Morgunblaðið - 03.10.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins til að berjast
gegn krabbameinum hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum
og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum
bleikan bíl!
Styrmir Gunnarsson vekur at-hygli á að sumir íslensku ESB-
rokkanna hafi þagnað:
Fyrstu misserineftir hrun var
Finnlandi hvað eftir
annað hampað í um-
ræðum hér sem
fyrirmyndarríki,
sem hefði gerzt aðili
að Evrópusamband-
inu og tekið upp evru og þar sem
allt væri í blóma.
Þess var að sjálfsögðu ekki getiðað Finnar gengu í Evrópusam-
bandið vegna þess að þeir töldu
vörn í því gagnvart nágrannanum í
austri.
Á undanförnum mánuðum ogmisserum hefur verið að koma
í ljós, að ekki er allt sem sýnist í
evrulandinu Finnlandi. Uppsagnir
eru daglegt brauð og opinberar töl-
ur segja að atvinnuleysi sé nú 7,4%.
Finnska blaðið Helsinki Times(sem byggir á YLE-fréttastof-
unni finnsku) segir hins vegar að
þessar tölur segi ekki alla söguna.
Þegar með sé tekinn fjöldi atvinnu-
lausra, sem falli utan við opinbera
skráningu, sé atvinnuleysi í Finn-
landi 19,1%.
Skilgreining á atvinnuleysi íFinnlandi er þröng og m.a.
þarf fólk að geta sýnt fram á virka
leit að vinnu síðustu fjórar vikur til
þess að teljast atvinnulaust.
Nú eru um 149 þúsund Finnaratvinnulausir án þess að vera
skráðir sem slíkir.
Enda heyrist nú lítið um Finn-land sem fyrirmynd í um-
ræðum hér.“
Styrmir
Gunnarsson
Fyrirmynd fjarlægð
úr ramma
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.10., kl. 18.00
Reykjavík 5 skúrir
Bolungarvík 4 rigning
Akureyri 4 skýjað
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 heiðskírt
Stokkhólmur 13 skýjað
Helsinki 10 léttskýjað
Lúxemborg 20 skýjað
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 16 léttskýjað
Glasgow 15 skýjað
London 20 léttskýjað
París 21 léttskýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skúrir
Berlín 20 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 26 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 17 þrumuveður
Aþena 22 heiðskírt
Winnipeg 10 léttskýjað
Montreal 13 léttskýjað
New York 18 alskýjað
Chicago 21 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:43 18:51
ÍSAFJÖRÐUR 7:51 18:54
SIGLUFJÖRÐUR 7:34 18:37
DJÚPIVOGUR 7:13 18:20
Arion banki ætlar að endurskoða
gjald í talningarvélar sínar og hef-
ur boðist til að endurgreiða konu
sem greiddi 990 krónur fyrir að
setja 1.062 krónur af smámynt í
slíka vél á vegum bankans.
„Þau hringdu í mig frá Arion
banka og þökkuðu mér fyrir
ábendinguna. Þau segjast vera að
skoða þetta og buðu mér endur-
greiðslu þannig að ég þurfti ekk-
ert að ganga eftir því, þau höfðu
frumkvæði að því. Ég er bara
ánægð með það,“ segir Herdís
Herbertsdóttir sem sat eftir með
aðeins 72 krónur eftir viðskipti sín
við talningarvélina en sagt var frá
málinu í Morgunblaðinu í gær.
Gjaldið var tekið þar sem hún var
ekki í viðskiptum við Arion banka.
„Þetta er yfirsjón af okkar hálfu
og við brugðumst við um leið og
þetta kom í ljós,“ segir Bára Mjöll
Þórðardóttir hjá samskiptasviði
bankans.
Gjaldið hafi verið sett á áður en
sjálfvirkar talningarvélar komu til
sögunnar fyrir um þremur árum
en áður hafi gjaldkerar talið smá-
mynt. Því hafi bankinn talið rétt
að endurskoða gjaldið og verður
gjald ekki tekið af talningu í vél-
unum á meðan nýtt gjald liggur
ekki fyrir.
Herdís leggur áherslu á að
starfsmenn bankans hafi verið
kurteisir og hún hafi mætt góðu
viðmóti frá þeim allt frá upphafi
og eftir að athygli var vakin á
gjaldheimtunni í Morgunblaðinu.
Boðin end-
urgreiðsla
á gjaldinu
Dýrt Gjaldið í vélina var nánast jafn-
hátt upphæðinni sem var talin.