Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Mikilvægt er að efla stuðning við for- eldra vegna netávana unglinga. For- eldrar virðast eiga í erfiðleikum með að setja börnum sínum mörk og þurfa verkfæri til að tak- ast á við foreldra- hlutverk sitt hvað netnotkun varð- ar,“ segir Ólína Freysteinsdóttir um niðurstöður MA verkefnis í fjölskyldumeð- ferðarnámi við Háskóla Íslands: „Bara fimm mín- útur í viðbót“. Lýsing unglinga af samskiptum um netnotkun. Helstu niðurstöður eru þær að ung- lingar telja sig eyða of miklum tíma á netinu sem bitnar á skóla og félagslífi og kemur niður á samskiptum við for- eldra. Jafnframt telja unglingar að foreldrar þeirra séu óánægðir með netnotkunina og hafa skilning á því að foreldrar setji þeim mörk. Rannsóknin byggir á greiningu gagna sem safnað var hér á landi vegna eigindlega hluta Evrópurann- sóknarinnar EU NET ADB sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri hafði veg og vanda af. Til- gangurinn með rannsókn Ólínu var að öðlast betri skilning á samskiptum unglinga og foreldra hvað netávana snertir með það að markmiði að sjá hvernig hægt er að styrkja fjöl- skyldur í að takast á við netávana og í því ljósi er mikilvægt að hlusta á raddir barna og unglinga þegar fjallað er um netnotkun þeirra. Ólík netnotkun Unglingarnir lýstu ólíkri netnotk- un: Sumir sögðu að þeir vildu ekki hanga svona mikið á netinu, aðrir lýstu því að þar kynntust þeir vinum og fengu útrás fyrir félagslega þörf. Aðrir nota netið mikið en það virtist ekki verða þeim til vandræða. Enn aðrir lýsa þesskonar vanda að líkur séu á að þeir þurfi aðstoð út úr honum. Ólína segir að það virðist sem meiri umræða þurfi að eiga sér stað innan veggja heimilisins um netnotk- un. Mikilvægt sé að skoða með ung- lingnum hvaða þýðingu netnotkun hafi í lífi hans og vinna með þá stöðu sem unglingurinn er í. „Foreldrar þurfa að hlusta og ekki dæma net- notkunina fyrirfram,“ segir Ólína. Netið sé orðið eðlilegur hluti daglegs lífs og því ekki gagnlegt að banna tölvunotkun. Mikilvægt sé að fólk sé meðvitað um hættur sem leynast á netinu og séu með nýrri tækni komn- ar inn á rúmgafl. Þetta þurfi að ræða eins og aðrar ógnir sem steðja að í lífi barna og unglinga. Koma öðruvísi fram á netinu Niðurstöður þessarar rannsóknar staðfesta fyrri rannsóknir um mik- ilvægi þess hlutverks sem fjöl- skyldan gegnir þegar kemur að ne- távana unglinga og að foreldrar þurfa að taka ábyrgð á netnotkun þeirra. Því liggur mestur ávinningur í að upplýsa um mikilvægi góðra tengsla milli foreldra og barna þegar tekið er á vanda eins og netávana og byggja á samkennd og stuðningi. Ljóst er að auka þarf faglega þjón- ustu, aðstoð og fræðslu til fjölskyldna og opna umræðuna um mikilvægi samskipta og að foreldrar setji börn- um sínum einhver mörk. Í rannsókninni kom fram að sumir unglingar segjast koma öðruvísi fram við náungann á netinu en í venjulegum samskiptum. „Það er umhugsunarefni og við þurfum að ræða mikilvægi þess að samskipti á netinu séu eins og hver önnur sam- skipti,“ segir Ólína en hún er sjálf- stætt starfandi fjölskylduráðgjafi á Akureyri. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ræða meira um net- notkun innan heimilis  Efla þarf stuðning við foreldra vegna netávana unglinga Ólína Freysteinsdóttir Netnotkun Ljóst er að auka þarf faglega þjónustu, aðstoð og fræðslu til fjölskyldna og opna umræðuna um mikilvægi samskipta og að foreldrar setji börnum sínum einhver mörk, segir Ólína Freysteinsdóttir. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Töluvert hefur verið spurt um jarða- kaupalánin sem Byggðastofnun byrjaði að veita snemma á þessu ári og hafa átta lán þegar verið veitt. Virðist hafa verið þörf fyrir fjár- mögnun af þessu tagi til að auðvelda ættliðaskipti á búum og stuðla að því að áhugasamt fólk geti hafið búskap. Komið hefur fram hjá fasteigna- sölum að erfitt sé fyrir ungt fólk að fjármagna jarðakaup. Byggðastofn- un kynnti sérstök jarðakaupalán í byrjun ársins. Þau eru veitt með lægri vöxtum en almenn fyrirtækja- lán og unnt er að greiða þau upp á lengri tíma. Elín Gróa Karlsdóttir, forstöðu- maður fyrirtækjasviðs Byggðastofn- unar, segir að það taki tíma að byggja upp bú, rækta bústofn, og koma af stað framleiðslu. Þess vegna sé boðið upp á þann möguleika að lánin séu afborgunarlaus fyrstu þrjú árin og aðeins greiddir vextir á þeim tíma. Skilyrði fyrir því er að bún- aðarráðunautar staðfesti áætlanir um uppbygginguna. Skilyrði fyrir veitingu lánanna er að stundaður sé búskapur á jörðinni og að á henni sé föst búseta. Elín