Morgunblaðið - 03.10.2014, Page 35
Anna Lára var í Reykjaskóla í
Hrútafirði í tvö ár og fór síðan í
Kvennaskólann í Reykjavík. Á sumr-
in sinnti hún ýmsum störfum, af-
greiddi í Verslun Sig. Pálmasonar á
Hvammstanga og vann í pósthúsinu
þar og á sjúkrahúsinu um skeið.
Anna Lára útskrifaðist sem
sjúkraliði 1978 og árið 2003 tók hún
alþjóðlegt próf í brjóstagjafaráðgjöf.
Anna Lára starfaði hjá borgarfó-
getanum í Reykjavík á árunum 1979-
81. Þau hjónin fluttu í Stykkishólm
og voru þar búsett í tvö ár þar sem
Anna Lára starfaði við sjúkrahúsið
og var síðan í barneignafríi. Hún hóf
störf á 22-A, meðgöngu- og sængur-
legudeild Landspítalans, árið 1986
og hefur starfað þar síðan.
Anna Lára og eiginmaður hennar
starfa bæði í Oddfellowreglunni. En
þau eru einnig afar ferðaglöð: „ Mér
og fjölskyldu minni þykir afar
skemmtilegt að ferðast, bæði erlend-
is og sérstaklega um hálendi Íslands.
Ég var svolítið bílhrædd til að byrja
með. En nú nýt ég þess að halda á vit
óbyggðanna á góðum jeppum með
tjöld, tjaldvagn og fjölskyldunni. Nú
tek ég heilshugar undir með Magn-
úsi Eiríkssyni: „Óbyggðirnar kalla,
og ég verð að gegna þeim.““
Fjölskylda
Anna Lára giftist 4.9. 1976 Hall-
dóri Bergmann, f. 24.1. 1956, pípu-
lagningameistara. Foreldrar hans
voru hjónin Jón G. Bergmann, f.
31.10. 1920, d. 23.11. 2010, aðal-
féhirðir í Iðnaðarbankanum, og
Ágústa Jónasdóttir Bergmann, f.
21.3. 1922, d. 25.8. 2010, húsfreyja.
Börn Önnu Láru og Halldórs eru
Arnar Már, f. 16.12. 1977, verslunar-
maður, nú hjá Ellingsen, kvæntur
Ýr Hnikarsdóttur og eru börn þeirra
Hnikarr Örn, f. 2005, Björgvin Þór,
f. 2010, og Íris Anna f. 2013; Þor-
björg, f. 5.3. 1982, nemi við HÍ; Gísli,
f. 14.3. 1984, starfar hjá Odda.
Systkini Önnu Láru eru Bjarnþór,
f. 17.6. 1952, stærðfræðikennari við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi; Ragnheiður, f. 18.8. 1957,
bóndi í Brautarholti í Skagafirði en
maður hennar er Haraldur Stefáns-
son og eiga þau 6 börn; Halldór f.
28.12. 1965, ljósmyndari og á hann
tvö börn, og Eyþór Ingi, f. 3.10. 1971,
tónlistakennari og skólastjóri Tón-
listarskóla Reykjanesbæjar, en kona
hans er Dagný Marinósdóttir tón-
listárkennari og eiga þau þrjár
dætur.
Foreldrar Önnu Láru eru sr. Gísli
H. Kolbeins, f. 30.5. 1926, fyrrv.
sóknarprestur í Sauðlauksdal, á
Melstað, V-Hún. og í Stykkishólmi,
og k.h., Sigríður Ingibjörg B. Kol-
beins, f. 13.7. 1927, prestsfrú, organ-
isti og tónlistarkennari .
Úr frændgarði Önnu Láru G. Kolbeins
Anna Lára G. Kolbeins
Ingibjörg Gísladóttir
húsfr. á Fornustekkjum
Sigjón Pétursson
b. á Fornustekkjum í Hornaf.
