Morgunblaðið - 03.10.2014, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Fyrir nokkrum dög-
um síðan fór ég upp á
Fljótsdalsheiði til að
skjóta heiðagæs. Ég
arkaði af stað í blíð-
skaparveðri lengst nið-
ur að dalskoru, að vatni
þar sem ég hafði áður
skotið gæsir með góð-
um árangri. Skildi bíl-
inn eftir á vegarslóða
ekki langt frá þjóðveg-
inum. En þegar ég kom að vatninu
sá ég för eftir fjórhjól, búið var að
troða allt út og liggja á fleiri stöðum
í grasinu, tóm skothylki lágu eins og
hráviði um allt.
Samt lagðist ég í blauta mýrina og
fann ískalt vatnið síga inn í gegnum
veiðigallann. Og þarna lá ég eins og
bjáni fram yfir sólsetur en lítið gerð-
ist. Þær gæsir sem voru á ferðinni
forðuðust pollinn, flugu hjá án þess
að íhuga lendingu. Í þeirra augum
var þetta pollur dauðans.
Þá sá ég að þokan var að læðast
inn. Ég tók mið af bílnum sem bar
við himin í fjarska uppi á ás. Snæ-
fellið blasti við sem gott kennileiti.
Samt ákvað ég að bíða ekki lengur,
því myrkur var að skella á.
Þegar ég gekk af stað sá ég að það
var kominn þokukantur eins og hvítt
kvikmyndatjald sem dregið hafði
verið fyrir landslagið. Bíllinn sást
ekki, ekki ásinn og Snæfellið var
gjörsamlega horfið. Það eina sem
sást var flatt landslag og engin
kennileiti, mjög villandi.
Eins og sannur skipstjóri þá
fylgdi ég stefnunni
sem ég hafði tekið af
bílnum og hafði ekki
áhyggjur. En eftir
töluvert labb fór mig
að lengja eftir skugga
bílsins. Skyndilega sé
ég stórt vatn sem ég
hafði aldrei séð þarna
áður. Þetta vatn var
mér algjör ráðgáta.
Ég gerði ráð fyrir að
ég hefði leitað til
hægri, því það gera
menn í þoku. Svo ég
tók aðra stefnu. En brátt tók ég eftir
að ég var að ganga á melum, þegar
ég átti að vera í mýri. Nú leist mér
hreinlega ekkert á blikuna, hvergi
var neitt landslag til að átta sig, og
ekki kom bíll eftir þjóðveginum; af
bílljósunum hefði ég getað áttað
mig. Þetta var svakalega óþægilegt.
Hvít þokan var að umvefja mig. Mér
fannst ég vera ansi aleinn og yfirgef-
inn. Ég fór að efast um mína sstað-
setningu. Hafði ég gengið í stóran
hring? Var ég kominn svo langt frá
þjóðveginum að ég sá ekki bílljósin?
Ég nam staðar og vissi ekkert í
hvaða átt ég átti að fara. Allskonar
ranghugmyndir þutu í gegnum hug-
ann.
Ekki átti ég síma með GPS,
kompásinn var heima í rjúpnavest-
inu og ekki myndi björgunarsveitin
koma og sækja mig. Því þegar ég
lenti í hrakningum úti á Héraðs-
sandinum í kolsvörtum snjóbyl um
miðjan vetur, var sagt að ég yrði
ekki sóttur aftur því ég væri búinn
með kvótann. Vissulega var þetta
aðvörun til mín og allra þeirra sem
fara á fjöll.
Þá reyndi ég að nota alla klæki
skipstjórans. Úr hvaða stefnu blés
vindurinn þegar ég var við vatnið?
Hversu mikið hafði ég leitað til
hægri? Ég íhugaði, reiknaði og rök-
ræddi. Tók nýja stefnu, nú lengra til
vinstri.
Ég gekk yfir mela og mýri, með
fullan bakpokann af skotum og
haglabyssan seig í. Rennblautur var
ég langt upp á bak. Þokan gerir eng-
an mannamun og hún gerir ekki boð
á undan sér.
