Morgunblaðið - 03.10.2014, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
✝ HólmfríðurSigurðardóttir
fæddist 12. apríl
1920 á Hálsi í
Köldukinn. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Hlíð á Akur-
eyri 22. september
2014.
Foreldrar henn-
ar voru Kristjana
Marín Magnús-
dóttur og Sigurður
Guðni Jóhannesson, Kristjana
Marín lést árið 1923 og Sig-
urður lést árið 1928.
Hólmfríður var yngst sjö
systkina. Þau voru Sigurbjörn,
f. 1898, látinn; Ragnar, f. 1898,
d. 1970; Magnea, f. 1904, d.
1998; Stefán, f. 1906, d. 1974;
Jónas, f. 1912 d. 1999 og Björn,
f. 1917, d. 2000. Hólmfríður
giftist Einari Jónssyni frá Kletti
í Geiradal, f. 1909, d. 1994. For-
eldrar hans voru Jón Einarsson
og Pálína Ólafsdóttir. Hólm-
fríður og Einar eignuðust tvær
dætur. 1) Þórdísi, f. 1944, d.
Davíð Jóhannsson, þau skildu.
Hólmfríður ólst upp í „Kinn-
inni“, fyrst á Hálsi og svo, frá
átta ára aldri, hjá systur sinni,
Magneu, og mági, Jóni Jakobs-
syni, á Hóli. Fósturbræður
hennar eru Sigurður Guðni, f.
1929, Helgi, f. 1933 d. 2003,
Jakob, f. 1936, d. 2010 og Mar-
inó, f. 1937. Hún fór í skóla á
Laugum í Reykjadal árin 1939 –
1941. Eftir það réðst hún sem
kaupakona til hálfbróður síns
Ragnars í Hallfríðarstaðakot í
Hörgárdal, svo réðst hún í
Klauf í Eyjafirði, Akureyri og í
Flatey á Skjálfanda. Frá 1942
til 1944 vann hún á Gildaskála
Hótels KEA. Þar kynntist hún
eiginmanni sínum. Þau stofnuðu
fyrst heimili í Ægisgötu 6 á Ak-
ureyri, en lengst bjuggu þau í
Kringlumýri 20. Árið 1983
fluttu þau Einar í Furulund 3b á
Akureyri. Hólmfríður gegndi
ýmsum störfum eftir að hún
gekk í hjónaband. Síðast starf-
aði hún í Brauðgerð KEA. Ein-
ar lést 12. desember 1994.
Hólmfríður flutti í Hlíð árið
2011 þar sem hún bjó til dánar-
dags.
Útför Hólmfríðar verður
gerð frá Akureyrarkirkju í dag,
föstudaginn 3. október 2014, og
hefst athöfnin kl. 13.30.
2007, eftirlifandi
eiginmaður hennar
er Ástvaldur Guð-
mundsson, þeirra
börn eru: a) Hólm-
ar, f. 1967, kona
hans er Óla Björk
Eggertsdóttir og
eiga þau tvö börn.
b) Álfheiður
Hrönn, f. 1970, eig-
inmaður hennar er
Halldór Björn Hall-
dórsson, þau eiga tvo syni. c)
Ásgeir, f. 1981, sambýliskona
hans er Karólína Einarsdóttir,
þau eiga 3 börn, og 2) Margréti
f. 1950, hennar börn eru a)
Berglind Hólm Leifsdóttir, f.
1969, d. 1973, b) Bergdís Hólm,
f. 1971, eiginmaður hennar er
Styrmir Haraldsson og eiga þau
tvö börn. c) Einar Hólm, f. 1974,
kona hans er Auður Kristins-
dóttir, þau eiga tvö börn. d)
Nanna Hólm, f. 1981, sambýlis-
maður hennar er Valdimar Geir
Valdimarsson, hann á tvær dæt-
ur. Eiginmaður Margrétar var
Elskuleg mamma mín er látin.
Við áttum langa samveru, þar
sem við stóðum saman gegnum
þykkt og þunnt. Stundum blés
virkilega á móti, en langoftast
áttum við góða daga.
Nú í lok dags langar mig að
minnast hennar með þessu litla
ljóði Davíðs Stefánssonar.
Við sjáum að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær,
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
Guð blessi þig mamma mín.
Þín dóttir,
Margrét (Madda).
Elsku langamma. Ég hef sakn-
að þín mikið eftir að þú fórst. Það
eru margar minningar sem koma
upp í hugann, þær eru svo marg-
ar og góðar. Til dæmis þegar við
fórum á danssýninguna fyrir jól-
in í fyrra.
Áður en það var opnað inn í
salinn þá sátum við fyrir framan
hann og skoðuðum myndaalbúm
af fólkinu á elliheimilinu og gáð-
um að því hvort þú værir þar. Svo
er það líka þér að þakka að ég
kann að prjóna. Það hefur verið
sagt við mig hvað ég prjóna vel
og þá hugsa ég til þín og að þetta
sé þér að þakka því ég var svo
ung þegar þú kenndir mér það.
Þú varst, svo ég man eftir, alltaf
að prjóna. Mér fannst svo fallegt
það sem þú gerðir.
