þá
sem hafa unnið titla
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þetta var mjög skemmtilegt og eitt-
hvað sem ég hef aldrei gert áður,“
segir Eydís Sjöfn Kjærbo, nemi í
Hússtjórnarskólanum í Reykjavík en
hún tók slátur eins og 23 aðrar stúlk-
ur skólans.
Á haustin fara nemendur ávallt í
sláturgerð í Hússtjórnarskólanum
og það er hluti af náminu. Það geng-
ur vel þótt sumum nemendum þyki
sláturgerðin ekkert sérstaklega
geðsleg en þeir eru þó nokkuð fljótir
að venjast því, segir Edda Guð-
mundsdóttir kennari við skólann.
Í ár gátu stúlkurnar þó ekki fengið
að spreyta sig á að sauma slátur-
keppi úr vömbum þar sem eingöngu
var hægt að fá gervivambir þetta
árið.
Tóku slátur í fyrsta skipti
„Mér fannst þetta svoldið ógeðs-
legt fyrst. Lyktin er ekkert sér-
staklega góð þegar nýrun og lifrin
eru hökkuð en svo venst þetta,“ segir
Eydís Sjöfn. Hún segir það hafa
komið sér á óvart hvernig slátur-
gerðin fari fram og hversu einföld
hún sé í rauninni.
Hún fékk það hlutverk að þrífa
nýrun og lifrina og skera. Sjöfn ætlar
að ákveða hvort hún taki sjálf slátur
á sínu heimili þegar þar að kemur,
eftir að hafa smakkað slátrið næsta
fimmtudag.
Vildi vera með hanska
Sigurrós Arnardóttir hafði heldur
ekki tekið slátur áður. „Ég var ekk-
ert voðalega spennt að vaða ofan í
blönduna með hendurnar. Ég vildi
helst vera með hanska. Mér fannst
þetta svoldið skrítið en eðlilegt að
vilja nýta það sem hægt er.“ Hún
saxaði mör og setti í keppina.
Það sem kom henni mest á óvart
var hvaða hráefni fór í slátrið eins og
t.d. haframjöl og nýru. „Mér líst
betur á þetta eftir að ég veit hvað fer
í matinn,“ segir Sigurrós.
Brýtur upp hefðbundið bóknám
Hússtjórnarskólinn varð fyrir val-
inu hjá Eydísi Sjöfn þar sem hana
langaði að prófa eitthvað nýtt og taka
sér hvíld frá bóknámi. Hún er mjög
ánægð með hópinn og andrúmsloftið
í skólanum. Sigurrós tekur í sama
streng. Hún hafi viljað læra eitthvað
nytsamlegt frekar en að fara út á
vinnumarkaðinn, áður en hún færi í
áframhaldandi nám. „Þetta brýtur
upp hefðbundið bóknám,“ segir Sig-
urrós og bætir við: „Mér fannst þetta
ótrúlega praktískt. Það er gott að
kunna eitthvað fyrir sér í elda-
mennsku og handavinnu.“ Námið er
ein önn og þótti þeim báðum eins og
þær væru nýbyrjaðar.
Frekar ógeðslegt fyrst
Sláturgerð í
Hússtjórnarskól-
anum í Reykjavík
Morgunblaðið/Þórður
Sláturgerð Flestar stúlkurnar höfðu ekki tekið slátur áður og ekki var laust við að þær hefði hryllt við í fyrstu en
voru þó ekki lengi að tileinka sér réttu vinnubrögðin. Þegar upp var staðið þótti þeim þetta nokkuð einfalt.
Saumaskapur Eingöngu var hægt að fá sláturkeppi úr gerviefni.