Viti menn, eftir töluverða göngu
birtist skyndilega Benzinn, gamli
góði Benzinn, sem þögul skuggavera
í þokunni. Ég hafði hitt beint á hann.
Feginn var ég og þakklátur, en ég
er ennþá aleinn, villtur og yfirgefinn.
Allir geta villst í þoku
Eftir Ásgeir
hvítaskáld »Ég gekk yfir mela og
mýri, með fullan
bakpokann af skotum og
haglabyssan seig í. Þok-
an gerir engan manna-
mun og hún gerir ekki
boð á undan sér.
Ásgeir hvítaskáld
Höfundur er rithöfundur
og leikstjóri.
Keppni um Súgfirðinga-
skálina hafin
Keppni um Súgfirðingaskálina,
tvímenningsmóti Súgfirðingafélags-
ins, hófst á mánudagskvöldið með
þátttöku 14 para og styrktu þau fé-
lagsauðinn. Djúp lægð gekk yfir
landið með úrkomu þegar Súgfirð-
ingaskálin hófst í 14. skipti. Það var
því rifjað upp að árið 1926, á Suður-
eyri við Súgandafjörð sem 66° Norð-
ur fór að framleiða sjóklæði og hóf
þar með starfsemi. Hann er saltur
sjórinn við Súgandafjörð. Úrslit úr
fyrstu lotu urðu eftirfarandi en með-
alskor er 156 stig.
Hafliði Baldursson – Árni Guðbjörnss. 192
Gróa Guðnad. – Alda S. Guðnadóttir 181
Sturla G. Eðvarðss. – Björn Guðbjörnss. 177
Ágætis byrjun hjá nýliðunum Haf-
liða og Árna. Kvöldið gaf þeim 61.5%
skor.
Spilaðar verða sjö lotur og telja
sex bestu skorin. Næsta lota verður
spiluð 27. október.
Bridsdeild Breiðfirðinga
Hafin er fjögurra kvölda keppni
þar sem þrjú gilda til verðlauna.
Efstu pör í N/S
Þorgeir Ingólfss./Garðar Valur Jónsson 250
Benedikt Egilss./Sigurður Sigurðars. 239
Sturlaugur Eyjólfss./Birna Lárusdóttir 234
Efstu pör í A/V
Sveinn Sigurjónss./Þórarinn Beck 244
Arni Guðbjörnss./Hafliði Baldursson 239
Ingibj. Guðmundsd./Kristín Andrews 237
Spilað var á 8 borðum.
Staðan eftir fyrsta kvöldið er því
þessi:
Þorgeir Ingólfss. – Garðar V. Jónss. 250
Sveinn Sigurjónss. – Þórarinn Beck 244
Benedikt Egilsson – Sigurður Sigurðars. 239
Árni Guðbjörnss. – Hafliði Baldurss. 239
Ingibj. Guðmundsd. – Kristín Andrews 237
Spilað er á sunnudagskvöldum
klukkan 19.
Hrólfur og Oddur efstir hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur
Staðan að loknum þremur umferð-
um í Bötler-tvímenningi BR:
Hrólfur Hjaltason – Oddur Hjaltason 155
Jón Baldursson – Sigurbjörn Haraldss. 138
Sverrir Ármannss. – Aðalst. Jörgensen 115
Bræðurnir Hrólfur og Oddur
fengu risaskor kvöldsins, 80 stig.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
Síðumúla 12 | 108 Reykjavík | Sími 510 5520 | kjaran@kjaran.is | kjaran.is
Fjögur ár í röð hefur Konica Minolta
hlotið útnefninguna „BLI A3 MFP
Line of the Year“ sem veitt eru bestu
fjölnotatækjum heims, fyrst allra
framleiðenda.
Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
Kynntu þér PRENTUMSJÓN hjá
Kjaran, aðgangstýrð prentumhverfi,
þjónustusamninga og rekstrarleigu.
Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
KONICA MINOLTA
Verðlaunuð fjölnotatæki
OKTÓBERTILBOÐ
100 þúsund króna
verðlækkun á bizhub A3
fjölnotatækjum