Morgunblaðið - 17.10.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2014
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 20. október, kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Muggur
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag, föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Meira en hálft ár er liðið frá því að
Samkeppniseftirlitið beindi kæru á
hendur ellefumenningunum hjá
Eimskip og Samskipa til embættis
sérstaks saksóknara, líkt og greint
var frá í Morgunblaðinu í gær. Þar
hefur kæran legið í á áttunda mán-
uð, án þess að rannsókn embættisins
á málinu væri hafin.
Lögbundið hlutverk
Í tilkynningu Samkeppniseftirlits-
ins frá í fyrradag segir m.a.: „Rann-
sókn Samkeppniseftirlitsins lýtur að
þeim fyrirtækjum sem í hlut eiga
[Eimskip og Samskip - innskot blm.]
Stendur hún enn yfir. Hins vegar er
það lögbundið hlutverk embættis
sérstaks saksóknara að rannsaka
hugsanlegt brot stjórnenda eða
starfsmanna fyrirtækja á sam-
keppnislögum, að undangenginni
kæru frá Samkeppniseftirlitinu.
Hefur slíkri kæru verið beint til
embættis sérstaks saksóknara.“
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að ákveðnir verkferl-
ar væru hjá embættinu, þegar því
bærust kærur. „Það eina sem við
höfum staðfest, eins og Morgunblað-
ið hefur greint frá, er að við fengum
í marsmánuði kæru frá Samkeppn-
iseftirlitinu og hún er til meðferðar.“
Getur verið íþyngjandi
Ólafur Þór var spurður hvort
rannsókn embættisins væri hafin á
kærunni á hendur ellefumenningun-
um hjá Eimskip og Samskipum.
„Rannsókn í þessu tiltekna máli er
ekki hafin hjá okkur. Almennt get
ég sagt, að þegar okkur berast kær-
ur, þá setjum við þær í svokallaða
greiningu, sem snýr þá að því hvort
rétt sé að hefja rannsókn, eða ekki,
vegna þess að það eitt og sér getur
verið íþyngjandi fyrir þá sem kæran
beinist að. Þegar greiningin liggur
fyrir, þá er annaðhvort metið hvort
málið sé brýnt og þurfi strax að
hefja rannsókn, eða hvort málið þoli
bið, eða verði jafnvel vísað frá.
Það er í raun ekki fyrr en búið er
að úthluta máli inn í rannsóknarhóp,
sem eiginleg rannsókn hefst, ef hún
á annað borð hefst. Í tilfelli kær-
unnar frá Samkeppniseftirlitinu,
hefur málinu ekki verið úthlutað í
rannsóknarhóp,“ sagði Ólafur Þór.
Ólafur Þór segir að sé máli út-
hlutað í rannsóknarhóp, sé hægt að
tala um að rannsókn sé hafin og þá
hefjist alla jafna gagnaöflun og yf-
irheyrslur yfir mönnum.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að eft-
irlitið hefði í sumar tilkynnt skipa-
félögunum um tilvist kæru þeirrar
sem þeir höfðu beint til sérstaks
saksóknara.
„Það er þannig að Samkeppnis-
eftirlitið hefur samkvæmt lögum
það hlutverk að beina kærum til sér-
staks saksóknara um hugsanleg lög-
brot einstaklinga á samkeppnislög-
um. Það er þá sérstakur saksóknari
sem rannsakar meint brot. Sam-
keppniseftirlitið rannsakar síðan
hugsanleg brot fyrirtækja.“
Páll Gunnar var spurður hvað
honum fyndist um það að rannsókn
sérstaks saksóknara á kærunni væri
enn ekki hafin meira en sjö mán-
uðum eftir að hún var lögð fram:
„Ég hef ekkert um það að segja. Það
er vitanlega sérstakur saksóknari
sem svarar fyrir það,“ sagði Páll
Gunnar.
Páll Gunnar segir að rannsókn
Samkeppniseftirlitsins á meintum
brotum skipafélaganna sé ekki kom-
in á það stig að hægt sé að slá neinu
föstu um niðurstöður hennar. Hann
segir sömuleiðis að eftirlitið sé á
þessu stigi ekki reiðubúið að
staðfesta umfjöllun Kastljóss.