Ragnheiður Sigjónsdóttir
húsfr. í Brekkubæ
Bjarni Bjarnason
organleikari og kórstjóri
í Brekkubæ í Nesjum
Sigríður Ingibjörg B. Kolbeins
organisti, prestsfrú og tón-
listarkennari
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Brekkubæ
Bjarni Jónasson
b. í Brekkubæ
Sigjón Bjarnason
b., tónlistarkennari og kórstjóri í
Brekkubæ í Nesjum
Páll Kolbeins
yfirféhirðir Eimskipafélags Íslands
Eyjólfur Kolbeins
cand.mag. og kennari við
MA og í Rvík
Aðalheiður H. Kolbeins
ljósmóðir á Patreksfirði
Erna H. Kolbeins
handmenntakennari
Þóey Mjallhvít Kolbeins
yfirkennari
Ólína Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja
Ólafur Aðalsteinn
Bergsveinsson
bátasmiður
Lára Ágústa Ó. Kolbeins
prestsfrú á Stað, Mælifelli
og í Eyjum
Halldór E. Kolbeins
pr. í Flatey, á Stað í Súgandaf., á Mælifelli
í Skagaf. og í Vestmannaeyjum
Gísli H. Kolbeins
sóknarpr. í Sauðlauksdal,
Melstað og í Stykk-
ishólmi
Þórey Bjarnadóttir
prestsfrú á Melstað
Eyjólfur Kolbeins
pr. á Melstað
Morgunblaðið/Kristinn
Í vinnunni Anna Lára með sýni-
kennslu fyrir nýbakaða foreldra.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Páll fæddist á Vífilsstöðum íGarðahreppi 3.10. 1924 og ólstupp á Eskifirði, í Hafnarfirði
og í Reykjavík. Foreldrar hans voru
Gísli Pálsson, læknir í Reykjavík, og
k.h., Svana Jónsdóttir húsfreyja.
Bróðir Gísla var Stefán stór-
kaupmaður, faðir Páls heitins, aug-
lýsingastjóra DV. Gísli var sonur
Páls Haralds Gíslasonar, kaupmanns
í Reykjavík, bróður Sólveigar, móður
Einars Olgeirssonar alþm. Móðir
Gísla læknis var Stefanía, systir
Carls, afa Gunnlaugs Snædals yfir-
læknis. Svana var dóttir Jóns Árna-
sonar, pr. í Otradal, og Jóhönnu Páls-
dóttur húsfreyju.
Eftirlifandi eiginkona Páls er
Soffía Stefánsdóttir íþróttakennari
og eru börn þeirra Rannveig læknir;
Svana hjúkrunarfræðingur; Guð-
björg stærðfræðikennari; Gísli húsa-
smiður, og Soffía, forstöðumaður.
Páll lauk stúdentsprófi frá MR
1943, kandidatsprófi í læknisfræði
frá HÍ 1950, stundaði framhaldsnám
í Danmörku, á Landspítalanum, hjá
British Council í London og í Hous-
ton í Texas. Hann var frumkvöðull á
sviði æðaskurðlækninga, var yfir-
læknir við Sjúkrahús Akraness 1955-
70 og við handlækningadeild Land-
spítalands 1970-94, kennslustjóri
læknadeildar HÍ, stundakennari þar
og dósent.
Páll var virkur í skátastarfi frá
1936, skátahöfðingi 1971-81, bæjar-
fulltrúi fyrir sjálfstæðismenn á Akra-
nesi 1962-70, borgarfulltrúi 1974-94,
forseti borgarstjórnar 1984-90, for-
maður heilbrigðisráðs Reykjavíkur
og stjórnar Sjúkrastofnana Reykja-
víkur, sat í stjórn Læknafélags
Reykjavíkur og formaður Lækna-
félags Mið-Vesturlands, sat í stjórn
Skjóls og var formaður stjórnar Eir-
ar, sat í stjórn Hjartaverndar á Akra-
nesi, Krabbameinsfélags Reykjavík-
ur og var félagi í erlendum
læknasamtökum.
Páll var ljúfur maður og stilltur í
framkomu, vinsæll læknir og naut al-
mennrar virðingar fyrir sín marg-
víslegu félagsstörf. Ævisaga hans,
Læknir í blíðu og stríðu, kom út 2010.
Páll lést 1.1. 2011.
Merkir Íslendingar
Páll
Gíslason
90 ára
Guðjón Kr. Pálsson
Gunnar Páll Guðjónsson
85 ára
Gunnar Finnsson
Ingibjörg Ólafsdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
Þórey Eiríksdóttir
80 ára
Dagmar Ásgeirsdóttir
Elísabet Auður Eyjólfsdóttir
Emil Geir Guðmundsson
Gunnar Páll Herbertsson
Hulda Árnadóttir
Ingunn Valtýsdóttir
Kristín Sigurl. Eyjólfsdóttir
Sigríður Pétursdóttir
Sigurrós Benediktsdóttir
75 ára
Einar Hálfdánsson
Hanna S. Kjartansdóttir
Katla Smith Henje
Oddrún Jónasdóttir Uri
Oddur Möller
70 ára
Auður Samúelsdóttir
Bjarni Hólm Hauksson
Oddbjörg Sigfúsdóttir
Soffía Sigurjónsdóttir
60 ára
Anna María Karlsdóttir
Guðjón Steinsson
Guðmundur St. Maríasson
Heiðrún Þ. Gunnarsdóttir
Helga Margrét Geirsdóttir
Herdís Klausen
Jóna Helga Hauksdóttir
Jón Gunnarsson
Már Óskarsson
Stefán Ragnar Egilsson
Þórólfur Jónsson
50 ára
Adam Piotr Kullas
Arturas Arojevas
Birgitta Guðjónsdóttir
Edda G. S. Guðfinnsdóttir
Friðný Björg Sigurðardóttir
Guðlaugur Einarsson
Hörður Hilmarsson
Jón Ólafsson
María Marta Sigurðardóttir
Marín Björg Böðvarsdóttir
Sóley Guðmundsdóttir
Þorbjörg B. Sæmundsdóttir
40 ára
Anna Björg
Kristjánsdóttir
Gauti Möller Vilhelmsson
Guðbjörg Sigurðardóttir
Gunnhildur Leifsdóttir
Helgi S. Skagfj.
Sigurðsson
Hörður Sigþórsson
Jóhann Pétur Leifsson
Jón G. Geirdal Ægisson
Kayoko Asakawa
Lúðvík Jónasson
Margrét H. Halldórsdóttir
Ólafur Ægir Björgvinsson
Reynir Logi Ólafsson
Róbert Már Kristinsson
Úlfur Þór Úlfarsson
Viggó Karl Jóhannsson
30 ára
Arna Rún Ómarsdóttir
Autumn Lynn Pugsley
Brynja Pétursdóttir
Esther G. Gestsdóttir
Hulda Lárusdóttir
Linda Ösp Heimisdóttir
Magnea H. Jóhannsdóttir
Ólafur Páll Vignisson
Sölvi Mar Guðjónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sunna ólst í Lundi
í Svíþjóð og í Reykjavík,
býr þar, lauk BA-prófi í
uppeldis- og menntunar-
fræði og er í fæðingar-
orlofi.
Maki: Stefán Svan Stef-
ánsson, f. 1981, sölumað-
ur hjá Nýherja.
Börn: Mikael Darri, f.
2006; Marikó Dís, f. 2011,
og Manúel Kató, 2014.
Foreldrar: Dúna Magnús-
dóttir, f. 1954, og Kristján
Sigurjónsson, f. 1958.
Sunna Dís
Kristjánsdóttir
30 ára Jakob ólst upp í
Reykjavík, býr þar og
stundar nám og vinnu í
múrverki.
Maki: Svana María Vals-
dóttir, f. 1987 sem lengst
af hefur starfað við fisk-
vinnslu og í álveri.
Foreldrar: Halla Magnús-
dóttir, f. 1959, kennari og
Marías Hafsteinn Guð-
mundsson, f. 1958, mál-
arameistari og sér um
viðhald hjá Byggingafélagi
námsmanna.
Jakob
Maríasson
30 ára Hulda ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BA-prófi í bókmennta-
fræði og MA-prófi í hag-
nýtri ritstjórn og útgáfu-
störfum, stundar nám í
tölvunarfræði við HR og
er hugbúnaðarprófari hjá
Five Degrees.
Foreldrar: Jóna Sveins-
dóttir, f. 1959, kjólameist-
ari, og Lárus Óli Þorvalds-
son, f. 1954, starfsmaður
hjá Hellusteypu. Þau eru
búsett í Reykjavík.
Hulda
Lárusdóttir
FRAKKAR – KÁPUR – ÚLPUR
Við hreinsum
yfirhöfnina
fyrir veturinn
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380