Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.10.2014, Blaðsíða 11
Frumkvöðull Sigursveinn D. Kristinsson, stofnandi Tónskólans, leiðbeinir börnum í tónlistarkennslu í sumarbúðum. „Það hvílir mikil ábyrgð á okkur kennurunum að fá þá til liðs við okkur og láta hlutina gerast. Án áhugasamra kennara gerist af- skaplega lítið,“ segir hann. Á þessu mikla afmælisári hefur skólinn upp- skorið ríkulega og var hápunkt- urinn án efa þegar allir nemendur skólans komu fram í Eldborgarsal Hörpu fyrr á þessu ári. Í dag er að sama skapi stór dagur í Tónskól- anum því haldið verður málþing undir yfirskriftinni „Bágt eiga þeir sem deyja með alla sína söngva ós- ungna“. Umfjöllunarefnið er tónlist- arfræðsla, uppeldi og samfélag og stendur frá klukkan 9-15 í skól- anum. „Við ákváðum að vera með einhvers konar hugmyndafræðilega umfjöllun og velta því aðeins fyrir okkur hvar við stönd- um, hvaðan við komum og hvert við viljum stefna,“ segir Sig- ursveinn. Ýmsir koma að málþinginu og sumir hverjir koma langt að, þar á meðal Robert Faulkner sem kemur alla leið frá Ástr- alíu. Nánar er fjallað um hann í ramma hér til hliðar. „Þarna mun- um við fást við tvær aðalhliðar þessa starfs, starfið í skólanum, kennsl- una og störf kennaranna annars vegar og hins vegar horfum við líka á skólakerfið á Íslandi í heild, stjórnsýsluna og þann ramma sem tónlistarskólanum er settur sem er okkur að ýmsu leyti nokkuð mót- drægur í augnablikinu,“ segir Sig- ursveinn og minnir á að til að vinna að endurbótum þurfi að upplýsa fyrst um stöðu mála. „Að málþingi loknu á að liggja fyrir eins konar málefnagreining sem við munum vinna úr. Þá ætti að liggja fyrir hvernig við viljum þróa skólana í framtíðinni því þarna mun heyrast rödd kennara og stjórnenda skól- anna,“ segir skólastjórinn Sig- ursveinn Magnússon. Málþingið er ætlað öllum sem áhuga hafa á málefninu og munu kennarar hinna ýmsu tónlistarskóla taka þátt í umræðunni. Ljóst er að tónlistarkennarar hafa lagt mikið á sig til að mennta nemendur sína í gegnum tíðina, enda tónlistin mik- ilvægur hluti lífsins og ekki hægt að sjá fyrir sér að við gætum án hennar verið. Málþingið skiptist í erindi fyrir hádegið og málstofur eftir hádegið. Undir lok dagskrár- innar kynnir starfshópur nið- urstöður málþingsins. Dagskrá mál- þingsins má sjá á vef skólans, www.tonskolinn.is. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014 Tónlistarkennarinn Robert Faulkner er einn fyrirlesara á málþinginu í Tónskóla Sigur- sveins í dag. Faulkner er fæddur í Kent á Bretlandi, nam tónlist í Guildhall School of Music and Drama og Royal Academy of Music í London. Þaðan lá leiðin í háskólann í Reading þar sem hann lærði tónlistaruppeldi, auk þess sem hann lauk síðar dokt- orsnámi við Sheffield- háskóla. Faulkner gegndi stöðu skólastjóra og tón- listarkennara í Hafralækj- arskóla í Aðaldal til fjölda ára. Nú býr hann ásamt fjölskyldu sinni í Ástralíu en flytur í dag er- indið „Bágt eiga þeir sem deyja með alla sína söngva ósungna“. Frá Reading í Aðaldal TÓNLISTARKENNARINN ROBERT FAULKNER Snjallsímaleikurinn Poker God er hreinræktað verk forritarans Jóns Helga Jónssonar. Jón Helgi hefur ver- ið búsettur í Tókýó síðastliðin tvö ár og þar hefur hann þróað leikinn sem einnig er gefinn þar út. Áður starfaði Jón Helgi sem forritari og verkefna- stjóri hjá EC Software á Íslandi og Indlandi. Leikurinn Poker God er hannaður fyrir iPhone, iPod og Android og geta notendur spilað póker án þess að hafa áhyggjur af tímanum því leik- menn geta skipst á að leika yfir lengri tíma á mörgum borðum. Segja kunnugir að leikurinn sé bæði ein- faldur og notendavænn. Þróun Poker God tók tvö ár og hefur verið í beta- prófunum undanfarna mánuði. Fjöldi fólks tók þátt í þeim prófunum og af síðunni GameMob.com að dæma kemur leikurinn vel út því umsagn- irnar eru prýðilegar. Leikurinn