Í tvo vetur kom ég til þín eftir
skóla. Mér þótti svo vænt um þig
og þú varst alltaf svo góð við mig.
Ég þurfti að lesa fyrir skólann.
Þá sátum við við eldhúsborðið og
ég las fyrir þig. Og við spiluðum.
Við spiluðum mikið. Þú kenndir
mér enska vist, rommí og svo
spiluðum við líka olsen olsen og
veiðimann. Stundum horfðum við
á Leiðarljós. Ég var svo lítil að ég
gat ekki lesið textann og skildi
ekki ensku, þá sagðir þú mér
hvað væri að gerast. Takk fyrir
allt.
Ólavía Klara.
Hún amma mín á Akureyri var
okkur afar kær. Hún var alltaf til
staðar, róleg og yfirveguð, hlý og
góð. Leiðin lá svo oft til ömmu á
Akureyri.
Ég minnist allra ferðanna til
Akureyrar sem barn, oft með for-
eldrum en líka einn að fara í fjall-
ið um páska. Ferðir í sveitina til
frænku á Hóli, í berjamó eða
ferðalög. Það voru mikil forrétt-
indi að eiga ömmu á Akureyri
þegar ég var í MA. Brauðsend-
ingar reglulega niður á heimavist
við mikinn fögnuð á öllum gang-
inum! Og einn vetur bjó ég líka
hjá ömmu í besta yfirlæti, varla
kominn af æfingu þegar amma
var búin að þvo og strauja
íþróttafötin.
Síðar flutti ég með mína ungu
fjölskyldu til Þórshafnar. Ófáar
ferðirnar keyrðum við með litlu
börnin milli Þórshafnar og
Reykjavíkur og alltaf var stoppað
hjá ömmu á leiðinni. Dyrnar opn-
ar, búið að smyrja brauð með
reyktum silungi og hangikjöts-
salati og hún bakaði bestu pönns-
ur á landinu!
Amma búin að búa um rúmin í
sínu herbergi, sjálf komin inn í
stofu! Hún kom líka stundum og
var hjá okkur á Þórshöfn, ómet-
anlegt fyrir börnin og okkur.
Henni Birnu Hrund, dóttur
minni, fannst líka gott að hafa
ömmu nálægt þegar hún var í
MA um tíma. Alltaf var svo gott
að koma til ömmu. Heimsóknir
okkar til ömmu núna síðustu árin
voru líka mjög gefandi og
skemmtilegar. Hún fylgdist náið
með fjölskyldu sinni og var vel
inni í öllu og ekki síður var
skemmtilegt að rifja upp með
henni gamla tíma og heyra frá-
sagnir hennar af lífinu í gamla
daga. Svo sannarlega lifði hún
tímana tvenna.
Amma gaf fjölskyldu sinni allt-
af allt. Við kveðjum einstaka
konu. Madda frænka og fjöl-
skylda á Akureyri fá miklar
þakkir fyrir alla umhyggjuna síð-
ustu árin.
Hólmar og fjölskylda.
Í dag kveðjum við ömmu okk-
ar. Þegar við systkinin setjumst
niður til að rifja upp gamla tíma
koma upp margar skemmtilegar
sögur og minningar.
Kjallarinn í Kringlumýri 20
þar sem geymslurnar voru not-
aðar sem leikvöllur. Fimm tíma
ferðalag frá Króknum til Akur-
eyrar í Charade um hávetur.
Brauðrist sem ristaði bara öðrum
megin og Nesquick og mjólk í
bláu glasi.
Hjá ömmu var besta ristaða
brauð með osti og kókómjólk í
heimi. Laufabrauðsgerð í brauð-
gerðinni.
Sláturgerð í Furunni. Bestu
pönnukökur í heimi. Rólegheita
spjall í eldhúskróknum í Furunni.
Halliblundurinn hennar uppúr
hádegi sem maður notaði í að lita
og teikna og Nágrannaáhorf upp-
úr kaffinu. Rice crispies-botnar
og margt fleira.
Amma var alltaf dugleg að
spila við okkur og kenndi barna-
börnum og barnabarnabörnum
að leggja kapla, spila rommí og
tveggja manna vist. Heimilið
hennar var alltaf miðpunktur og
griðarstaður fyrir hennar nán-
ustu.
Við erum óendanlega þakklát
fyrir þann tíma og þær samveru-
stundir sem við höfum átt með
henni og kveðjum hana með
söknuði.
Þín mynd mun okkur ætíð skýr,
þín atlot gleymast seint.
Ei orð það tjá sem innra býr
sem er í hjarta geymt.
Þitt hjartalag við þökkum hljóð
og hlýja faðminn þinn
þú, elsku amma, ylrík, góð
ert kvödd með tár á kinn.
(J.S.)
Hvíl í friði, amma okkar.
Bergdís Hólm
Einar Hólm og
Nanna Hólm
Hólmfríður
Sigurðardóttir
Með örfáum orðum langar mig
að minnast Mumma vinar míns,
sem nú hefur kvatt þennan heim.
