Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
„Tilfærsla á gjalddaga endurspeglar
auðvitað erfiða lausafjárstöðu og
meiriháttar skuldsetningu. Ef engar
breytingar verða, mun félagið á end-
anum ekki geta greitt skuldir. Það
mun þó ekki gerast á næstu mán-
uðum eða í fyrirsjáanlegri framtíð,“
segir Ingvi Hrafn Óskarsson, stjórn-
arformaður Rík-
isútvarpsins.
RÚV sendi frá
sér tilkynningu í
fyrradag þar sem
fram kom að
RÚV hefði samið
við eiganda
skuldabréfs um
að fresta gjald-
daga afborgunar
upp á 190 milljón-
ir króna, frá 1.
október til 31. desember 2014.
Skuldabréfið er í eigu Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og er með rík-
isábyrgð.
Að sögn Ingva Hrafns er staðan á
bréfinu núna hátt í þrír milljarðar.
„Við sendum út tilkynninguna þar
sem bréfið er skráð á skuldabréfa-
markað. Það þarf því að upplýsa um
allar breytingar á gjalddögum með
tilkynningu í Kauphöll,“ skýrir Ingvi
frá. „Við töldum einnig eðlilegt í ljósi
þess að þetta er opinbert hlutafélag,
að gerð væri góð grein fyrir stöðu
mála.“
Erfið lausafjárstaða og skuldir
Hann neitar því að vanskil séu á
bréfinu, þar sem tekist hafi að semja
við skuldabréfaeigandann um til-
færslu gjalddaga. Félagið sé því
gjaldfært.
Ingvi Hrafn telur að RÚV muni
takast að greiða afborgun af bréfinu
í lok árs. „Við eigum ágætis samstarf
við okkar viðskiptabanka. Á síðustu
árum hefur lausafjárfjármögnun
verið sótt þangað eftir þörfum.“
Hann segir félagið hafa kosið að
óska eftir tilfærslu á gjalddaga í stað
þess að draga á lánalínu hjá Lands-
bankanum. „Sá möguleiki er alltaf til
staðar til að fleyta félaginu yfir erf-
iðan tíma og yfirvinna skammtíma-
lausafjárþörf. Félagið kaus að gera
það ekki í þetta skiptið, heldur eiga
þann möguleika inni síðar.“
Afborganir næsta rekstrarárs
nema um 444 milljónum króna en
Ingvi Hrafn kveðst ekki hafa sér-
stakar áhyggjur af þeim. „Við höfum
ekki ástæðu til að ætla annað en að
félagið geti staðið straum af skuld-
bindingum sínum í fyrirsjáanlegri
framtíð.“
Uppsagnir skiluðu litlu
Hann bendir á að RÚV sé, til
lengri tíma litið, yfirskuldsett. „Til
að bregðast við því þarf auðvitað að
grípa til ráðstafana. Stjórnin vinnur
að aðhaldi og sölu eigna en aðrir
þættir eru í höndum Alþingis og fjár-
veitingarvaldsins.“
Hann segir nú þegar hafa verið
gripið til ráðstafana til að minnka
rekstrarkostnað og vísar m.a. til
fjöldauppsagna síðastliðið haust.
„Þáverandi framkvæmdastjórn tjáði
okkur að þær aðgerðir ættu að spara
hálfan milljarð á ársgrundvelli og að
félagið ætti með tímanum að komast
í jafnvægi. Það hefur svo komið í ljós
í framhaldinu að þessar aðgerðir
hafa ekki skilað tilskildum árangri.
Ný framkvæmdastjórn hefur hins
vegar ráðist í alls kyns breytingar á
skipulagi og fækkað stöðugildum til
að lækka rekstarkostnað.“
Bregðast við með sölu eigna
Þá sé unnið að undirbúningi eigna-
sölu til að lækka skuldirnar en það
var ákveðið nú í vor. „Verðmætasta
eign félagsins er fólgin í húsnæðinu
og lóðinni umhverfis hana og við
vinnum að því að koma henni í sölu,“
greinir Ingvi Hrafn frá. Hann kveðst
ekki geta nefnt neinar dagsetningar
í því sambandi. „Verkefnið er stórt
og það tekur tíma að vinna það.“
Aðspurður um verðmæti eigna og
hverju salan myndi breyta, svarar
hann: „Við viljum ekki nefna neinar
tölur á þessu stigi. Sala mun hafa það
markmið að grynnka á skuldum,
minnka fjármagnskostnað og gera
félagið þannig betur í stakk búið til
að standa að rekstri sínum áfram.“
Vaxtaberandi skuldir
5,5 milljarðar
Ný úttekt endurskoðendafyrir-
tækisins PriceWaterhouseCoopers
(PWC) sýnir að RÚV er yfirskuld-
sett en vaxtaberandi skuldir félags-
ins nema 5,5 milljörðum króna. Af
því nemur umrætt skuldabréf um
þremur milljörðum. PWC segir
RÚV ekki skapa nægilegt sjóð-
streymi til að standa undir
greiðslum næsta árs afborgana og
vaxtagreiðslna. Því sé nauðsynlegt
að minnka skuldir og auka veltufé til
þess að tryggja rekstrarhæfi félags-
ins. Skuldir RÚV eru að mestu leyti
vegna gamalla lífeyrisskuldbindinga
auk þess sem lánsfjármögnun hefur
vaxið umtalsvert á síðustu árum.
