Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Árni Sæberg Enn er mikið hraunrennsli í eldgosinu í Holuhrauni þótt gosið sé mun minna en var í upphafi. Rauðglóandi hrauná rennur til norðurs úr gígnum Baugi, kvíslast og hraunið breikkar. Gíf- urlegt gasútstreymi fylgir kvikunni eins og sést á mynd sem tekin var yfir eldstöðvunum í útsýnisflugi með þyrlu Norður- flugs í gær. »4 Rauðglóandi hraunár renna í Holuhrauni F Ö S T U D A G U R 1 7. O K T Ó B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  243. tölublað  102. árgangur  SAMHENTAR MÆÐGUR SAUMA KNÚS LESTUR, PRJÓN OG MATUR DÝPRI, BREIÐARI OG STÆRRI EN SÚ FYRRI VETUR BLAÐAUKI BORGRÍKI 2 38BRJÓSTAGJAFAPÚÐI 16 Morgunblaðið/Ómar Loðnuvinnsla Hrognin eru verðmæt.  Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur hjá Landssambandi ís- lenskra útvegsmanna, segir að beint tekjutap vegna minni loðnu- kvóta sé um 1% þjóðartekna, miðað við útflutningsverðmætið 2013. Verði loðnukvótinn um 130 þús- und tonn í vetur í stað um 308 þús- und tonna minnkar útflutnings- verðmætið um 15 til 20 milljarða og veiðigjöld vegna loðnuveiða lækka um 780 milljónir króna. Sveinn bendir á að með minni kvóta leggi útgerðirnar áherslu á þá vinnslu sem gefi mest hverju sinni. Þannig hafi útflutnings- verðmæti loðnunnar verið um 13 milljarðar í ár en um 33 milljarðar í fyrra. „Loðnan hefur mikla efna- hagslega þýðingu,“ segir hann. » 2 Tekjutap vegna loðnukvóta 1% þjóðartekna Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reykjavíkurborg hefur boðið Björg- un 20 ára afnotarétt af lóð við Kleppsbakka. Lóðin er við Klepps- spítala og steinsnar frá fjölmennri íbúabyggð við Kleppsveg. Gunnlaugur Kristjánsson, for- stjóri Björgunar, segir borgina hafa boðið 10 ára afnotarétt. Félagið hafi reiknað út að sá flutningur myndi ekki borga sig. Borgin hafi þá boðið 20 ára afnot af lóðinni og segir hann félagið hafa tekið jákvætt í það. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur verið horft á Kleppsbakkann vegna hugsanlegrar stækkunar á at- hafnasvæði Samskipa og Eimskips. Björgun flutti á sínum tíma úr Vatnagörðum enda þótti starfsemin of nærri byggð. Nú þykir starfsemin of nærri Bryggjuhverfi og hafa íbúar þar mótmælt mengun frá félaginu. Gunnlaugur segir óvissu um hver verði framtíðarstaður fyrirtækja á Ártúnshöfða. Alexander G. Alexand- ersson, framkvæmdastjóri Steypu- stöðvarinnar, segir áform um upp- byggingu á höfðanum hljóta að þurfa „að vera í sátt við atvinnulífið“. MÓvissa um framtíð »14 Yrði rétt hjá íbúabyggðinni  Reykjavíkurborg býður Björgun lóð til 20 ára í Sundahöfn við Kleppsspítala  Rökin fyrir flutningi frá núverandi stað eru m.a. nálægð við Bryggjuhverfið Morgunblaðið/Ómar Kleppsbakki Þessi lóð var í boði. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að rannsókn á kæru Samkeppniseftirlitsins á hendur ellefumenningunum hjá Eimskip og Samskipum vegna meintra brota á samkeppnislögum væri ekki hafin. Ólafur Þór segir að þegar kærur berist embættinu fari þær í grein- ingu sem snúi að því að ákveða hvort rétt sé að hefja rannsókn eða ekki. Sé rannsókn ákveðin fari málið til rannsóknarhóps. Lekinn verði rannsakaður Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að Eim- skip og Samskipum hefði verið til- kynnt tilvist kærunnar í sumar. „Samkeppniseftirlitinu er ekki kunnugt um hvaðan upplýsingarnar bárust Kastljósi. Eðlilega verðum við núna að ganga úr skugga um það að upplýsingarnar hafi ekki borist frá okkur,“ sagði Páll Gunnar. Eimskip hefur falið lögmönnum sínum að undirbúa kæru til lög- reglu þar sem óskað verður eftir rannsókn á meintum leka á gögnum til Ríkisútvarpsins. »6 Ekki byrjað að rannsaka  Eimskip og Samskipum tilkynnt um tilvist kæru í sumar  Jónas Egilsson, framkvæmda- stjóri og fv. for- maður Frjáls- íþróttasambands Íslands (FRÍ), segir Reykjavík- urborg ekki enn hafa gefið skýr svör um aðstöðu- mál frjálsíþrótta- manna í Laugar- dal. Borgin vísi málinu á ríkis- valdið. „Þetta hefur verið að velkjast á milli manna í kerfinu og á meðan bíðum við með lélegan frjálsíþróttavöll,“ segir Jónas. »12 Bíða eftir svörum frá borginni Frjálsar FRÍ bíður eftir ræsingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.