Gæta rannsóknarhagsmuna
- Nú er það staðhæft í mín eyru að
útilokað sé að nokkur annar en þið
sjálfir í Samkeppniseftirlitinu hafið
lekið kærunni til Kastljóssins. Hvað
segir þú um slíkar staðhæfingar?
„Samkeppniseftirlitinu er ekki
kunnugt um hvaðan upplýsingarnar
bárust Kastljósi. Eðlilega verðum
við núna að ganga úr skugga um það
að upplýsingarnar hafi ekki borist
frá okkur. Í rannsóknum okkar
leggjum við áherslu á það að gæta
rannsóknarhagsmuna, til þess að
auka líkurnar á að upplýst sé um
hugsanleg brot,“ sagði Páll Gunnar.
Hann benti á að í þessu máli sem
hér um ræðir liggi það fyrir að fyrir-
tækin sem séu til rannsóknar hafi
sótt um það að fá gögn um tilurð
rannsóknarinnar. „Við höfum að
hluta til hafnað slíkum beiðnum og
höfum tekist á um málið fyrir áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála, m.a. á
grundvelli rannsóknarhagsmuna,“
sagði Páll Gunnar Pálsson.
Rannsókn er ekki hafin
„Samkeppniseftirlitinu er ekki kunnugt um hvaðan upplýsingarnar bárust Kast-
ljósi,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri SKE Tilkynnt um kæruna í sumar
Það getur reynst þrautin þyngri fyrir blaðamenn að afla
upplýsinga. Í gærmorgun hóf blaðamaður tilraunir sínar
að ná sambandi við Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksókn-
ara. Á símaborði embættisins var tilkynnt að ríkis-
saksóknari tæki ekki við símtölum frá blaðamönnum, að-
eins tölvupóstum. Blaðamaður ritaði ríkissaksóknara
svofellt tölvubréf: „Sæl Sigríður.
Morgunblaðið hefur hug á því að vita hver afstaða
embættis þíns er til hins nýja lekamáls, sem upplýst var
um í Kastljósi RÚV á þriðjudagskvöld, þar sem frétta-
menn Kastljóssins höfðu undir höndum kæru Samkeppn-
iseftirlitsins á hendur ellefu starfsmönnum Eimskips og
Samskipa, þar af voru þrír menn nafngreindir, forstjóri Eimskips, núverandi
og fyrrverandi forstjórar Samskipa. Sérstakur saksóknari hefur staðfest í
samtali við mig að kæran hafi borist embætti hans í mars síðastliðnum.
Telur ríkissaksóknari að rannsaka þurfi sérstaklega þennan leka á trún-
aðargögnum? Mun ríkissaksóknari beita sér í þeim efnum?
Ef svar við þeirri spurningu er já, með hvaða hætti mun embætti ríkis-
saksóknara beita sér? Ef svarið við spurningunni er nei, hvers vegna mun
ríkissaksóknari ekki beita sér?
Telur embætti ríkissaksóknara að lekinn á gögnunum til RÚV sé ekki
jafnalvarlegur og lekinn á gögnum um málefni hælisleitandans Omos?“
Svohljóðandi svar barst frá ríkissaksóknara kl. 17.30 í gær: „Sæl Agnes.
Ríkissaksóknari hefur þetta til skoðunar.“
Þrautin þyngri
RÍKISSAKSÓKNARI OG FJÖLMIÐLAR
Sigríður
Friðjónsdóttir
Páll Gunnar
Pálsson
Ólafur Þór
Hauksson
Morgunblaðið/Ómar
Höfuðstöðvar Rannsókn sérstaks saksóknara á kæru SKE á hendur Eimskip og Samskipum er ekki hafin.
Eimskipafélag Íslands hafnar með
öllu ásökunum um að fyrirtækið hafi
brotið samkeppnislög. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu sem félagið
sendi frá sér í gær. Segir jafnframt í
tilkynningunni að félagið hafi falið
lögmönnum sínum að undirbúa
kæru til lögreglu, þar sem óskað
verði eftir rannsókn á meintum leka
á gögnum málsins til Ríkis-
útvarpsins.
