Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 14
Viðarhöfða 2 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – takk@takk.is www.takk.is 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014 Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að unnið hafi verið að því í skipu- lagsráði Reykjavíkur á árunum 2009 og 2010 að gera Álfsnesið að framtíðarstað fyrir fyrirtæki í þungum iðnaði. „Ég var þá formaður skipulags- ráðs og þar var einhugur um að beina iðnfyrirtækjum í þungum iðn- aði upp á Álfsnes. Umhverfismats- ferlið var sett af stað og svæðið sem stóð til að nýta fyrir iðnfyrirtæki var afmarkað. Meðal ástæðna þess að horft var til Álfsness var að þar er aðdjúpt og iðnaður fyrir. Fulltrúar iðnfyrirtækja sem rætt var við tóku undir að Álfsnesið gæti orðið ákjósanlegt framtíðarsvæði.“ Stórar lóðir hefðu losnað „Við flutning iðnfyrirtækja upp á Álfsnes hefðu losnað stór svæði uppi á Ártúnshöfða, sem margir horfa til að geti verið þróunarsvæði næstu áratugina í Reykjavíkur- borg. Þar með hefði líka fundist lausn fyrir Björgun, sem hefði fengið viðlegukant, og fyrir fyrir- tæki eins og Hringrás [sem er við Klettagarða] og önnur fyrirtæki með starfsemi sem fellur illa eða ekki að þeirri byggð sem næst þeim stendur. Horft var til þess að Malbikunarstöðin, sem er 100% í eigu Reykjavíkurborgar, myndi fylgja með upp á Álfsnesið. Því mið- ur var þetta meðal þess sem var tekið út af borðinu á síðasta kjör- tímabili og enginn áhugi virtist vera fyrir því að skapa aðstöðu fyr- ir iðnfyrirtæki. Það eru engin at- vinnusvæði fyrir fyrirtæki af þess- ari gerð í Reykjavík í dag. Esjumelar eru eina svæðið sem hægt er að benda á. Þar er ekki þungur iðnaður. Þar er til dæmis ekki viðlegukantur og aðrir mögu- leikar sem Álfsnesið býður upp á fyrir slík fyrirtæki. Það er mjög undarlegt útspil af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að Björgun geti farið inn í Sunda- höfn. Það sýnir hverslags ráðaleysi er í gangi og hversu lausnirnar eru óraunhæfar. Hverjum dettur í hug að það sé til heilla fyrir svæðið að setja Björgun, sem íbúar í Bryggju- hverfi hafa réttilega bent á að staf- ar mikil mengun af, undir kletta- vegginn við Kleppsspítala? … Ég sé ekki hvernig menn geta horft til þess að setja Björgun, fyrirtæki í þungum iðnaði, rétt undir vegginn á sjúkrastofnun.“ baldura@mbl.is Einhugur var um flutning á Álfsnes  Borgarfulltrúi gagnrýnir ráðaleysi Teikning/Umhverfis- og skipulagsráð RVK Drög að Sundabraut Gráa svæðið er sá hluti Álfsness sem Júlíus nefnir. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Forsvarsmenn Björgunar hafa ekki tekið ákvörðun um flutning félagsins frá athafnasvæði þess við Ártúns- höfða. Félagið, sem er leiðandi í framleiðslu steinefna til mannvirkja- gerðar á Íslandi, þarf að finna fram- tíðarstað fyrir starfsemi sína eftir að Faxaflóahafnir tilkynntu fyrir nokkr- um vikum að þær hygðust segja fé- laginu formlega upp afnotum af lóð á Sævarhöfða 33. Miðað er við að lóðin verði rýmd eigi síðar en í árslok 2016. Gunnlaugur Kristjánsson, forstjóri Björgunar, segir forsöguna langa. Forsvarsmenn félagsins hafi þannig beðið í tvo áratugi eftir því að Reykjavíkurborg fyndi lóð undir fé- lagið til framtíðar. Oftar en einu sinni hafi félaginu verið boðinn nýr staður en þau tilboð síðan verið dregin til baka. Nýjasta tilboðið er að félagið verði á Kleppsbakka til bráðabirgða. Fyrir neðan Kleppsspítala „Við erum að skoða tilboð borgar- innar um að fara inn í Sundahöfn. Okkur hefur verið boðin lóð á Klepps- bakka sem er fyrir neðan Klepp. Það er eina staðsetningin sem okkur stendur til boða. Valið stendur því um að þiggja lóðina eða leggja starfsem- ina í núverandi mynd af.