Morgunblaðið - 03.10.2014, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Róbert Már Kristinsson er Akureyringur og hefur búið þaralla tíð, nánar tiltekið á Brekkunni. Hann rekur tvær sjopp-ur í bænum ásamt Markúsi Gústafssyni. Leirunesti og Ak-
inn heita þær, þetta eru lúgusjoppur og þar fæst ýmis skyndibiti.
Róbert hefur verið í þessum bransa í sextán ár en byrjaði að reka
Leirunesti fyrir níu árum en styttra er síðan hann fór að reka Ak-
inn. „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur og ferðamenn hafa
verið duglegir að versla en stærsti hlutinn er samt Íslendingar.“
Róbert fylgist mikið með enska boltanum og heldur hann með
Manchester United. „Þetta hefur verið eyðimerkurganga, finnst
manni, en við United-menn erum náttúrlega svo góðu vanir.“ Róbert
fer líka mikið um á vélsleða og hefur gaman af ferðalögum. „Við
fjölskyldan ferðuðumst innanlands í sumar, vorum fyrir norðan og
austan. Maður elti bara veðrið og var því lítið fyrir sunnan. Fyrst við
erum tveir með fyrirtækið þá getur maður tekið sér frí með góðri
samvisku. Svo fer maður kannski eitthvert út í sólina í vetur.“
Í tilefni afmælisins á Róbert von á að fá stórfjölskylduna í heim-
sókn á morgun, foreldra, systkini og maka þeirra. Kona Róberts er
Karen Dögg Gunnarsdóttir, hársnyrtir hjá Passion. Börn þeirra eru
Hilmir Már 14 ára, Almar Örn 8 ára og Aníta Ösp sem verður 5 ára í
nóvember.
Róbert Már Kristinsson er fertugur í dag
Á Tenerife Róbert, Karen Dögg kona hans og börnin, árið 2013.
Elti veðrið í sumar
og fór því lítið suður
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Bandaríkin Erika Ísafold Håkansson
fæddist 21. október 2013. Hún vó
3.200 g og var 51 cm löng. Foreldrar
hennar eru Óli Gunnarr Håkansson og
Crystal Elaine Håkansson.
Nýir borgarar
Patreksfjörður Dagbjört Fjóla Arnars
Pétursdóttir fæddist 10. júlí 2014 kl.
1.23. Hún vó 2.910 g og var 48 cm löng.
Foreldrar hennar eru Kittý Arnars
Árnadóttir og Pétur Ingi Haraldsson.
A
nna Lára fæddist á Mel-
stað í Miðfirði 3.10.
1954. „Ég fæddist í
stofunni heima á Mel-
stað og átti þar heima
fram undir tvítugt.
Melstaður var þá í þjóðleið og auk
þess sögufrægt prestssetur. Þar var
feikilega gestkvæmt, einkum yfir
sumartímann. Vinir og vandamenn
komu yfirleitt við í kaffi á suður- eða
norðurleið, og oft komu margir tugir
manna í messukaffi hjá mömmu þeg-
ar messað var á staðnum og eins við
aðrar kirkjuathafnir, en kirkjusókn
var yfirleitt góð hjá pabba. Mamma
var því með sérstaka bökunardaga
því alltaf mátti eiga von á því að
þurfa að setja upp hlaðið hnallþóru-
kaffiborð með litlum fyrirvara.
Pabbi var með fjölda hrossa og
fjárbúskap og á sumrin voru alltaf
nokkrir krakkar hjá okkur, yfirleitt
frændur og frænkur. Það var því
alltaf líf og fjör hjá krökknum.“
Algjörir jafnaldrar
Anna Lára fór í barnaskólann á
Laugarbakka sem var heimavistar-
skóli og er nokkra kílómetra frá Mel-
stað: „Þá var maður hálfan mánuð í
skólanum í senn og annan hálfan
mánuð heima. Svona var barnaskóla-
námið í þrjú ár.
Á Laugabakka kynntist ég Heið-
rúnu Þóru Gunnarsdóttur frá
Urriðaá sem hefur verið góð vinkona
mín síðan. En við erum fæddar sama
dag og sama árið.“
Anna Lára G. Kolbeins, sjúkraliði og brjóstráðgjafi – 60 ára
Á Hallormsstað Gísli með Írisi Önnu í kerru, Arnar Már og Ýr, kona hans, Björgvin Þór, Þorbjörg og Halldór.
Óbyggðirnar kalla
Úthvíld Anna Lára og Halldór á heimleið frá Portúgal.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is