Gróa segir að eftirspurnin það sem af er sýni að full þörf hafi verið að veita þessu máli athygli. Samþykkt hefur verið að veita átta lán, samtals að fjárhæð um 300 millj- ónir kr. Hvert lán er því að meðaltali rúmar 37 milljónir. Að auki bíða fjór- ar umsóknir eftir afgreiðslu hjá Byggðastofnun. Átta hafa fengið jarðakaupalán  Eftirspurn eftir hagstæðum lánum Byggðastofnunar til nýrra bænda Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Vatn er grundvallarforsenda lífs eins og við þekkjum það en þrátt fyrir það hafa ýmsir einstakir eiginleikar þess verið mönnum ráðgáta. Kjartan Thor Wikfeldt, sérfræðingur í eðlisfræði við Háskóla Íslands, hefur ásamt hópi vísindamanna unnið að rann- sóknum á ofurkældu vatni til að dýpka skilning manna á þessum sannkallaða lífselixír. Grein þeirra birtist á forsíðu hins virta vísinda- tímarits Nature nú í sumar. „Vatn býr yfir mjög mörgum óvenjulegum eðliseiginleikum. Sá sem er kannski þekktastur er að ís flýtur ofan á vatni. Fastur fasi nánast allra annarra efna sekkur til botns í vökvafasanum. Væri ekki fyrir þenn- an eiginleika vatns þá væru öll höf jarðarinnar frosin frá botni og upp og líf væri varla mögulegt,“ segir Kjartan. Þessir óvenju- legu eiginleikar vatns verða ennþá óvenjulegri við svonefnda ofur- kælingu, það er þegar vatnið er kaldara en 0°C en engu að síður ennþá fljótandi. Af þessum sökum telja margir að orsakir eiginleikanna sé að finna við ofurkæld hitastig. Of- urkæling á sér meðal annars stað í náttúrunni, að sögn Kjartans, í skýj- um og rigningu. „Þegar ofurkældir regndropar lenda á jörðinni breytast þeir sam- stundis í flughálan ís sem er stór- hættulegur fyrir bæði gangandi veg- farendur og bílaumferð,“ segir hann. Við rannsóknir vísindamannanna voru örsmáir vatnsdropar, aðeins milljónasti hluti af metra að þver- máli, snöggkældir niður í allt að -46°C í lofttæmi. Á þá var svo skotið röntgengeislum en tvístrun geisl- anna gefur upplýsingar um sam- eindaröðun dropanna. Hlutverk Kjartans var að túlka niðurstöðurnar sem þannig fengust, meðal annars með því að bera þær saman við tölvulíkön. „Þetta eru algerar grunnrann- sóknir sem stýrast af grundvallarfor- vitni um hvernig efnasambandið vatn hagar sér. Vatn er mikilvægasti vökvi í heimi fyrir okkur á jörðinni og eina leiðin fyrir líf er að vatn sé til staðar. Þessir óvenjulegu eiginleikar vatns eru ennþá ekki nægilega vel skildir en þeir hafa áhrif á hluti eins og líf á jörðinni, veðurfræði, loftslagsfræði og efnafræði. Með því að skilja betur grundvallareiginleika vatns mun það seinna meir meðal annars leiða til miklu betri skilnings á mikilvægum efnahvörfum og líffræði sem getur haft beinar hagnýtar afleiðingar,“ segir Kjartan um rannsóknirnar. Könnuðu einstaka eiginleika vatns Tilraun Röntgengeisli tvístrast á of- urkældum örsmáum vatnsdropa.  Íslendingur átti hlut í rannsókn sem birtist á forsíðu Nature  Rannsökuðu ofurkælt vatn með rönt- gengeislum í lofttæmi  Dýpkar þekkingu á eiginleikum vatns og nýtist í líf-, veður- og loftslagsfræði Kjartan Thor Wikfeldt Áhugasamir geta gert tilraun til að ofurkæla vatn í frystinum heima hjá sér. Til þess þarf eim- að eða hreinsað vatn og er það látið standa í flösku í frysti í um tvo og hálfan tíma, allt eftir hitastigi frystisins. Gæta þarf varúðar þegar flaskan er tekin út. Ofurkælt vatnið er enn fljótandi en komi högg á flöskuna kristallast vatnið á örskammri stundu. Hægt er að finna fjölda leið- beininga um hvernig skal ofur- kæla vatn, t.d. á myndbanda- þjónustunni Youtube. Tilraun heima OFURKÆLDU Í FRYSTINUM Yfir 130 ræðismenn Íslands frá 57 löndum sækja nú ræðismanna- ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið stendur fyrir í Hörpu. Tilgangur ráðstefnunnar er að auka og styrkja tengslin við þessa útverði Íslands erlendis og kynna þeim stöðuna í efnahagsmálum, atvinnu- lífi, ferðamennsku, listum og við- skiptatækifærum á Íslandi, sam- kvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisríkisráðu- neytinu. Ræðismenn Íslands erlend- is eru 243 og starfa í 89 löndum. „Við erum stolt af því að geta boðið þegnum okkar upp á fyrsta flokks þjónustu ræðismanna um allan heim og þið eruð lykillinn að henni. Fyrir það erum við ykkur afar þakklát,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra m.a. í opnunarávarpi. 130 ræðismenn í Hörpu Morgunblaðið/Kristinn Söngur Þóra Einarsdóttir söng á ráðstefnunni og Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra brá sér í hlutverk undirleikarans og fór létt með það.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.