Þegar ég var að verða ellefu ára
fékk ég það dásamlega hlutverk
að passa fyrsta barnabarn Höllu
frænku og Mumma. Stolt passaði
ég frænku mína reglulega í rúm
tvö ár. Á heimili þeirra hjóna var
gott að koma og einstaklega
notalegt andrúmsloft. Mummi
sýndi tónlistarnámi mínu mikinn
áhuga og hafði ég einstaklega
gaman af að heyra hann spila á
mismunandi hljóðfæri og syngja.
Sjaldnast fékk hann mig til að
syngja og spila með þar sem
feimni mín var hrikaleg á þessum
árum. Ég gleymi þó aldrei tón-
listarstundinni sem við áttum
saman í Huldulandinu þegar
pabbi varð fimmtugur. Þá var
sungið fram á nótt. Mummi spil-
Guðmundur Rósen-
kranz Einarsson
✝ GuðmundurRósenkranz
Einarsson fæddist í
Grjótaþorpinu í
Reykjavík 26. nóv-
ember 1925. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Ísafold í
Garðabæ 16. sept-
ember 2014.
Útför Guð-
mundar fór fram
frá Fríkirkjunni í
Reykjavík 25. september 2014.
aði á fiðluna mína,
gestirnir sungu og
nokkrir slógu takt-
inn með sleifum á
heimilispottana.
Minningin um
Mumma er því
tengd tónlist, glað-
værð, elsku og
hlátri.
Í kyrrð bænarinnar,
í þögn hjartans,
syngja englarnir lofsöng,
í höfugri kyrrð og hljóðlátum tærleik.
Þar sem orð tjá hið ósegjanlega,
mynd hrífur áhorfandann,
tónlistin huggar þann sem syrgir,
hláturinn smitar hópinn,
þar eru þeir í nánd,
englar Guðs.
Þar sem hlý hönd er rétt til hjálpar og
huggunar, þar er engill Guðs að verki.
Þar sem bros breiðist yfir andlit og
augu
ljóma í gleði og hláturinn streymir frá
hlýju hjarta, læknandi, svalandi, þar
standa hlið himinsins opin upp á gátt.
(Karl Sigurbjörnsson)
Innilegar samúðarkveðjur til
þín, elsku besta Halla frænka,
Lóló, Birna, Trausti og fjölskyld-
ur. Guð blessi og varðveiti minn-
ingu Mumma.
Metta.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
ELMA KRISTÍN STEINGRÍMSDÓTTIR,
Hafralæk í Aðaldal,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 25. september.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju í Aðaldal
laugardaginn 4. október kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Fyrir hönd ástvina,
Ásgrímur Þórhallsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN BERGSDÓTTIR,
Kjarnagötu 12,
Akureyri,
lést að heimili sínu þriðjudaginn
23. september.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
6. október kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Heimahlynningu á Akureyri
og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis.
Páll Sigurðarson,
Bergur Pálsson, Linda Hrönn Helgadóttir,
Jónína Pálsdóttir, Sigurður Pétur Hjaltason,
Bjarki Páll, Baldur Leó, Marta Þyrí og Elvar Leví.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma, systir og frænka,
GUÐRÍÐUR TRYGGVADÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
þann 30. september.
Einar Pálmi Árnason, Yevgeniya Árnason,
Árni Einarsson, Erla Rós Ásmundsdóttir,
Ásgeir Einarsson, Harpa Tanja Unnsteinsdóttir,
Harpa Björk Einarsdóttir,
Viktoriya Solovyova,
Kristjana Tryggvadóttir,
Valgerður Hjördís Bjarnadóttir
og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GYÐA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Goðheimum 1,
Reykjavík,
sem lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunar-
heimilinu Eir þriðjudaginn 23. september,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 8. október
kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Þórsteins
Bjarnasonar, sem styrkir sjónskerta til framhaldsnáms, reiknings-
nr. 0111-26-5712, kt. 571292-3199, skýring: Þórsteinssjóður.
Valgerður Franklínsdóttir, Hrafnkell Eiríksson,
Svanfríður Franklínsdóttir, Guðni Axelsson
og fjölskyldur.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, móðursystir,
amma og langamma,
DAGBJÖRT EINARSDÓTTIR,
er lést mánudaginn 29. september, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 6. október og hefst athöfnin
kl. 15.00.
Guðrún Kristjánsdóttir, Hreinn Pálsson,
Kristjana M. Kristjánsdóttir, Hans Agnarsson,
Ingunn Kristjánsdóttir, Gunnar Arthursson,
Una Dagbjört Kristjánsdóttir, Oddur Einarsson,
Una Guðnadóttir,
Sigurður Guðnason, Snjólaug Einarsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BIRGIR HANNESSON,
Hamraborg 38,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
mánudaginn 6. október kl. 11.00.
Guðrún Björnsdóttir,
Magnús Birgisson,
Hannes Birgisson,
Kristín Birgisdóttir,
Björgvin Birgisson, Jóhanna Stefánsdóttir,
Brynjar Þór Birgisson,
Birna, Birgir Snær og Lilja Dögg.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar