Morgunblaðið - 03.10.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2014
Prins Póló, sem í
vor gaf út breið-
skífuna Sorrí,
heldur tvenna
tónleika í Bæjar-
bíói í Hafnarfirði,
klukkan 21 í
kvöld og klukkan
14 á morgun. Dr.
Gunni verður
með í för báða
dagana. Miðasala
og allar nánari upplýsingar eru á
midi.is.
Prinsinn og dokt-
orinn í Bæjarbíói
Gleði Prins Póló
verður í Hafnarfirði.
Hafnfirska þungarokksveitin
Alchemia efnir til útgáfutónleika í
kvöld á Gauknum en plata hennar,
Insanity, kom út 24. júlí síðastlið-
inn. Platan er önnur breiðskífa
sveitarinnar og verður hún flutt í
heild sinni fyrir gesti. Að sögn
sveitar verður það í eina skiptið
sem slíkt tækifæri býðst. Húsið
verður opnað klukkan 20 og sér
hljómsveitin Black Desert Sun um
upphitun. Hljómleikar Alchemia
hefjast síðan klukkan 22.30. Sveit-
ina skipa þeir Birgir Þór Hall-
dórsson, Egill Fabien Posocco,
Gabríel Örn Erlingsson og Gott-
skálk Daði Reynisson.
Þungarokki fagnað
á Gauknum
Fjör Efnt verður til tónleika á Gauknum.
Það gerist örsjaldan að auka-tónleikar við klassískafimmtudagstónleika SÍeru ákveðnir fyrir fram á
vetrardagskrá. Voru tónleikarnir s.l.
miðvikudag eina dæmið á þessari
vertíð; væntanlega til marks um þá
stóraðsókn er ráðamenn væntu af
samefldu segulafli Kissins & As-
hkenazys í tveim vinsælum verkum
eftir Brahms og Rakhmaninoff.
Benti þéttskipaður Eldborgarsal-
urinn á miðvikudag ekki til annars
en að skipuleggjendur hefðu reynzt
sannspáir.
Það endurvakti gamla löngun eft-
ir að vita hvað eiginlega ræður vali
almennings á verkum og flytj-
endum. Tónlistarhollusta er breyt-
um háð sem ástir meyja í Háva-
málum, og meðan enn stendur á
hlustendakönnun SÍ, munu því að-
eins reyndustu hljómplötusalar
luma á slíkri vitneskju ef að líkum
lætur.
Dagskráin var að því leyti óvenju-
leg að einleikskonsertinn var hafður
eftir hlé. Hefði í fljótu bragði e.t.v.
mátt tengja nýbreytnina við for-
dæmi ofan úr Efstaleiti, þar sem ku
verið að varpa ýmsum hefðum fyrir
róða í nafni uppbrots og endurnýj-
unar ríkisljósvakans. Hitt virtist þó
sennilegri skýring sem fram kom í
RÚV sama dag, nefnilega að einleik-
arinn gaf ekki kost á að útvarpa
konsertupptöku af sér.
Já, vinsældir geta vissulega verið
hverfular. Jafnvel í sígildri tónlist –
eins og gamalreyndir plötusafnarar
kannast við þegar eftirlæti yngri ára
dofna sum með tímanum og önnur
taka við. Það lýsti sér einnig í fyrsta
atriði miðvikudagskvöldsins þegar
3. sinfónía Brahms var á boðstólum.
Af hverju veit ég ekki svo gjörla,
enda lét meirihluti áheyrenda sér
greinilega vel líka. Í mínum eyrum
ætlaði hin í sjálfu sér prýðilega út-
færsla Ashkenazys hins vegar aldrei
að komast á flug, þó hitnaði að vísu
ögn undir kolunum í lokaþætti.
Svipað var uppi á teningi eftir hlé
þegar Evgeníj Kissin galdraði töfra
„Rakh 2“ af gómum fram. Rúss-
neski slaghörpusnillingurinn lék nú í
fyrsta sinn með SÍ (hafði að vísu
leikið einleikstónleika í Háskólabíói
á Listahátíð 1996), og var mér sem
mörgum því nokkur upplifun að
heyra hann af sviði. Áferð verksins
bauð að vísu ekki alltaf upp á jafn-
gott næði til einleikstúlkunar – fyrir
nú utan hvað hljómburðarstilling
Eldborgar virtist, líkt og í Brahms,
heldur grautarleg á háværustu köfl-
um. Né heldur var samhæfing ein-
leikara og hljómsveitar alls staðar
eins og bezt væri á kosið. En víð-
feðmir snillingstaktar virtúósins
létu samt hvergi að sér hæða þegar
tækifærin loks gáfust.
Undirtektir voru funheitar með
tilheyrandi ópum, blístrum og
klappi á fæti að leikslokum. Kissin
þakkaði fyrir sig með tveim auka-
lögum, fyrst með cís-moll prelúdí-
unni alkunnu eftir Rakhmaninoff.
Morgunblaðið/Kristinn
Einleikari og stjórnandi Evgeny Kissin og Vladimir Ashkenazy í Hörpu. „… víðfeðmir snillingstaktar virtúósins
létu … hvergi að sér hæða þegar tækifærin loks gáfust,“ skrifar rýnir en finnur að samhæfingu á tónleikunum.
Víðfeðm píanósnilld
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbnn
Brahms: Sinfónía nr. 3 í F Op. 90. Rak-
hmaninoff: Píanókonsert nr. 2 í c Op. 18.
Evgeníj Kissin píanó og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Vla-
dimir Ashkenazy. Miðvikudaginn 1.10.
kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Si
g
u
rb
jö
rn
Jó
n
ss
o
n
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 4/10 kl. 13:00 10.k. Sun 19/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 15/11 kl. 13:00 22.k.
Sun 5/10 kl. 13:00 11.k. Lau 25/10 kl. 13:00 17.k. Sun 16/11 kl. 13:00 Aukas.
Sun 5/10 kl. 16:30 12.k. Lau 25/10 kl. 16:30 18.k. Lau 22/11 kl. 13:00 23.k.
Lau 11/10 kl. 13:00 13.k. Sun 26/10 kl. 13:00 19.k. Sun 23/11 kl. 13:00 24.k.
Sun 12/10 kl. 13:00 14.k. Lau 1/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 29/11 kl. 13:00 25.k.
Sun 12/10 kl. 16:30 Aukas. Sun 2/11 kl. 13:00 20.k. Sun 30/11 kl. 13:00 26.k.
Lau 18/10 kl. 13:00 15.k. Lau 8/11 kl. 13:00 Aukas. Lau 6/12 kl. 13:00
Lau 18/10 kl. 16:30 Aukas. Lau 8/11 kl. 16:00 Aukas. Sun 7/12 kl. 13:00
Sun 19/10 kl. 13:00 16.k. Sun 9/11 kl. 13:00 21.k.
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Bláskjár (Litla sviðið)
Mán 6/10 kl. 20:00 aukas. Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Sun 9/11 kl. 20:30 8.k.
Þri 7/10 kl. 20:00 aukas. Sun 19/10 kl. 20:00 7.k. Mið 12/11 kl. 20:30 9.k.
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson. Aðeins þessar sýningar!
Gullna hliðið (Stóra sviðið)
Fös 3/10 kl. 20:00 5.k. Fös 10/10 kl. 20:00 7.k. Fös 17/10 kl. 20:00 9.k.
Fim 9/10 kl. 20:00 6.k. Fim 16/10 kl. 20:00 8.k. Fös 24/10 kl. 20:00 10.k.
Vinsæl verðlaunasýning frá Leikfélagi Akureyrar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 3/10 kl. 20:00 6.k. Lau 25/10 kl. 20:00 13.k. Fim 13/11 kl. 20:00 21.k.
Sun 5/10 kl. 20:00 7.k. Sun 26/10 kl. 20:00 14.k. Fös 14/11 kl. 20:00 22.k.
Mið 8/10 kl. 20:00 8.k. Fim 30/10 kl. 20:00 15.k. Lau 15/11 kl. 20:00 23.k.
Fim 9/10 kl. 20:00 9.k. Fös 31/10 kl. 20:00 16.k. Fös 21/11 kl. 20:00
Fös 10/10 kl. 20:00 10.k. Lau 1/11 kl. 20:00 17.k. Lau 22/11 kl. 20:00
Mið 22/10 kl. 20:00 aukas. Fim 6/11 kl. 20:00 18.k. Lau 29/11 kl. 20:00
Fim 23/10 kl. 20:00 11.k. Fös 7/11 kl. 20:00 19.k.
Fös 24/10 kl. 20:00 12.k. Lau 8/11 kl. 20:00 20.k.
Sýningar í Hofi Akureyri 17. október kl. 19 22
Skálmöld: Baldur (Stóra sviðið)
Lau 4/10 kl. 20:00 2.k. Lau 11/10 kl. 20:00 2.k.
Epískir tónleikar með leikhúsívafi. Aðeins þessar sýningar!
Gaukar (Nýja sviðið)
Sun 5/10 kl. 20:00 4.k. Lau 18/10 kl. 20:00 8.k. Lau 1/11 kl. 20:00 12.k.
Fös 10/10 kl. 20:00 5.k. Fim 23/10 kl. 20:00 9.k. Fim 6/11 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 20:00 6.k. Sun 26/10 kl. 20:00 10.k. Sun 9/11 kl. 20:00 13.k.
Fös 17/10 kl. 20:00 7.k. Fös 31/10 kl. 20:00 11.k. Fös 14/11 kl. 20:00 14.k.
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Róðarí (Aðalsalur)
Lau 4/10 kl. 20:00 Fös 17/10 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 20:00 Lau 25/10 kl. 20:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Fim 9/10 kl. 20:00 Sun 19/10 kl. 20:00
Kameljón (Aðalsalur)
Sun 5/10 kl. 20:00
Trúðleikur (Aðalsalur)
Sun 12/10 kl. 14:00
All Change hátíðin (Aðalsalur, kaffihús, önnur rými)
Lau 4/10 kl. 14:00 Ýmsir
viðburðir allan daginn
Sun 5/10 kl. 11:00 Ýmsir
viðburðir allan daginn
Lífið (Aðalsalur)
Lau 18/10 kl. 14:00 Sun 2/11 kl. 13:00 Sun 9/11 kl. 13:00
Sun 26/10 kl. 13:00 Sun 2/11 kl. 15:00 Sun 9/11 kl. 15:00
Sun 26/10 kl. 15:00 Lau 8/11 kl. 14:00
The FORERUNNER (Aðalsalur)
Þri 7/10 kl. 20:00
Strengir (8 ólík rými Tjarnarbíós)
Fim 23/10 kl. 19:00 Fös 31/10 kl. 19:00
Fös 24/10 kl. 19:00 Lau 1/11 kl. 19:00
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is