Í tilkynningunni er vísað til yfir-
lýsingar Samkeppniseftirlitsins, þar
sem kom fram að stofnunin væri
ekki tilbúin til þess að staðfesta
fréttaflutning Kastljóss í fyrradag.
Þá hefði verið tekið fram að rann-
sókn málsins væri ekki á því stigi að
unnt væri að slá neinu föstu um nið-
urstöður hennar. „Eimskipafélagið
furðar sig á þeim fréttaflutningi sem
viðhafður hefur verið af hálfu Rík-
isútvarpsins í þessu samhengi,“ seg-
ir í tilkynningu Eimskipafélagsins.
Tekið er fram að lagaleg skylda
hvíli á félaginu að tilkynna yfir-
völdum ef grunur leiki á að inn-
herjaupplýsingum hafi verið miðlað
á ólögmætan hátt. Því hafi félagið
sent ábendingu til Fjármálaeftir-
litsins og Kauphallar Íslands um
möguleg lögbrot. Þá hafi félagið
sent bréf til Samkeppniseftirlitsins
og sérstaks saksóknara og krafist
þess að fá afhent öll gögn sem teng-
ist umræddum umfjöllunum Kast-
ljóss, til að félagið geti svarað þeim
ásökunum sem fram hafi komið.
„Munurinn á kæru og ákæru er
lítill í orði en mikill á borði. Ein-
staklingar eru saklausir þar til sekt
þeirra er sönnuð fyrir dómi. Málið er
enn á rannsóknarstigi og óvíst hvort
ákæra verður gefin út. Það er sorg-
legt til þess að vita að trúnaður virð-
ist ekki geta ríkt innan eftirlitsstofn-
ana og að trúnaðargögnum sem
unnið er með skuli vera lekið í fjöl-
miðla til opinberrar birtingar. Það
er ójafn leikur enda hafa þeir sem
um er fjallað ekki séð gögnin og
geta þar af leiðandi ekki varist,“
segir í lokakafla tilkynningar Eim-
skipafélagsins. sgs@mbl.is
Munu óska
eftir rann-
sókn á leka
Morgunblaðið/Rósa Braga
Tilkynning frá
Eimskipafélaginu
Málflutningi í Landsbankamálinu
svonefnda lauk í gær, þegar verj-
endur þeirra Ívars Guðjónssonar,
Júlíusar S. Heiðarssonar og Sindra
Sveinssonar, sem allir störfuðu á
sviði eigin fjárfestinga bankans,
fluttu málflutningsræður sínar fyrir
fjölskipuðum Héraðsdómi Reykja-
víkur. Fluttu saksóknari og verjandi
Sigurjóns Árnasonar, fyrrverandi
bankastjóra, sínar ræður í fyrradag.
Gagnrýndu verjendur mála-
tilbúnað sérstaks saksóknara og
sagði Helgi Sigurðsson, verjandi
Júlíusar, að ákæruvaldinu hefði tek-
ist að gera einföld mál flókin og
flókin mál óskiljanleg.
Reimar Pétursson, verjandi
Sindra, gagnrýndi Kauphallarherm-
inn og tölfræðiútreikninga saksókn-
ara. Sagði Reimar að ákæran byggði
á óafstemmdum útreikningum eins
manns sem byggi ekki yfir sér-
fræðiþekkingu á umræddum við-
skiptum. Sagði Reimar að öll með-
ferð saksóknara á tölum hefði verið
blekkjandi og villandi, og gæti því
ekki verið grundvöllur sakfellingar.
Sigurjón Árnason ávarpaði dóm-
inn eftir að saksóknari og verjendur
höfðu lokið andsvörum sínum. Sagði
hann undirmenn sína hafa haft hags-
muni bankans að leiðarljósi. „Þetta
eru bara strákar sem eru að vinna
eftir sinni bestu getu,“ sagði Sigur-
jón um undirmenn sína.
Allir að vinna eftir
sinni bestu getu
Landsbankamálið dómtekið