“ – Líst þér vel eða illa á þann kost? „Þetta er eini kosturinn sem er í boði. Mín skoðun er sú að borgin ætti að finna þeirri starfsemi sem er á Höfðanum í dag, en á að víkja, fram- tíðarstað. Það er ekki aðeins Björgun sem á að víkja, Björgun er aðeins fyrsta félagið af mörgum. Malbik- unarstöðin, steypustöðvarnar og fleiri fyrirtæki munu fylgja þar á eft- ir. Fyrsti áfanginn í því að breyta landnotkun á Höfðanum ætti að vera að finna þeirri starfsemi sem þar er fyrir annan stað. Það hefur ekki verið gert,“ segir Gunn- laugur. „Ef öll starf- semi verður slitin í sundur, efnis- vinnsla og steypustöðvarnar, þá kall- ar það á gríðarlega efnisflutninga bæði í gegnum og umhverfis borgina. Það er því í mínum huga óafsakanlegt að reyna ekki að finna lausn þar sem haldið er í þau gæði sem felast í því að hafa þessa starfsemi alla á sama blettinum. Nú er steypuefni ekið 1-2 kílómetra frá Björgun og til steypu- stöðvanna. Ef við hættum starfsemi þarf að sækja steypuefni um langan veg, eða 50 til 80 kílómetra og jafnvel lengra. Það getur hver og einn gert sér í hugarlund hvað það þýðir í um- hverfiskostnaði, slysahættu, sliti á vegum og fyrir verðlag vörunnar.“ Spurður hvers vegna hann nefni 50-80 kílómetra segist Gunnlaugur eiga við að aka þyrfti suður á Reykja- nes, austur fyrir fjall, eða upp í Borg- arfjörð til að sækja efni. Til lengri tíma litið gæti þurft að sækja steypu- efni um enn lengri veg. „Þetta eru kostirnir. Það er ekki um auðugan garð að gresja um gott steypuefni í nágrenni Reykjavíkur. Það gæti jafnvel komið til þess að flytja þyrfti inn steypuefni ef starf- semi Björgunar legðist af,“ segir Gunnlaugur, en fram kemur á vef Björgunar að félagið fái hráefni úr námum á hafsbotni með uppdælingu efnis. Hráefnið er síðan flutt til frek- ari vinnslu á athafnasvæði félagsins á Ártúnshöfða í Reykjavík. Engar viðræður við BM Vallá Gunnlaugur er jafnframt stjórnar- formaður steypustöðvarinnar BM Vallár. Hann segir félagið hafa lóða- leigusamning á Höfðanum í 10 til 15 ár. „Það hefur ekki verið rætt við borgina hvað gerist að þeim tíma loknum,“ segir Gunnlaugur. Helgi Jóhannesson, lögmaður Björgunar, segir félagið líta svo á að leigusamningur vegna Sævarhöfða 33 renni út 2034, en hafi ekki runnið út 2009 eins og Faxaflóahafnir haldi fram. „Ef félaginu verður gert að víkja af núverandi svæði áður en leigusamningur er útrunninn, sem er árið 2034, mun félagið halda öllum rétti til haga sem það á vegna þess. En þess ber skýrt að geta að félagið er nú að vinna með Faxaflóahöfnum og borgaryfirvöldum að framtíðar- lausn á þessum málum.“ Helgi segir aðspurður að réttur til skaðabóta sé meðal þess sem haldið verður til haga, ef önnur lausn finnst ekki. Óvissa er um framtíð Björgunar  Forstjóri Björgunar segir borgina hafa boðið lóð við Klepp  Það eigi tveggja kosta völ: að þiggja lóð við Klepp eða loka Morgunblaðið/Golli Athafnasvæði Björgunar Samsett yfirlitsmynd af svæðinu. Til hægri, eða til austurs, má sjá Bryggjuhverfið. Íbúar í hverfinu hafa kvartað undan mengun frá starfsemi Björgunar. Morgunblaðið/Ómar Kleppsbakki Reykjavíkurborg hefur boðið félaginu þessa lóð til 20 ára. Gunnlaugur Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.