Poker God er ókeypis og honum má hlaða niður bæði í iTunes App Store og Google Play. Í leiknum sjálfum geta notendur keypt eitt og annað, bæði eftirsóknarverða eig- inleika og gjaldmiðil leiksins. Nánari upplýsingar um leik Jóns Helga Jónssonar er að finna á vefsíðu Poker God, www.pokergodgame.com. Nýr pókerleikur Jóns Helga Jónssonar Andrew Barker - Fotolia Poker God Leikurinn er framleiddur og hannaður fyrir iPhone, iPad og Android. Íslenskur leikur þróaður í Tókýó Hús og skúlptúr - leikur með efni er listasmiðja fyrir börn 7 ára og eldri sem haldin verður dagana 19. og 20. október í Ármundarsafni. Emma Lindahl, myndlistarmaður og list- greinakennari, hefur umsjón með smiðjunni sem er opin báða daga frá klukkan 10 til 13. Smiðjan er sérstaklega sett upp í tengslum við vetrarfrí grunnskólanna og er ætlað að bjóða upp á góða og skapandi samverustund fyrir alla fjöl- skylduna. Smiðjan tengist einnig sýningunni A posteriori: Hús, höggmynd. Áhugasamir geta skráð sig með því að senda tölvupóst á netfangið listasafn@reykjavik.is. Listsköpun í vetrarfríi Leir Hús og skúlp- túr er yfirskriftin. Þetta var einn af þessumógleymanlegu dögum ísumar þegar sólin ákvað aðdreifa geislum sínum yfir höfuðborgarsvæðið. Hún yljaði köld- um sálum sem margar hverjar höfðu næstum gefið upp vonina um að sjá hana aftur. Á svona degi má reikna með að set- ið sé á hverjum bletti, í hverju fangi í heitu pottum sundlauganna. Samt förum við öll í sund. Við erum Íslend- ingar, við erum þekkt fyrir að vera bjartsýn. Ég er ein af þeim. Þarna sat ég og naut sólarinnar í Laugardalnum ásamt vinkonum mínum. Hlátrasköll- in glumdu þegar við ræddum heims- málin og ýmis önnur ekki síður mik- ilvæg mál. Ég fylgdist með freknunum spretta fram á andliti annarrar vinkonu minnar og hin gætti þess vandlega að fletir líkamans fengju jafn mikið magn af sólar- geislum, hún var nú einu sinni á leið upp að altarinu með útiteknum manni seinna um sumarið. Það var svo sannarlega líf og fjör í pottinum. Hlæj- andi börn, grátandi börn, glaðir unglingar, aðeins eldri unglingar og fastagestir laugarinnar sem létu marg- mennið þennan dag ekki setja sig út af laginu. Út um allan pott voru leik- föng, sundboltar og taflborð. Einn boltanna, skærbleikur að lit, skoppaði ítrekað til mín og sló ég hann jafnharðan til baka. Eftir dálitla stund gafst ég upp, tók boltann og sýndi gam- alkunna blaktakta þegar ég sendi boltann lengst í burtu. Því næst hélt ég áfram að ræða við vinkonur mínar eins og ekk- ert hefði ískorist og tók ekki einu sinni eftir því að skeifa hafði myndast á andliti lítillar stúlku í pottinum, það glitti meira að segja í tár á hvörmum hennar. „Lára, getur nokkuð verið að þetta hafi verið bolti stelpunnar þarna sem þú kastaðir í burtu?“ spurði vinkona mín mig eftir dálitla stund og benti í átt til litlu stúlkunnar. Ég hrökk í kút. Við mér blasti grátandi telpa, á að giska þriggja ára og móðir hennar sem reyndi sitt besta til að hugga hana. Eftir nánari athugun kom í ljós að vinkona mín hafði rétt fyrir sér. Ég ruddist í gegn- um þvöguna í pottinum til að ná í boltann á meðan vinkona mín gerði sitt besta til að róa móður barnsins, en það hafði fokið verulega í hana þegar hún áttaði sig á því hvað ég hafði gert. Skömmustuleg rétti ég barninu boltann, baðst af- sökunar og sá svo rétt glitta í hælana á fjölskyldunni sem flýtti sér upp úr pottinum. Já, þetta var ógleyman- legur dagur. Sólin gerði hann vissulega frábæran, en þetta verður alltaf dagurinn þegar ég tók leikfang af litlu barni og henti lengst út í buskann. » Ég ruddist í gegnumþvöguna á meðan vin- kona mín gerði sitt besta til að róa móður barnsins … Heimur Láru Höllu Lára Halla Sigurðardóttir larahalla@mbl.is 30% afsláttur af völdum töskum og fatnaði Kringlan Sími 533 4533 Kringlukast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.