Að sögn Ingva Hrafns hefur ekki
verið ákveðið hvenær úttektin verði
gerð opinber. Hann bendir þó á, að
niðurstaða úttektarinnar hafi komið
fram með tilkynningu RÚV til
Kauphallarinnar.
Tap á fyrri hluta rekstrarárs
Í árshlutaskýrslu RÚV fyrir
rekstrartímabilið 1. september 2013
til 28. febrúar 2014 kemur fram að
tap RÚV á reikningstímabilinu hafi
numið 219,2 milljónum króna.
Þá uppfyllir RÚV ekki lánaskil-
mála sem eru í lánasamningum fé-
lagsins við Landsbankann um 8%
eiginfjárhlutfall. Lán RÚV hjá
Landsbankanum nema um 1,1 millj-
arði króna. Landsbankinn gaf út yf-
irlýsingu í mars um að hann myndi
ekki á því rekstrarári, sem lauk í lok
ágúst, nýta gjaldfellingarheimild í
lánasamningum, fari bókfært eigin-
fjárhlutfall undir 8%. Ingvi Hrafn
segir ljóst að bankinn muni ekki
grípa til slíkra aðgerða.
Erfið lausafjárstaða og
skuldsetning plagar RÚV
Morgunblaðið/Ómar
Skuldabréf Ríkisútvarpið þurfti að semja um tilfærslu gjalddaga á afborgun á skuldabréfi í eigu lífeyrissjóðs.
Stjórnarformaður telur félagið geta mætt skuldbindingum næstu mánaða
Skuldsetning RÚV
» RÚV samdi um tilfærslu
gjalddaga við Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins, sem er
eigandi skuldabréfs upp á þrjá
milljarða króna.
» Lán sem stofnað var til áður
en RÚV var breytt í opinbert
hlutafélag árið 2007 eru með
ríkisábyrgð. Það á til að mynda
við um umrætt skuldabréf.
»Vaxtaberandi skuldir RÚV
nema 5,5 milljörðum króna. Af-
borganir og vaxtagjöld á næsta
rekstrartímabili nema 444
milljónum króna.
Ingvi Hrafn
Óskarsson
● Viðsnúningur varð á rekstri Frétta-
tímans á síðasta ári og var 5,5 milljóna
króna taprekstri árið 2012 snúið í 25
milljóna króna hagnað á árinu 2013,
samkvæmt ársreikningi rekstrarfélags
blaðsins, Morgundags ehf.
Eignir félagsins námu liðlega 97 millj-
ónum króna í árslok 2013 og var bók-
fært eigið fé tæpar 43 milljónir króna.
Eiginfjárhlutfall var 44% í árslok.
Rekstur Fréttatímans
skilar hagnaði
!
""
"##
$#$
$!#
#
$""
%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"#
!#
"$%#
"!#
$ #
#!
"
"
#$
"$
#
"$
"#
$##
#$
!!
$
#!
#
"#!
● Það verður að
vera forgangsverk-
efni stjórnvalda og
aðila vinnumark-
aðarins að stilla
betur saman
strengi og koma í
veg fyrir hörð átök
á vinnumarkaði,
segir í nýrri umfjöll-
un Samtaka at-
vinnulífsins.
Á árinu megi ætla að kaupmáttur
launa vaxi um 3,5% sem sé einsdæmi á
síðustu 15 árum, að undanskildu árinu
2007. Hröð hjöðnun verðbólgu beri ár-
angri síðasta kjarasamnings glöggt vitni,
þar sem hóflegar launahækkanir hafi
stuðlað að stöðugra verðlagi og meiri
kaupmáttaraukningu en ella.
Í umfjöllun SA segir að þrátt fyrir góð-
an árangur sé staðan á vinnumarkaði tví-
sýn og að óbreyttu gæti stefnt í víðtæk-
ari verkföll á almennum vinnumarkaði en
um áratugaskeið. Ástæðurnar megi
rekja til kjarasamninga opinberra starfs-
manna, samskiptaleysis stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðar og ósamstöðu um
áherslur í efnahagsmálum.
SA segir það verða að vera sameig-
inlegt markmið allra að viðhalda þeim
góða árangri sem náðst hefur á undan-
förnum misserum, með áframhaldandi
uppbyggingu kaupmáttar á grundvelli
verðstöðugleika. Þar verði allir að axla
ábyrgð.
Kalla eftir sameiginlegri
ábyrgð á stöðugleika
Þorsteinn
Víglundsson
STUTTAR FRÉTTIR ...
E-60 Bekkur
Verð frá kr. 59.000
Fáanlegur í mismunandi lengdum.
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn
E-60 Stólar
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð
Verð frá kr. 24.300