Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 27

Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014 Það er þess vegna sem trúarbrögðin eru til og óendanlega margar gerðir þeirra virðast vera í boði; helstu meg- intrúarbrögðin hafa klofnað í óteljandi margar greinar og erfitt er að halda utan um öll þau ósköp, þótt fjöl- margt menntafólk í há- skólum um heim allan geri sitt besta. Allflest trúarbrögð okkar jarðarbúa sýnast nú vera í einhvers konar vand- ræðum, t.d. kaþólska kirkjan með öll sín kynferðisvandamál á mörgum svið- um og gyðingar komnir jafnvel ennþá lengra út um þúfur. Múslimar, bæði súnnítar og sjítar, eru margir hverjir augsýnilega ekki í lagi og hægt væri að halda vandlætingunni lengi áfram enn. Blessuð íslenska þjóðkirkjan hefur slípast mikið til í aldanna rás. Síðasta öld var sérlega erfitt tímabil fyrir hana sem slíka, einkum vegna „nýguðfræð- innar“ og uppgangs spíritisma, guð- speki, fríkirkju- og fíladelfíusafnaða, ásatrúarfólksins, baháanna, búddista, múslima og vitaskuld verður að halda til haga trúleysingjunum, enda er trú þeirra trúlega erfiðust. Fleira mætti ugglaust tína til er rennir stoðum undir afstöðu efasemdarsinna. Er þá ekkert eitt gott til sem trúa má á? Hvað með svokallaða „sam- visku“ (sameiginlega visku)? Innri röddina? Var eitthvert „lögmál“ ritað í hjarta hvers einstaklings í árdaga? Búdda okkar tíma, Nichiren Daishon- in, kenndi að innsti kjarni hverrar manneskju væri jafn dýrmætur og hver og einn einstaklingur ómet- anlegur, burtséð frá stétt eða stöðu. Ómetanlega verðmætur innst inni – en örðugt getur verið að koma auga á þá staðreynd stundum, ekki síst þegar sumt fólk leggst hvað lægst. Verður jafnvel í verstu tilfellum að „skepnum“ sem ábyrgum yfirvöldum ber að upp- ræta. Málið liggur nokkuð ljóst fyrir: Of- beldi er brotið á bak aftur með ennþá öflugra ofbeldi. Því mætti líkja við sárs- aukafulla læknisaðgerð. Á hinn bóginn fyrirfinnst annars konar aðferð er felst í því að biðja fyrir viðkomandi – og vit- að er að hópefli margra bænheitra ein- staklinga getur gert kraftaverk. Fyrri aðferðinni var jafnan beitt í mannkyns- sögunni; menn voru einmitt í vor að minnast umfangsmestu stríðsaðgerða sem nokkurn tíma hefur verið gripið til, D-dagsins 6.6. 1944. Er kannski tími kom- inn til þess núna að fast- setja dagsetningu fyrir nýjan D-dag í framtíð- inni, þar sem fram- bærilegri aðferðin kæmi til framkvæmda, hvað svo sem fólk kýs að kalla sjálft aflið sem knýr líf- ið? Flest trúum við á eitthvað Eftir Pál Pálmar Daníelsson » Á hinn bóginn fyrir- finnst annars konar aðferð er felst í því að biðja fyrir viðkomandi. Höfundur er leigubílstjóri.Páll Pálmar Daníelsson Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími 415 4000 Opnunartímar: Mánudag - fimmtudag kl. 8:00-17:30, föstudaga kl. 8:00-17:00 MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR SJÁVARÚTVEGINN ÞÖKKUM FYRIR KOMUNA Á SJÁVARÚTVEGSSÝNINGUNA SMUROLÍUR OG SMUREFNI Fátt finnst mér betra að fá á minn disk en spriklandi nýjan fisk. Og hann finnst mér best að fá í fisk- búðum bæjarins. Ég geri mér því sérstaklega ferð í fiskbúðirnar og vel eitthvað af kræsingunum sem eru í kæliborðinu hjá þeim. En það er ekki bara fiskurinn sem lokkar mann í fiskbúðina, það eru ekki síður hinir síkátu og kurteisu fisksalar sem taka á móti hverjum viðskiptavini með brosi á vör og glað- legum orðum. Vil ég sérstaklega nefna fisksalana geðþekku í Hafinu í Hæðarsmára og hjá Fiskikóngingum, en annars virðist öll stéttin sérlega geðþekk. Þegar ég smjattaði á nætursaltaðri ýsu með nýjum rauðum og rúgbrauði með smjöri ómaði enn í eyrum kveðj- an glaðlega þegar fisksalinn rétti vör- una yfir borðið: „Gerðu svo vel og eigðu frábæran dag.“ Hafmeyja. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Fisksalarnir síkátu Sælkeramatur Það er margt girnilegt á boðstólum í fiskbúðum landsins. - með morgunkaffinu – með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.